Sex þingmenn úr Miðflokki, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki vilja að mótuð verði stefna og aðgerðaáætlun sem miði að því að útrýma minki úr íslenskri náttúru.
Þingmennirnir vilja að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra móti slíka stefnu og áætlun í samráði við sveitarfélög og aðra hagaðila. Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu sem var lögð fram á Alþingi í dag. Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Síðustu ár hafa rúmlega 5.000 minkar verið drepnir ár hvert.
Í greinargerð er vísað til fyrri tilrauna á afmörkuðum svæðum til að útrýma minki. Þingmennirnir segja að full ástæða sé til að kanna að nýju hvort hægt sé að ráðast í markvissara og umfangsmeira átak til að eyða mink í íslenskri náttúru á öllu landinu.
„Flutningsmenn benda á að markvissar aðgerðir gegn minkastofninum kunni að hafa verulegan fjárhagslegan ávinning til langs tíma. Viðvarandi minkaveiðar fela í sér árlegan kostnað fyrir ríki og sveitarfélög og sá kostnaður mun halda áfram svo lengi sem minkurinn er til staðar í íslenskri náttúru.“
Þingmenn segja núverandi ástand óviðunandi og vilja fá fram stefnu og aðgerðaáætlun ekki seinna en í vor.