Braut reglur þegar hann minntist Steins - Vísir

Braut reglur þegar hann minntist Steins - Vísir

Braut reglur þegar hann minntist Steins - Vísir

Útförin var gerð fyrir fullri Víðistaðakirkju í Hafnarfirði eftir hádegið í gær. Hún var með hefðbundnara sniði ef frá er talið að besti vinurinn var sjálfur presturinn. Davíð og Steinn störfuðu saman í skemmtanabransanum og gerðu garðinn líklega hvað frægastan sem Radíusbræður á sínum tíma.

„Í starfi okkar sem skemmtikraftar lærðum við Steinn eitt sem okkur þótti mjög áhugavert. Og það er að maður veit eiginlega ekki hvar strikið er fyrr en maður er farinn yfir það. En þá veit maður það líka um leið. Við Steinn fórum oft yfir strikið og stundum meira að segja viljandi. Annað strik hefur þó þvælst öllu meira fyrir mér undanfarinn áratug eða svo og það er strikið á milli þess hvenær ég tala sem prestur og hvenær ég tala sem prívatmanneskja,“ sagði Davíð Þór í minningarorðum sínum.

Klippu af minningarorðunum má sjá hér og neðar í greininni er upptaka frá útförinni í heild sinni.

„Þannig að ef þið eruð í vafa um það hvort ég stend hér sem prestur, sem þannig vill til að var vinur Steins, eða sem vinur Steins, sem þannig vill til að er prestur, þá er það allt í lagi. Ég er ekki með það á hreinu sjálfur.“

Fokk

Hann rifjaði upp að í guðfræðideild Háskóla Íslands væri prestsefnum meðal annars kennt að skrifa minningarorð og hvaða reglur giltu um það. Þær reglur ætlaði hann að virða að vettugi í dag.

„Og reyndar er ég þegar byrjaður á því með því að tala hér um sjálfan mig. En samband okkar Steins var með þeim hætti að ég fann enga aðra leið að því sem ég vildi segja.“

Önnur regla sem hann braut var að hefja mál sitt ekki á því að vitna í Biblíuna.

John Cleese kom við sögu í minningarorðum Davíðs Þórs.

„Þess í stað langar mig að vitna í orð sem breski gamanleikarinn John Cleese lét falla í minningarorðum í útför vinar síns og samstarfsmanns til margra ára, Graham Chapman. Í þessum minningarorðum sagði John Cleese meðal annars: „Fokk.““

Hvort sem fólki líkaði betur eða verr væri þetta ekki í fyrsta sinn sem orðið fokk væri sagt upphátt í útför.

Andstyggilegi sjúkdómur

„Og ég vel þessa tilvitnun því hún lýsir svo vel viðbrögðum mínum þegar fréttin af andláti Steins vinar míns kýldi mig í kviðinn þannig að ég átti erfitt með andardrátt. „Fokk, Steini er dáinn.“ Fokk, þessi andstyggilegi sjúkdómur sem tók hann frá okkur. Fokk, þessi heimur. Þar sem þeir sem hafa mest að gefa, þeir sem hafa glæsilegustu náðargáfurnar, mestu hæfileikana, frjóasta ímyndunaraflið, tignarlegasta, hugmyndaflugið, frásagnargáfuna og frásagnargleðina, besta húmorinn, innilegasta hláturinn, hlýjustu hendurnar, breiðasta faðminn, stærsta hjartað, fá um leið stærstu hindranirnar, erfiðustu áskoranirnar, sárasta harminn og svörtustu angistina.“

Það hljóti að vera eitthvað orsakasamhengi þarna á milli.

„En það eru fleiri ástæður fyrir því að ég kýs að vitna í John Cleese, og ein er sú að Steinn myndi aldrei fyrirgefa mér að nota ekki þetta tækifæri til að hrista aðeins upp í hlutunum, storka pínulítið og ögra, gera eitthvað óvænt og ófyrirsjáanlegt, kannski sjokkera smá eða ganga fram af, fara aðeins yfir strikið. Steinn vildi rugga bátum og sjá fólk gagga af skelfingu þegar þeirra þægilegi og sjálfsupphafni sálardoði var dreginn sundur og saman í miskunnarlausu háði.“

Þetta hafi hann ekki gert af illsku eða skepnuskap, en kannski dálitlum prakkaraskap.

