Davíð braut reglur þegar hann minntist Steins Ár­manns - Vísir

Davíð braut reglur þegar hann minntist Steins Ár­manns - Vísir

Davíð braut reglur þegar hann minntist Steins Ár­manns - Vísir

Útförin var gerð fyrir fullri Víðistaðakirkju í Hafnarfirði eftir hádegið í gær. Hún var með hefðbundnara sniði ef frá er talið að besti vinurinn var sjálfur presturinn. Davíð og Steinn störfuðu saman í skemmtanabransanum og gerðu garðinn líklega hvað frægastan sem Radíusbræður á sínum tíma.

„Í starfi okkar sem skemmtikraftar lærðum við Steinn eitt sem okkur þótti mjög áhugavert. Og það er að maður veit eiginlega ekki hvar strikið er fyrr en maður er farinn yfir það. En þá veit maður það líka um leið. Við Steinn fórum oft yfir strikið og stundum meira að segja viljandi. Annað strik hefur þó þvælst öllu meira fyrir mér undanfarinn áratug eða svo og það er strikið á milli þess hvenær ég tala sem prestur og hvenær ég tala sem prívatmanneskja,“ sagði Davíð Þór í minningarorðum sínum.

Klippu af minningarorðunum má sjá hér og neðar í greininni er upptaka frá útförinni í heild sinni.

„Þannig að ef þið eruð í vafa um það hvort ég stend hér sem prestur, sem þannig vill til að var vinur Steins, eða sem vinur Steins, sem þannig vill til að er prestur, þá er það allt í lagi. Ég er ekki með það á hreinu sjálfur.“

Fokk

Hann rifjaði upp að í guðfræðideild Háskóla Íslands væri prestsefnum meðal annars kennt að skrifa minningarorð og hvaða reglur giltu um það. Þær reglur ætlaði hann að virða að vettugi í dag.

„Og reyndar er ég þegar byrjaður á því með því að tala hér um sjálfan mig. En samband okkar Steins var með þeim hætti að ég fann enga aðra leið að því sem ég vildi segja.“

Önnur regla sem hann braut var að hefja mál sitt ekki á því að vitna í Biblíuna.

John Cleese kom við sögu í minningarorðum Davíðs Þórs.

„Þess í stað langar mig að vitna í orð sem breski gamanleikarinn John Cleese lét falla í minningarorðum í útför vinar síns og samstarfsmanns til margra ára, Graham Chapman. Í þessum minningarorðum sagði John Cleese meðal annars: „Fokk.““

Hvort sem fólki líkaði betur eða verr væri þetta ekki í fyrsta sinn sem orðið fokk væri sagt upphátt í útför.

Andstyggilegi sjúkdómur

„Og ég vel þessa tilvitnun því hún lýsir svo vel viðbrögðum mínum þegar fréttin af andláti Steins vinar míns kýldi mig í kviðinn þannig að ég átti erfitt með andardrátt. „Fokk, Steini er dáinn.“ Fokk, þessi andstyggilegi sjúkdómur sem tók hann frá okkur. Fokk, þessi heimur. Þar sem þeir sem hafa mest að gefa, þeir sem hafa glæsilegustu náðargáfurnar, mestu hæfileikana, frjóasta ímyndunaraflið, tignarlegasta, hugmyndaflugið, frásagnargáfuna og frásagnargleðina, besta húmorinn, innilegasta hláturinn, hlýjustu hendurnar, breiðasta faðminn, stærsta hjartað, fá um leið stærstu hindranirnar, erfiðustu áskoranirnar, sárasta harminn og svörtustu angistina.“

Það hljóti að vera eitthvað orsakasamhengi þarna á milli.

„En það eru fleiri ástæður fyrir því að ég kýs að vitna í John Cleese, og ein er sú að Steinn myndi aldrei fyrirgefa mér að nota ekki þetta tækifæri til að hrista aðeins upp í hlutunum, storka pínulítið og ögra, gera eitthvað óvænt og ófyrirsjáanlegt, kannski sjokkera smá eða ganga fram af, fara aðeins yfir strikið. Steinn vildi rugga bátum og sjá fólk gagga af skelfingu þegar þeirra þægilegi og sjálfsupphafni sálardoði var dreginn sundur og saman í miskunnarlausu háði.“

Þetta hafi hann ekki gert af illsku eða skepnuskap, en kannski dálitlum prakkaraskap.

