Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók 19 ára pilt í nótt og beitti rafbyssu við handtökuna. Yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar segir hann hafa verið talinn hættulegan sjálfum sér og öðrum.
Lögreglan vildi ekki gefa upp hvort pilturinn hafi verið vopnaður.
Hann var fluttur til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri sem lögregla segir að sé hefðbundið verklag eftir að rafbyssu sé beitt. Í kjölfarið hafi hann verið fluttur í fangageymslu. Lögreglan gat ekki staðfest við fréttastofu hvort hann væri enn í haldi.
Samkvæmt upplýsingum frá lögmanni piltsins er hann enn á sjúkrahúsi og ekki í fangaklefa.
Lögreglan varðist frekari frétta af málinu þegar eftir því var leitað, annað en að það væri í rannsókn. Ekki fékkst upp gefið hvort farið yrði fram á gæsluvarðhald.