Væri móðgun að hjala yfir kistunni

„En fyrst og fremst þó af kærleika. Sumt fólk hefur nefnilega svo gott af því að gengið sé fram af því. Það kemur blóðinu á hreyfingu. Samfélag okkar hefur svo gott af því að með reglulegu millibili sé gengið fram af þeim sem harðastan vörð standa um velsæmi og borgaraleg gildi. Ímyndið ykkur bara það, það steinrunna, kæfandi, þrúgandi stöðnunarsamfélag sem við byggjum í, ef ekki væri með reglulegu millibili hrist upp í hlutunum og tabúum ögrað. Jafnvel bara af prakkaraskap.“

Það væri einfaldlega móðgun við minningu Steins að standa yfir kistunni hans og hjala einhver þægileg huggulegheit sem létu vel í eyrum og snertu engan.

„Steinn var nefnilega svolítið eins og listin sjálf. Það eina sem listin má ekki gera er að láta mann ósnortinn. Listin á að snerta mann, ekki endilega blíðlega. Ekki endilega þægilega, ekki endilega eins og maður vill vera snertur. Hún má strjúka manni öfugt. Jafnvel slá mann utan undir. Allt nema eitthvað meh. Það var ekkert meh í Steini. Hann var annaðhvort eða maður. Hann var allt eða ekkert maður. Þannig átti Steini til dæmis ekki áhugamál. Þess í stað fékk hann dellur, bíladellu, hestadellu, hjóladellu, svo ég minnist nú ekki á kraftadelluna sem hjatlaðist reyndar af honum, sem betur fer.“

Alltaf hann sjálfur

Steinn hafi verið „all in“ eða hann var ekki með. Og ekkert þar á milli.

„Steinn var þannig að hann snerti þá sem urðu á vegi hans, ekki alltaf þannig að þeim líkaði. En persóna hans einhvern veginn krafði mann um afstöðu. Annaðhvort elskaði maður Stein eða maður þoldi hann ekki. Og alloft hvort tveggja samtímis. Steinn smjaðraði aldrei eða synti með straumnum til að falla í kramið. Hann var alltaf hann sjálfur og sjálfum sér samkvæmur. Hræsni og tilgerð voru ekki til í fari Steins. Og ekki bara voru þessir eiginleikar ekki til í fari hans. Hann hafði andstyggð á þeim og hafði endalaust gaman af því að gera grín að þeim sem þessir lestir mörkuðu.“

Fyrir vikið hafi Steinn stungið í stúf og ekki átt upp á pallborðið hjá siðprúða borgaralega íhaldinu, en hann hafi svo sem ekki heldur verið í neinu sérstöku uppáhaldi hjá arty-party-senunni á Íslandi heldur.

„Allir sem tóku sjálfa sig hátíðlega og voru viðkvæmir fyrir því að hæðst væri að þeim voru skotmörk fyrir tannhvasst og oft furðulega steikt grín Steins. Undir töffaralegu yfirborðinu var Steinn nefnilega mjög andlega þenkjandi. Hann gerði sér grein fyrir því að við erum örverur skríðandi um á rykkorni í miðri risastórri sprengingu og þegar þessar örverur fara að taka sjálfar sig hátíðlega og finnast þær vera rosalega merkilegar og mikilvægar, þá eru þær í hinu stóra samhengi bara hlægilegar.“

Byggði álit sitt á innihaldi

Steinn hafi snert fólk, en séð og lesið líka.

„Hann var mesti mannþekkjari sem ég veit um. Hann var fljótur að sjá hvað í fólki bjó, hvort það væri gott og heiðarlegt, vel meinandi og fallega innréttað, jafnvel þótt gæfan og lífið hefðu ekki farið um það mjúkum höndum eða hvort það væru bara einhverjir pappakassar. Steinn fór í manngreinarálit. En það álit byggði hann á innihaldi fólks, ekki umbúðum þess.“

Steinn hafi verið mannglöggur með afbrigðum, svo mannglöggur að Davíð minntist þess að hafa séð hann þekkja fólk sem hann hafði aldrei séð áður.