Væri móðgun að hjala yfir kistunni

„En fyrst og fremst þó af kærleika. Sumt fólk hefur nefnilega svo gott af því að gengið sé fram af því. Það kemur blóðinu á hreyfingu. Samfélag okkar hefur svo gott af því að með reglulegu millibili sé gengið fram af þeim sem harðastan vörð standa um velsæmi og borgaraleg gildi. Ímyndið ykkur bara það, það steinrunna, kæfandi, þrúgandi stöðnunarsamfélag sem við byggjum í, ef ekki væri með reglulegu millibili hrist upp í hlutunum og tabúum ögrað. Jafnvel bara af prakkaraskap.“

Það væri einfaldlega móðgun við minningu Steins að standa yfir kistunni hans og hjala einhver þægileg huggulegheit sem létu vel í eyrum og snertu engan.

„Steinn var nefnilega svolítið eins og listin sjálf. Það eina sem listin má ekki gera er að láta mann ósnortinn. Listin á að snerta mann, ekki endilega blíðlega. Ekki endilega þægilega, ekki endilega eins og maður vill vera snertur. Hún má strjúka manni öfugt. Jafnvel slá mann utan undir. Allt nema eitthvað meh. Það var ekkert meh í Steini. Hann var annaðhvort eða maður. Hann var allt eða ekkert maður. Þannig átti Steini til dæmis ekki áhugamál. Þess í stað fékk hann dellur, bíladellu, hestadellu, hjóladellu, svo ég minnist nú ekki á kraftadelluna sem hjatlaðist reyndar af honum, sem betur fer.“

Alltaf hann sjálfur

Steinn hafi verið „all in“ eða hann var ekki með. Og ekkert þar á milli.

„Steinn var þannig að hann snerti þá sem urðu á vegi hans, ekki alltaf þannig að þeim líkaði. En persóna hans einhvern veginn krafði mann um afstöðu. Annaðhvort elskaði maður Stein eða maður þoldi hann ekki. Og alloft hvort tveggja samtímis. Steinn smjaðraði aldrei eða synti með straumnum til að falla í kramið. Hann var alltaf hann sjálfur og sjálfum sér samkvæmur. Hræsni og tilgerð voru ekki til í fari Steins. Og ekki bara voru þessir eiginleikar ekki til í fari hans. Hann hafði andstyggð á þeim og hafði endalaust gaman af því að gera grín að þeim sem þessir lestir mörkuðu.“

Fyrir vikið hafi Steinn stungið í stúf og ekki átt upp á pallborðið hjá siðprúða borgaralega íhaldinu, en hann hafi svo sem ekki heldur verið í neinu sérstöku uppáhaldi hjá arty-party-senunni á Íslandi heldur.

„Allir sem tóku sjálfa sig hátíðlega og voru viðkvæmir fyrir því að hæðst væri að þeim voru skotmörk fyrir tannhvasst og oft furðulega steikt grín Steins. Undir töffaralegu yfirborðinu var Steinn nefnilega mjög andlega þenkjandi. Hann gerði sér grein fyrir því að við erum örverur skríðandi um á rykkorni í miðri risastórri sprengingu og þegar þessar örverur fara að taka sjálfar sig hátíðlega og finnast þær vera rosalega merkilegar og mikilvægar, þá eru þær í hinu stóra samhengi bara hlægilegar.“

Byggði álit sitt á innihaldi

Steinn hafi snert fólk, en séð og lesið líka.

