Afkoma Reykjavíkurborgar á fyrri hluta ársins var rúmlega tólf milljörðum króna lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir, samkvæmt árshlutareikningi sem birtur var í dag.
Borgarsjóður og fyrirtæki í eigu borgarinnar voru rekin með samtals 5,5 milljarða halla fyrstu sex mánuði ársins. Gert hafði verið ráð fyrir 6,7 milljarða króna afgangi. Hallinn á borgarsjóði var 3,2 milljarðar króna.
Afkoman á A- og B-hluta borgarinnar, borgarsjóði og fyrirtækjum í eigu borgarinnar, var 10,6 milljörðum króna lakari en á sama tíma í fyrra.
Nokkrir þættir leiddu til verri niðurstöðu en búist var við, samkvæmt tilkynningu borgarinnar til Kauphallarinnar. Verðmat á eignum Félagsbústaða var lækkað um 2,3 milljarða króna og verðbólga varð til þess að fjármagnsgjöld borgarinnar tvöfölduðust næstum, urðu 3,9 milljarðar í stað 2,0 milljarða. Ef litið er til A- og B-hluta voru fjármagnsgjöldin 5,6 milljörðum meiri en á sama tíma í fyrra.
Afskriftir vegna fasteigna til niðurrifs, verkefna sem hefur verið hætt við og hjúkrunarheimila sem áður voru í sameiginlegri eign ríkis og borgar voru 2,0 milljörðum yfir áætlun.