„Hann sá bara á svipnum á því hverra manna það var. Og ég sagði sameiginlegum vini okkar frá þessu og hann sagði: „Það er nú ekkert, ég hef séð hann þekkja hunda sem hann hafði aldrei séð áður.“ Steinn mundi nefnilega eftir fólki og atburðum. Stundum kom það mér á óvart hvað hann gat rifjað upp og munað í smáatriðum sem ég var löngu búinn að gleyma. Og dökka hliðin á þeim hæfileika er að hann gat ekki heldur gleymt hlutum sem hefðu kannski betur fallið í gleymsku.“

Brá sér í allra kvikinda líki

Kannski hafi þetta í fari Steins gert hann svo stórkostlegan leikara og mannrýni.

„Hann sá fólk og las það og fann eitthvað í því, eitthvað sem hann gat speglað, eitthvað sem hann gat knúið sína eigin sköpun og túlkun með, stundum bara eitthvað sem hann gat hlegið að. Hann gat brugðið sér í allra kvikinda líki og alla bændur á Borgarfirði eystra gat hann leikið hvern með sínum sérkennum og talanda. Sumir dúkkuðu jafnvel upp í grínsketsum í útvarpi eða sjónvarpi og gott ef ekki í pylsuauglýsingu líka.“

Þá ræddi Davíð frásagnargleðina og -gáfuna.

„Maður lifandi. Ég hef ekki tölu á því hve oft ég ætlaði að fara að segja einhverja sögu á mannamótum þegar Steinn greip fram í fyrir mér og sagði: „Þegiðu, Davíð. Leyfðu mér að segja þessa sögu, ég geri það svo miklu betur.“ Og undantekningarlítið var það rétt hjá honum,“ sagði Davíð og spurði stórrar spurningar:

„Hvað gerir það að verkum að risi eins og Steinn er tekinn frá okkur svona löngu áður en hans tími hefði átt að vera kominn? Ég ætla ekki að þykjast vita það en hitt veit ég að það var ekki alltaf auðvelt að vera Steinn. Unglingsárin, næstu mótunarárin, voru erfið fyrir lágvaxinn, rauðbirkinn dreng sem ekki sinnti meginstraumnum í umhverfi þar sem hjarðhegðun var æðsta dyggðin. Þar sem það eitt að hafa meiri orðaforða en dólgarnir og hrekkjusvínin og nota hann gaf krökkum höggstað og varð tilefni eineltis og uppnefna.“

Hljóður harmur á æskuheimilinu

Á æskuheimili Steins á Vesturvanginum hafi verið fallegt og ástríkt og þar voru vinirnir alltaf velkomnir en yfir því hvíli hljóður harmur.

„Þeir voru þrír bræðurnir, Steinn, Halldór og Björgvin, en fjögurra ára lenti Björgvin í alvarlegu slysi og var meðvitundarlaus þar sem hann átti eftir ólifað. Oft inni á heimili fjölskyldu sinnar. Björgvin lést 1991, tvítugur að aldri, eftir sextán ára sjúkralegu. Móður sína, Sesselju Björgu Helgadóttur, missti Steinn árið 2006.“

Nú séu aðeins Magnús og Halldór eftir af fimm manna fjölskyldunni, Magnús sem fylgi öðrum syni til grafar og Dóri sem kveðji annan bróður.

„Harmur ykkar er mikill og sár en ég vona að þið finnið einhverja huggun í því að Steini, Böggi og Stella eru nú sameinuð á ný og að þið eruð ekki einir í sorg ykkar og söknuði.“

Stórmenni fallið frá

Þá beindi hann orðum sínum til Tuma og Huga, sona Steins.