„Hann var mesti mannþekkjari sem ég veit um. Hann var fljótur að sjá hvað í fólki bjó, hvort það væri gott og heiðarlegt, vel meinandi og fallega innréttað, jafnvel þótt gæfan og lífið hefðu ekki farið um það mjúkum höndum eða hvort það væru bara einhverjir pappakassar. Steinn fór í manngreinarálit. En það álit byggði hann á innihaldi fólks, ekki umbúðum þess.“

Steinn hafi verið mannglöggur með afbrigðum, svo mannglöggur að Davíð minntist þess að hafa séð hann þekkja fólk sem hann hafði aldrei séð áður.

„Hann sá bara á svipnum á því hverra manna það var. Og ég sagði sameiginlegum vini okkar frá þessu og hann sagði: „Það er nú ekkert, ég hef séð hann þekkja hunda sem hann hafði aldrei séð áður.“ Steinn mundi nefnilega eftir fólki og atburðum. Stundum kom það mér á óvart hvað hann gat rifjað upp og munað í smáatriðum sem ég var löngu búinn að gleyma. Og dökka hliðin á þeim hæfileika er að hann gat ekki heldur gleymt hlutum sem hefðu kannski betur fallið í gleymsku.“

Brá sér í allra kvikinda líki

Kannski hafi þetta í fari Steins gert hann svo stórkostlegan leikara og mannrýni.

„Hann sá fólk og las það og fann eitthvað í því, eitthvað sem hann gat speglað, eitthvað sem hann gat knúið sína eigin sköpun og túlkun með, stundum bara eitthvað sem hann gat hlegið að. Hann gat brugðið sér í allra kvikinda líki og alla bændur á Borgarfirði eystra gat hann leikið hvern með sínum sérkennum og talanda. Sumir dúkkuðu jafnvel upp í grínsketsum í útvarpi eða sjónvarpi og gott ef ekki í pylsuauglýsingu líka.“

Þá ræddi Davíð frásagnargleðina og -gáfuna.

„Maður lifandi. Ég hef ekki tölu á því hve oft ég ætlaði að fara að segja einhverja sögu á mannamótum þegar Steinn greip fram í fyrir mér og sagði: „Þegiðu, Davíð. Leyfðu mér að segja þessa sögu, ég geri það svo miklu betur.“ Og undantekningarlítið var það rétt hjá honum,“ sagði Davíð og spurði stórrar spurningar:

„Hvað gerir það að verkum að risi eins og Steinn er tekinn frá okkur svona löngu áður en hans tími hefði átt að vera kominn? Ég ætla ekki að þykjast vita það en hitt veit ég að það var ekki alltaf auðvelt að vera Steinn. Unglingsárin, næstu mótunarárin, voru erfið fyrir lágvaxinn, rauðbirkinn dreng sem ekki sinnti meginstraumnum í umhverfi þar sem jarðhegðun var æðsta dyggðin. Þar sem það eitt að hafa meiri orðaforða en dólgarnir og hrekkjusvínin og nota hann gaf krökkum höggstað og varð tilefni eineltis og uppnefna.“

Hljóður harmur á æskuheimilinu

Á æskuheimili Steins á Vesturvanginum hafi verið fallegt og ástríkt og þar voru vinirnir alltaf velkomnir en yfir því hvíli hljóður harmur.

„Þeir voru þrír bræðurnir, Steinn, Halldór og Björgvin, en fjögurra ára lenti Björgvin í alvarlegu slysi og var meðvitundarlaus þar sem hann átti eftir ólifað. Oft inni á heimili fjölskyldu sinnar. Björgvin lést 1991, tvítugur að aldri, eftir sextán ára sjúkralegu. Móður sína, Sesselju Björgu Helgadóttur, missti Steinn árið 2006.“

Nú séu aðeins Magnús og Halldór eftir af fimm manna fjölskyldunni, Magnús sem fylgi öðrum syni til grafar og Dóri sem kveðji annan bróður.

„Harmur ykkar er mikill og sár en ég vona að þið finnið einhverja huggun í því að Steini, Böggi og Stella eru nú sameinuð á ný og að þið eruð ekki einir í sorg ykkar og söknuði.“

Stórmenni fallið frá

Þá beindi hann orðum sínum til Tuma og Huga, sona Steins.

