Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur sent frá sér ákvörðun í máli sem hún tók upp að eigin frumkvæði. Varðar það alvarlegt atvik sem varð í gamla kirkjugarðinum í Keflavík að morgni dags í maí síðastliðnum. Þá kviknaði í manni sem lögreglumenn höfðu afskipti af en hann mun hafa verið í andlegu ójafnvægi. Maðurinn hellti yfir sig eldfimum vökva en hann og lögregluna á Suðurnesjum greinir á um hvort hann hafi sjálfur kveikt í sér eða kviknað hafi í honum eftir að lögreglumenn skutu á hann með rafbyssu.
Lögreglan á Suðurnesjum viðurkennir mistök - Máttu ekki fyrirskipa eyðingu myndbands af því þegar kviknaði í manni