„Föðurmissirinn er sár en gleymið aldrei að pabbi ykkar var stórmenni, einn mesti hæfileikamaður sinnar kynslóðar á Íslandi og hættið þið aldrei að vera stoltir af honum. Elsku Jenný, yfir harm þinn og sorg ná engin orð en mundu að þú ert umvafin kærleika og væntumþykju allra sem elskuðu þig og Stein. Viðbrögðin við andláti hans sýna að þeir eru mun fleiri en ég held að hann hefði nokkru sinni getað ímyndað sér. Ég held að þrátt fyrir allt hafi fólk upp til hópa séð og kunnað að meta að Steinn var ekta, að á bak við gáskafullu grímuna var eitthvað hyldýpi sannrar og algerrar mennsku.“

Davíð Þór og Steinn Ármann brugðu sér í mörg hlutverk í Radíusbræðrum.

Davíð sagði einu huggunina sem hann gæti boðið vera að reyna að muna að sorgin spretti af kærleika.

„Sorg getur aldrei fæðst af neinu öðru en kærleika. Við syrgjum af því að við elskum þá. Kærleikurinn gefur lífinu gildi. Líf án kærleika er varla þess virði að því sé lifað. En þegar við leyfum okkur að elska, þá gefum við sorginni færi á okkur. Kærleikurinn aftur á móti er sorgarinnar virði. Lífið er dauðans virði. Steinn skilur eftir sig innihalds- og merkingarríkara líf en flestir,“ sagði Davíð.

Breiður faðmur á braut

„Reynum í gegnum tárin að gleðjast yfir því lífi, yfir því að hafa fengið að vera samferða Steini, þó ekki væri nema þennan spöl í tíma og rúmi. Það voru forréttindi sem ég verð alltaf þakklátur fyrir að hafa fengið að njóta og ég veit að svo er um fleiri. Minnumst hans breiða faðms. En sá sem einu sinni komst inn í hann átti þar skjól fyrir lífstíð. Minnumst vænghafsins sem hans risastóri persónuleiki breiddi yfir þá sem honum stóðu nærri.“

Þá fann Davíð ritningarstað úr Biblíunni sem hann langaði að minnast Steins með.

Steinn Ármann hefði orðið 62 ára þann 28. október næstkomandi.Vísir/EinarÁrna

„Í Nýja testamentinu segir Jesús á einum stað: „Hversu oft vildi ég safna börnum þínum eins og hænan ungum sínum undir vængi sér?“ Þarna líkir Jesús sér við unga mömmu og okkur við ungana undir verndarvæng hennar. Þannig að þegar við syngjum: „Ég vil dvelja í skugga vængja þinna“ eða „Ó, vef mig vængjum þínum“, þá erum við ekki að syngja um englavængi, heldur hænumömmuvængi. Og þar með erum við að líkja okkur sjálfum við litla gula hænuunga, einhverjar veigaminnstu, viðkvæmustu, léttvægustu og brothættustu lífverur sem við þekkjum. Það er óneitanlega svolítið spaugilegt og ætti að minna okkur á að taka okkur sjálf ekki of hátíðlega. Við erum bara kjúklingar. En það er líka viðeigandi að líkja okkur við hænuunga, því við erum brothætt. Og strikið á milli lífs og dauða er svo þunnt. Við erum svo undurbrothætt.“

Hve svöl og sterk sem við lítum út fyrir að vera á yfirborðinu, hve sjálfsörugg og heilsteypt sem við virðumst vera, erum við brothætt.

„Höfum það í huga í umgengni okkar hvert við annað. Reynum að byggja hér samfélag þar sem við verjum hvert annað betur fyrir hnjaski, því við erum svo brothætt. Guð blessi minningu Steins Ármanns Magnússonar.“

#braut #hann #minntist #reglur #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262933144d/braut-reglur-thegar-hann-minntist-steins