„Föðurmissirinn er sár en gleymið aldrei að pabbi ykkar var stórmenni, einn mesti hæfileikamaður sinnar kynslóðar á Íslandi og hættið þið aldrei að vera stoltir af honum. Elsku Jenný, yfir harm þinn og sorg ná engin orð en mundu að þú ert umvafin kærleika og væntumþykju allra sem elskuðu þig og Stein. Viðbrögðin við andláti hans sýna að þeir eru mun fleiri en ég held að hann hefði nokkru sinni getað ímyndað sér. Ég held að þrátt fyrir allt hafi fólk upp til hópa séð og kunnað að meta að Steinn var ekta, að á bak við gáskafullu grímuna var eitthvað hyldýpi sannrar og algerrar mennsku.“

Davíð sagði einu huggunina sem hann gæti boðið vera að reyna að muna að sorgin spretti af kærleika.

„Sorg getur aldrei fæðst af neinu öðru en kærleika. Við syrgjum af því að við elskum þá. Kærleikurinn gefur lífinu gildi. Líf án kærleika er varla þess virði að því sé lifað. En þegar við leyfum okkur að elska, þá gefum við sorginni færi á okkur. Kærleikurinn aftur á móti er sorgarinnar virði. Lífið er dauðans virði. Steinn skilur eftir sig innihalds- og merkingarríkara líf en flestir,“ sagði Davíð.

Breiður faðmur á braut

„Reynum í gegnum tárin að gleðjast yfir því lífi, yfir því að hafa fengið að vera samferða Steini, þó ekki væri nema þennan spöl í tíma og rúmi. Það voru forréttindi sem ég verð alltaf þakklátur fyrir að hafa fengið að njóta og ég veit að svo er um fleiri. Minnumst hans breiða faðms. En sá sem einu sinni komst inn í hann átti þar skjól fyrir lífstíð. Minnumst vænghafsins sem hans risastóri persónuleiki breiddi yfir þá sem honum stóðu nærri.“

Þá fann Davíð ritningarstað úr Biblíunni sem hann langaði að minnast Steins með.

„Í Nýja testamentinu segir Jesús á einum stað: „Hversu oft vildi ég safna börnum þínum eins og hænan ungum sínum undir vængi sér?“ Þarna líkir Jesús sér við unga mömmu og okkur við ungana undir verndarvæng hennar. Þannig að þegar við syngjum: „Ég vil dvelja í skugga vængja þinna“ eða „Ó, vef mig vængjum þínum“, þá erum við ekki að syngja um englavængi, heldur hænumömmuvængi. Og þar með erum við að líkja okkur sjálfum við litla gula hænuunga, einhverjar veigaminnstu, viðkvæmustu, léttvægustu og brothættustu lífverur sem við þekkjum. Það er óneitanlega svolítið spaugilegt og ætti að minna okkur á að taka okkur sjálf ekki of hátíðlega. Við erum bara kjúklingar. En það er líka viðeigandi að líkja okkur við hænuunga, því við erum brothætt. Og strikið á milli lífs og dauða er svo þunnt. Við erum svo undurbrothætt.“

Hve svöl og sterk sem við lítum út fyrir að vera á yfirborðinu, hve sjálfsörugg og heilsteypt sem við virðumst vera, erum við brothætt.

„Höfum það í huga í umgengni okkar hvert við annað. Reynum að byggja hér samfélag þar sem við verjum hvert annað betur fyrir hnjaski, því við erum svo brothætt. Guð blessi minningu Steins Ármanns Magnússonar.“

#braut #davíð #hann #reglur #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262933144d/braut-reglur-thegar-hann-minntist-steins

