Bæjarsjóður Kópavogs og fyrirtæki í eigu bæjarins voru rekin með minni halla en ráð var fyrir gert í fjárhagsáætlun. Hallinn nam 112 milljónum króna á fyrri hluta árs en gengið hafði verið út frá 418 milljóna halla.
Þetta kemur fram í tilkynningu Kópavogsbæjar til Kauphallarinnar.
Bæjaryfirvöld rekja hallareksturinn til þess að verðbólga var meiri en spáð hafði verið.
Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 485 milljóna halla á bæjarsjóði en niðurstaðan varð 222 milljónir. Það er sá hluti sem fjármagnaður er með sköttum og gjöldum.