Fyrrum fangi telur sig hafa orðið fyrir einelti og ómannúðlegri meðferð í afplánun sinni. Hann hefur höfðað mál til að fá skaðabótaskyldu ríkisins viðurkennda og virðist eiga erfitt með að sætta sig við hversu langan tíma það geti tekið að fá niðurstöðu í málinu, en hann hefur farið fram á flýtimeðferð sem Landsréttur hefur nú hafnað. Þetta er í þriðja sinn sem málið ratar fyrir Landsrétt. Fyrst vísaði Landsréttur málinu frá en Hæstiréttur sendi það aftur til baka til efnislegrar meðferðar.
Fyrrum fangi fær ekki flýtimeðferð – Segist hafa orðið fyrir einelti og pyntingum er hann afplánaði þungan dóm