Hildur Björnsdóttir borgarstjóri afhenti Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í Höfða í dag.Á sjöunda tug handrita bárust í samkeppni Reykjavíkurborgar um Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur að þessu sinni. Dómnefnd segir mörg þeirra hafa verið mjög góð og að úr vöndu hafi verið að ráða. Eftir endurtekinn lestur þeirra handrita sem þóttu skara fram úr varð það einróma niðurstaða dómnefndar að handritið Bestu vinir væri helst til verðlauna fallið.
Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur