Meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins hefur lokið öllum verkefnum sem hann stefndi að því að klára á fyrstu hundrað dögum kjörtímabilsins. Borgarstjóri fagnar árangrinum en segir uppsagnir starfsfólks hafa verið erfitt verkefni. Frekari hagræðing sé framundan og henni fylgi óhjákvæmlega enn fleiri uppsagnir hjá Reykjavíkurborg.
„Ég er bara ofsalega ánægð með árangurinn,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. „Ég finn að það er gott agatæki að vera með svona lista – bæði að hafa hann fyrir framan sig sjálfan en líka að bjóða almenningi og fjölmiðlum upp á að fylgjast með. Það veitir okkur aðhald.“
31 verkefni er á verkefnalista borgarstjórnar fyrstu 100 dagana og hefur verið hakað við hvert og eitt þeirra á vefnum Verkefnalisti.is.
„Þetta voru auðvitað allt mjög mikilvæg mál,“ segir Hildur. „Við vorum að setja ákveðin leikskóla- og daggæslumál í farveg, hefja samtal við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um samgöngumálin og svo eru það auðvitað grunnskólamálin sem við erum manni mjög ofarlega í huga núna eftir nýjustu PISA-niðurstöður.“
Mikil áhersla verði lögð á grunnskólamálin á næstu misserum.
„Við erum þegar búin í okkar 100 daga áætlun að stíga fyrstu skrefin til að bregðast við; svo sem að innleiða samræmdar mælingar í öllum árgöngum grunnskólans árlega og að setja okkur líka mælanleg markmið um árangur.“
Frekari uppsagnir líklegar
Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg hafa verið mikið til umfjöllunar frá því að nýr meirihluti tók til starfa. Alls hafa í kringum 80 starfsmenn hafa þurft frá að víkja auk fólks sem var boðið annað starf. Tugir stöðugilda voru lagðir niður.
Hildur segir uppsagnirnar vera í samræmi við stefnu sem boðuð var í kosningabaráttunni um að hagræða og draga úr yfirbyggingu.
„Við höfum bara staðið við það sem við sögðumst ætla að gera – við höfum lagt sérstaka áherslu á í þessum verkefnum að draga úr yfirbyggingu en vernda þjónustuna,“ segir Hildur.
Uppsagnirnar hafa verið harðlega gagnrýndar, meðal annars á þeim forsendum að þær bitni á þjónustu.
„Við hagræðum á einum stað til þess að geta bætt í á öðrum og þá get ég nefnt til að mynda að við afgreiddum á okkar 100 daga lista að lengja opnunartíma frístundaheimila og að lengja opnunartíma sundlauga um helgar þannig að við erum auðvitað líka að færa til fé til að geta staðið við loforðin okkar.“
Eru frekari uppsagnir fram undan?
„Við erum með hagræðingarhóp að störfum og hann er núna að fara að rýna næstu svið og næstu tækifæri til að draga úr þróun í borgarkerfinu og það er óhjákvæmilegt að því muni fylgja líka einhverjar breytingar á mannaflanum og mannauðnum.“
Fyrir liggur listi yfir 73 verkefni sem til stendur að klára á fyrstu 12 mánuðum kjörtímabilsins. Hildur á von á að samgöngumálin verði snúin en segir brýnt að ráðast í úrbætur í grunnskólum, ekki síst vegna versnandi frammistöðu íslenskra barna í PISA-könnuninni.
„Við þurfum að líta á stöðuna núna sem ákveðna botnstöðu vegna þess að við höfum aldrei séð íslensk skólabörn mælast eins illa í PISA eins og við sjáum núna þannig að við þurfum að vinna þétt með menntamálaráðuneytinu að aðgerðum til þess að koma svona til lengri tíma skólakerfinu okkar í fremstu röð.“