📰 Aðrar fréttir

Tenerife’s plants could hold the secret to developing new medicines
📅 10.09.2026 👁️ 0
Tenerife’s plants could hold the secret to developing new medicines
The extraordinary plant life of Tenerife is being investigated for naturally occurring compounds that could one day contribute to the development of n...
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan heillum horfin – samansafn af leiðinlegum körlum
📅 10.09.2026 👁️ 0
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan heillum horfin – samansafn af leiðinlegum körlum
Kristrún Frostadóttir flutti í gærkvöldi sína þriðju stefnuræðu og gerði það með glæsibrag, talaði sem sannur forsætisráðherra og þjóðarleiðtogi. Hina...
Israel's Netanyahu to sue Haaretz over claim UAE warned him of 7 October attack
📅 10.09.2026 👁️ 0
Israel's Netanyahu to sue Haaretz over claim UAE warned him of 7 October attack
The paper said it stood by its reporting, after publishing extracts from a book where the claim appears.
Fósturgreiningardeild flytur aftur á Hringbraut
📅 10.09.2026 👁️ 1
Fósturgreiningardeild flytur aftur á Hringbraut
Fósturgreiningardeild Landspítala flytur aftur í kvennadeildarhúsið við Hringbraut í næstu viku.Deildin flutti starfsemi sína tímabundið í hús Krabbam...
Yemen's Houthis reportedly seize strategic Red Sea port of Mokha
📅 10.09.2026 👁️ 0
Yemen's Houthis reportedly seize strategic Red Sea port of Mokha
Mokha's capture would bring the Iran-backed group closer to controlling the Bab al-Mandab Strait waterway, a key shipping route.
Grænland hafnar aðild að ESB þrátt fyrir milljarða fjárfestingar
📅 10.09.2026 👁️ 0
Grænland hafnar aðild að ESB þrátt fyrir milljarða fjárfestingar
Grænland hafnar aðild að ESB þrátt fyrir milljarða fjárfestingar Fréttin10. september 2026ErlentLeave a Comment Ursula von der Leyen, forseti framkvæm...
Steinn Ármann jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
📅 10.09.2026 👁️ 1
Steinn Ármann jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
Steinn Ármann Magnússon, leikari og grínisti með meiru, var jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag.Fjölmenni var við athöfnina en séra Da...
Bromley High Street stabbing: Four taken to hospital
📅 10.09.2026 👁️ 0
Bromley High Street stabbing: Four taken to hospital
Paramedics attended alongside London Air Ambulance crews at 14:19 BST on Thursday.
„Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabba­mein“ - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 0
„Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabba­mein“ - Vísir
Tónlistarkonan Una Torfa og Svandís Svavars, fyrrverandi ráðherra og stjórnmálakona, ræddu saman í fjórða þætti samtalsseríunnar Milli vina. Í þáttunu...
Oil, gas and borrowing costs surge as fears over Middle East escalate
📅 10.09.2026 👁️ 0
Oil, gas and borrowing costs surge as fears over Middle East escalate
The price of oil jumps to $105 a barrel amid signs the Iran war will not be resolved quickly.
Hanna Katrín treystir á afsögn Þorgerðar
📅 10.09.2026 👁️ 1
Hanna Katrín treystir á afsögn Þorgerðar
Hanna Katrín treystir á afsögn Þorgerðar Fréttin10. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Hanna Katrín Friðriksson,...
Stór­felldur niður­skurður fyrir­hugaður í vega­gerð - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 0
Stór­felldur niður­skurður fyrir­hugaður í vega­gerð - Vísir
Að sögn Guðmundar Vals Guðmundssonar, framkvæmdastjóra þróunarsviðs Vegagerðarinnar, var í fjármálaáætlun og samgönguáætlun gert ráð fyrir 34,8 milljö...
Baldur horfir á þetta viljandi „Djöfull skammast ég mín“
📅 10.09.2026 👁️ 0
Baldur horfir á þetta viljandi „Djöfull skammast ég mín“
