Hafnarfjarðarbæ láðist að segja upp leigusamningi og því er nýbygging Tækniskólans við Hafnarfjarðarhöfn í uppnámi. Bærinn bauð aðra lóð á Völlunum sem skólinn afþakkaði.
Áform um að reisa skólann við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði voru fyrst kynnt fyrir fimm árum, en Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins með um 3.000 nemendur og er nú með starfsemi á nokkrum stöðum.
Á nýjum stað átti að koma starfseminni undir einu þaki á 30.000 fermetrum sem á að kosta 27 milljarða og til stóð að skólinn yrði fullbyggður 2029.
Talsverð uppbygging stendur til í þessu hverfi bæjarins sem meðal annars tekur mið af því að þarna rísi skólinn, og deiliskipulag vegna skólans var samþykkt í vor.
Áskoranir, segir bæjarstjóri
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri í Hafnarfirði þáði ekki boð um viðtal, en í skriflegu svari frá bænum segir að „ákveðnar áskoranir séu í gangi“ varðandi framkvæmdina, án nánari útskýringar á því.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er lóðin þegar í leigu og bænum láðist að segja leigusamningnum upp.
Þá herma heimildir fréttastofu að bærinn hafi boðið Tækniskólanum aðra lóð í Vallahverfi í Hafnarfirði sem skólinn þáði ekki.