📰 Aðrar fréttir

Jay-Z to perform at Super Bowl half-time show
📅 27.10.2026 👁️ 2
Jay-Z to perform at Super Bowl half-time show
Jay-Z has been involved with the show for years but has never before performed at the NFL championship game.
Jordan says 'terrorists' killed in Syria in retaliatory strike over church attack
📅 27.10.2026 👁️ 2
Jordan says 'terrorists' killed in Syria in retaliatory strike over church attack
The attack on a village in Syria killed five people, including women and children, Syrian health officials said.
Bandarískur sjóliði ákærður fyrir morð á japanskri konu
📅 27.10.2026 👁️ 2
Bandarískur sjóliði ákærður fyrir morð á japanskri konu
Japanskir saksóknarar hafa ákært bandarískan sjóliða sem er grunaður um að hafa myrt japanska konu á Okinawa-eyju í Japan.Sjóliðinn Devin Jacob Ballar...
iPhone Duo: Apple says it will replace handsets with screen problems
📅 27.10.2026 👁️ 2
iPhone Duo: Apple says it will replace handsets with screen problems
Photos shared online showed faults appearing on the screens of Apple's first foldable device.
Flokkur Bolsonaro viðurkennir kosningaúrslitin
📅 27.10.2026 👁️ 4
Flokkur Bolsonaro viðurkennir kosningaúrslitin
Flokkur Flavio Bolsonaro forsetaframbjóðanda í Brasilíu, Frjálslyndi flokkurinn, viðurkennir úrslit kosninganna sem fram fóru þar á sunnudaginn. Þetta...
Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði og sérfræðingur í byggðaþróun, segir aðalvandamálið við Loftbrúna ekki hvort ríkið niðurgreiði flugmiða um...
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
📅 26.10.2026 👁️ 4
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
From Brexit debates to North Sea oil, there is plenty getting the cabinet, the Labour Party and the country talking.
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
Lögreglan í El Salvador hefur handtekið fyrrverandi knattspyrnumann fyrir gróft dýraníð. Maðurinn lét lítinn hund dangla fram af svölum og tók það upp...
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseti tryggði sér fjórða kjörtímabilið í seinni umferð kosninganna í gær. Hann hlaut 51,79 prósent gildra atkvæða ...
Harry Kane: Bayern Munich and England striker wins Ballon d'Or after record season
📅 26.10.2026 👁️ 4
Harry Kane: Bayern Munich and England striker wins Ballon d'Or after record season
Harry Kane becomes the first English player to win the Ballon d'Or since Michael Owen in 2001 after being crowned the world's best player at a ceremon...
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
📅 26.10.2026 👁️ 4
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
The chancellor will axe tariffs on some staples as part of plans to give households "breathing space".
Healey pledges cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
📅 26.10.2026 👁️ 2
Healey pledges cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
The chancellor will axe tariffs on some staples as part of plans to give households "breathing space".
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
📅 26.10.2026 👁️ 3
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
The guitarist says doctors had given him "a few years left to live", but is now recovering well.
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
📅 26.10.2026 👁️ 3
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
Sigvaldi Einarsson, frumkvöðull og áhugamaður um alþjóðamál, veltir því fyrir sér í pólitískri ádeilu hvort staðan í heiminum væri öðruvísi hefði Evró...
Ex-FBI chief James Comey faces federal charges for third time
📅 26.10.2026 👁️ 2
Ex-FBI chief James Comey faces federal charges for third time
Comey's lawyers say the case stems from alleged disclosure of classified information to the New York Times in 2016.
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
📅 26.10.2026 👁️ 3
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
Hvaða æfingar myndirðu velja ef þú mættir aðeins gera tíu það sem eftir væri ævinnar? Jeff Cavaliere, maðurinn á bak við ATHLEAN-X, hefur tekið saman ...
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
📅 26.10.2026 👁️ 3
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og var formlega vígð þann 26. október 1986. Hátíðardagskrá hefur farið fram undanfarna viku í...
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
📅 26.10.2026 👁️ 3
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
„Ég held að það væri óráð að reyna að hætta við,“ sagði Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla og varaformaður Skólastjórafélags Íslands, u...
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
Kristinn Hrafnsson fjölmiðlamaður og upplýsingafulltrúi Wikileaks segist venjulega fara varlega í að hrósa stjórnmálamönnum en í ljósi góðrar reynslu ...
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkja...
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
📅 26.10.2026 👁️ 4
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
Bróðir manns sem féll niður í sprungu sem myndaðist í Grindavík segist þakklátur fyrir að ákveðið hafi verið að ráðast í leit að líki bróður hans. Lei...