Félagarnir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason halda úti hlaðvarpinu Menn eins og við þar sem þeir hakka í sig vandamál og verðlaunin sem miðaldra...
Hallinn tölu­verður en mun minni en búist var við - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 0
Hallinn tölu­verður en mun minni en búist var við - Vísir
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að hallinn skýrist af fjármagnsgjöldum, sem séu umfram áætlanir vegna aukinnar verðbólgu.  Skuldir lækka að raunv...
Haraldur opnar sig um örlagaríkan dag fyrir 18 árum: „Dagurinn sem besti vinur minn dó“
📅 10.09.2026 👁️ 0
Haraldur opnar sig um örlagaríkan dag fyrir 18 árum: „Dagurinn sem besti vinur minn dó“
Haraldur Már Haraldsson rifjar upp alvarlegt bílslys sem hann lenti í þegar hann var átján ára árið 2008. Í slysinu slasaðist Haraldur og besti vinur ...
Mótorhjólafólk vekur athygli á heilsu karlmanna
📅 10.09.2026 👁️ 0
Mótorhjólafólk vekur athygli á heilsu karlmanna
Laugardaginn 12. september fer fram í Reykjavík í níunda sinn, The Distinguished Gentleman’s Ride (Hefðarfólk á Hjólum) sem er hluti af alþjólegum við...
Búið að leggja fram beiðni um gjaldþrotaskipti Novis
📅 10.09.2026 👁️ 0
Búið að leggja fram beiðni um gjaldþrotaskipti Novis
Seðlabanki Slóvakíu, NBS, hefur lagt fram beiðni um gjaldþrotaskipti líftryggingafélagsins NOVIS fyrir slóvakískum dómstól. Þetta kemur fram á vefsíðu...
Kjós­ar­hrepp­ur ít­rek­ar and­stöðu við hænsna­bú
📅 10.09.2026 👁️ 1
Kjós­ar­hrepp­ur ít­rek­ar and­stöðu við hænsna­bú
Matfugl vill reisa allt að tíuþúsund fermetra hænsnabú á Tindstöðum í Eilífsdal í Kjós. Búið gæti hýst allt að 39.900 stofnfugla, og áætluð framleiðsl...
Fæddi barn utan við verslun Elko - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 1
Fæddi barn utan við verslun Elko - Vísir
„Við fengum tilkynningu um það að kona væri að fæða barn utandyra í Skeifunni og við sendum strax tvo bíla af stað. Síðan einni eða tveimur mínútum áð...
200 tonnes of wet wipes removed from sewers in south Tenerife
📅 10.09.2026 👁️ 0
200 tonnes of wet wipes removed from sewers in south Tenerife
An extraordinary 200 tonnes of wet wipes have been removed from the sewage system in south Tenerife so far this year, prompting a renewed warning to r...
Vilja aðgerðaáætlun um að útrýma minki
📅 10.09.2026 👁️ 1
Vilja aðgerðaáætlun um að útrýma minki
Sex þingmenn úr Miðflokki, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki vilja að mótuð verði stefna og aðgerðaáætlun sem miði að því að útrýma minki úr íslen...
Drone display recreates the Twin Towers over New York City
📅 10.09.2026 👁️ 0
Drone display recreates the Twin Towers over New York City
Organisers say each of the 2,977 drones in the display represents a victim of the 9/11 attacks.
Gulur september: Unga fólkið vill meiri samveru og lengri opnunartíma félagsmiðstöðva
📅 10.09.2026 👁️ 0
Gulur september: Unga fólkið vill meiri samveru og lengri opnunartíma félagsmiðstöðva
„Þau eru flest mjög ánægð með sína heimahaga en væru til í til dæmis lengri opnunartíma félagsmiðstöðva. Þau kalla mikið eftir því.“Þetta segir Kolbrú...
Aðdáendur hneykslaðir á Harry Styles vegna óhugnanlegrar vísunar til 11. september - „Hver ​​samþykkti þetta“
📅 10.09.2026 👁️ 0
Aðdáendur hneykslaðir á Harry Styles vegna óhugnanlegrar vísunar til 11. september - „Hver ​​samþykkti þetta“
Harry Styles er gagnrýndur fyrir listaverk á miða á tónleikaferðalagi hans Together, Together sem inniheldur óhugnanlega vísun í 11. september, aðeins...
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Kominn tími til að tengja
📅 10.09.2026 👁️ 0
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Kominn tími til að tengja
Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi árið 2022. Markmið laganna voru að ýmis kerfi sem þjóna börnum tali betur saman. Að börn...
