„Þau eru flest mjög ánægð með sína heimahaga en væru til í til dæmis lengri opnunartíma félagsmiðstöðva. Þau kalla mikið eftir því.“
Þetta segir Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum, sem er á Patreksfirði þessa stundina. Barnaheill og Geðhjálp hafa farið um landið undanfarið til að ræða geðrækt og mikilvægi þess að huga að geðheilsu.
Í dag er alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga. Gulur september, samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum, er enn fremur í þessum mánuði.
Tengsl skipta máli
Kolbrún Hrund segir að andleg líðan hafi ekki mælst alveg nógu vel hjá íslenskum unglingum. „Kvíði og streita eru of mikil – en við vitum líka að góð tengsl skipta mjög miklu máli. Þannig að við ákváðum að ferðast um og heyra í unga fólkinu okkar. Hvernig líður þeim og hvað þurfa þau?“
Hún segir unglingana óska eftir lengri opnunartíma sundlauga og meiri samveru – til dæmis með fjölskyldu sinni. „Vinátta skiptir mjög miklu máli [...] Svo eru þau að kalla eftir hlutum eins og að fá ísbúð í bæinn, bakarí og fataverslun. Svo það er alls konar sem kemur fram.“