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi ...
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
📅 26.10.2026 👁️ 4
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
Áform dómsmálaráðherra um að sameina lögregluembætti í þrjú mæta harðri mótstöðu á landsbyggðinni. Dómsmálaráðherra segir lítil embætti ekki ná utan u...
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
📅 26.10.2026 👁️ 4
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
The BBC says it did not uphold any of the allegations of antisemitism but accepted there were "shortcomings" in how it treated Lucie Kon.
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
📅 26.10.2026 👁️ 4
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
Á að segja sannleikann um erfiða fortíð eða á að hlífa tilfinningum ástvina? Það er hægt að lifa eftir mottóinu um sannleikurinn sé sagna bestur en vi...
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
Pitsur hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem einn vinsælasti skyndibiti heims og njóta mikilla vinsælda á Íslandi, hvort sem hún er borðuð á veitingas...
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
Brynjar Steinn er fæddur árið 1999 og öðlaðist mikla frægð á samfélagsmiðlinum Snapchat á sínum tíma, þar sem notandanafnið hans var einmitt Binni Gle...
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
Aðstoðarkona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ráðgjafi hans í samskiptum birtu myndband af tólf biskupum í bænastund með forsetanum er þeir sóttu ha...
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur ...
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
📅 26.10.2026 👁️ 4
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær.Lögreglan í ...
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir...
Trump administration illegally fired James Comey's daughter, judge rules
📅 26.10.2026 👁️ 2
Trump administration illegally fired James Comey's daughter, judge rules
Maurene Comey believes she was let go from her job as a federal prosecutor because her father is the former FBI director.
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
📅 26.10.2026 👁️ 4
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sammæltist um það á fundi sínum á fimmtudag að lýsa yfir fullu trausti til Katrínar Sigurjónsdóttur sveitarstjóra í kjö...
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
Tveir kaþólskir biskupar hafa beðist afsökunar á fundi sínum með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Birt var ljósmynd af þeim að biðja með honum.Breska b...
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
Koenig lést á heimili sínu í Hollywood í gær, segir í umfjöllun Variety.  „Í dag syrgjum við Walter Koenig. Hæfileikar hans, hlýja og ógleymanlegur fl...
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna bilaðs bíls í skamma stund á sjöunda tímanum samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Þau hafa verið opnuð á ný.
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
Heimili á Íslandi nota um 5% af allri raforku sem hér er framleidd og stóriðjan tæplega 80%. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins nota gagnaver...
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
📅 26.10.2026 👁️ 4
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum á Íslandi í september. Deildarstjóri segir mikinn meirihluta hafa drepist á Reyðarfirði, vegna marglytta sem her...
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Ingibjörg segir Loftbrúna ...
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
📅 26.10.2026 👁️ 5
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst stytta hámarkstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána í 25 ár úr 40. Því er ætlað að tryggja að höfuðstóll hækki e...
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
📅 26.10.2026 👁️ 4
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
Minnihluti skipulagsráðs Reykjanesbæjar fer fram á að í nýju aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar verði tekið mið af hljóðvist og samfélagslegum áhrif f...
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
📅 26.10.2026 👁️ 5
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
Jón Gnarr þingmaður segir Viðreisn glíma við uppsafnaðan samskiptavanda, skipulagsleysi og pólitískar deilur. Hann hyggst áfram styðja ríkisstjórnina ...
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir gróft brot á vopnalögum auk vörslu fíkniefna og sprengifimra og eldfimra hluta. Málið verður tekið fyrir í Kalmar n...
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
Myndband af bandarískum piltum stökkva ofan í Skjálfandafljót við Goðafoss hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Instagram.Skjálfandafljót er ...
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
📅 26.10.2026 👁️ 4
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
A pre-alert for calima has been activated across the Canary Islands after a deterioration in air quality was recorded at monitoring stations in Teneri...
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...