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Þetta reddast!
📅 10.09.2026 👁️ 1
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Þetta reddast!
Það hefur verið forvitnilegt að fylgjast með umræðunni í kjölfar þjóðaratkvæðisgreiðslunnar. Nei-menn fagna afgerandi niðurstöðu, en Já-menn eru með b...
Fyrrum fangi fær ekki flýtimeðferð – Segist hafa orðið fyrir einelti og pyntingum er hann afplánaði þungan dóm
📅 10.09.2026 👁️ 0
Fyrrum fangi fær ekki flýtimeðferð – Segist hafa orðið fyrir einelti og pyntingum er hann afplánaði þungan dóm
Fyrrum fangi telur sig hafa orðið fyrir einelti og ómannúðlegri meðferð í afplánun sinni. Hann hefur höfðað mál til að fá skaðabótaskyldu ríkisins við...
112 milljóna halli hjá Kópavogsbæ
📅 10.09.2026 👁️ 1
112 milljóna halli hjá Kópavogsbæ
Bæjarsjóður Kópavogs og fyrirtæki í eigu bæjarins voru rekin með minni halla en ráð var fyrir gert í fjárhagsáætlun. Hallinn nam 112 milljónum króna á...
Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 1
Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig - Vísir
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, mælti í morgun fyrir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Gert er ráð fyrir að fimm milljarða króna afgangu...
Hrókeringar hjá Framsókn
📅 10.09.2026 👁️ 1
Hrókeringar hjá Framsókn
Jóhann Friðrik Friðriksson og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, sem sátu á þingi fyrir Framsóknarflokkinn á síðasta kjörtímabili, eru orðin starfsmenn ...
Rafbyssu beitt við handtöku 19 ára pilts á Akureyri
📅 10.09.2026 👁️ 1
Rafbyssu beitt við handtöku 19 ára pilts á Akureyri
Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók 19 ára pilt í nótt og beitti rafbyssu við handtökuna. Yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar segir hann hafa ...
Af­koma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 0
Af­koma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með - Vísir
Í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar segir að árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til júní 2026 hafi verið afgreiddur í borga...
Gruffalo Granny illustrator says rise of AI images 'worrying'
📅 10.09.2026 👁️ 0
Gruffalo Granny illustrator says rise of AI images 'worrying'
Axel Scheffler speaks to the BBC alongside author Dame Julia Donaldson, who reads an extract from their new book.
Segist hafa tapað að minnsta kosti þremur milljónum á viðskiptum við Sólarmegin
📅 10.09.2026 👁️ 0
Segist hafa tapað að minnsta kosti þremur milljónum á viðskiptum við Sólarmegin
Maður sem átti í viðskiptum við leigufélagið Sólarmegin, sem leigði út íbúðir á Spáni, segist hafa tapað um þremur milljónum króna. Hann greiddi ársle...
5,5 milljarða halli hjá borginni fyrri hluta árs
📅 10.09.2026 👁️ 0
5,5 milljarða halli hjá borginni fyrri hluta árs
Afkoma Reykjavíkurborgar á fyrri hluta ársins var rúmlega tólf milljörðum króna lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir, samkvæmt árshlutareikningi sem bir...
Reyndi að vara við að flug­vélin færi of hratt - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 0
Reyndi að vara við að flug­vélin færi of hratt - Vísir
Fimm manns sem voru í sendiferðabíl ræstingafyrirtækis létust þegar flutningavél Amazon rann um 400 metra út fyrir enda flugbrautar alþjóðaflugvallari...
Ánægð með fyrstu 100 dagana en segir hagræðingu hvergi nærri lokið
📅 10.09.2026 👁️ 0
Ánægð með fyrstu 100 dagana en segir hagræðingu hvergi nærri lokið
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins hefur lokið öllum verkefnum sem hann stefndi að því að klára á fyrstu hundrað dögum...
Fæddi barn utandyra í Skeifunni
📅 10.09.2026 👁️ 1
Fæddi barn utandyra í Skeifunni
Kona ól barn fyrir utan verslun Elko í Skeifunni um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Þetta staðfestir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu ...
Per­sónu­leg Vala Matt opnar sig um einka­lífið - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 1
Per­sónu­leg Vala Matt opnar sig um einka­lífið - Vísir
Sindri Sindrason kíkti í Bítið á Bylgjunni í morgun til að segja frá nýjustu seríunni af Heimsókn sem hefur verið á skjánum frá árinu 2012. Sindri hei...
Two arrested in London on suspicion of assisting Iran's intelligence service
📅 10.09.2026 👁️ 0
Two arrested in London on suspicion of assisting Iran's intelligence service
Police say the arrests are not connected to incidents linked to Jewish and Iranian communities in London earlier this year.
Reykjavík í mínus og 12 milljörðum frá áætlun á fyrri helmingi árs
📅 10.09.2026 👁️ 0
Reykjavík í mínus og 12 milljörðum frá áætlun á fyrri helmingi árs
Reykjavík í mínus og 12 milljörðum frá áætlun á fyrri helmingi árs Reykja­vík­ur­borg og fyr­ir­tæki henn­ar töp­uðu 5,5 millj­örð­um króna á fyrri he...
Harry Styles extends tour, with Kylie as a support act
📅 10.09.2026 👁️ 1
Harry Styles extends tour, with Kylie as a support act
The pop star will play 25 more dates on his Together, Together tour, including three in the London.
Féllu af þingi en fóru ekki langt - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 1
Féllu af þingi en fóru ekki langt - Vísir
Áður en Jóhann Friðrik og Lilja Rannveig bættust í hóp starfsmanna þingflokksins voru þar fyrir þau Ólafur Reynir Guðmundsson og Lilja Alfreðsdóttir. ...
Hugleikur Dagsson bíður enn eftir fyndnum brandara frá gervigreindinni
📅 10.09.2026 👁️ 0
Hugleikur Dagsson bíður enn eftir fyndnum brandara frá gervigreindinni
Teiknarinn og grínistinn Hugleikur Dagsson segir gervigreind ekki enn skilja húmor og dregur skýra línu á milli þess að nota tæknina sem skapandi verk...
Formaður fjárlaganefndar las það fyrst í frumvarpinu að selja ætti flugstöðina á Húsavík
📅 10.09.2026 👁️ 0
Formaður fjárlaganefndar las það fyrst í frumvarpinu að selja ætti flugstöðina á Húsavík
Heimild er í nýju fjárlagafrumvarpi til að selja flugstöðina á Húsavík. Hugmyndin er komin frá ISAVIA til ríkisins. Rúmt ár er síðan síðast var áætlun...
Ræddi við Kristrúnu um landakort Bandaríkjaforseta
📅 10.09.2026 👁️ 0
Ræddi við Kristrúnu um landakort Bandaríkjaforseta
Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar ræddi við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í gær um landakort sem Donald Trump Bandaríkjaforset birt...
Óttast að færanlegu kennslustofurnar geti orðið varanlegar
📅 10.09.2026 👁️ 1
Óttast að færanlegu kennslustofurnar geti orðið varanlegar
Byggingarleyfi sem byggingarfulltrúinn í Reykjavík gaf út til að reisa tvær færanlegar kennslustofur við leikskóla í Árbæ stendur þrátt fyrir að nágra...
Car bursts into flames on the TF-1 motorway in Tenerife during busy night for firefighters
📅 10.09.2026 👁️ 0
Car bursts into flames on the TF-1 motorway in Tenerife during busy night for firefighters
Firefighters were called to a series of incidents across Tenerife during a busy night that included a vehicle catching fire on the TF-1 and another ca...
Hvað kostar núllið og hver borgar?
📅 10.09.2026 👁️ 1
Hvað kostar núllið og hver borgar?
Hvað kostar núllið og hver borgar? Vara­formað­ur Vinstri grænna skrif­ar um fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Eftir því sem ég skoða nýja ...
Fal­legar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 0
Fal­legar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins - Vísir
Steinn Ármann fæddist í Reykjavík þann 28. október 1964. Foreldrar Steins voru þau Sesselja Björg Helgadóttir, sem lést árið 2006, og Magnús Gunnþórss...