Matfugl vill reisa allt að tíuþúsund fermetra hænsnabú á Tindstöðum í Eilífsdal í Kjós. Búið gæti hýst allt að 39.900 stofnfugla, og áætluð framleiðsla rúm 500 tonn á ári.
Kjósarhreppur telur framkvæmdina líklega til að hafa umtalsverð umhverfisáhrif og fer fram á fullt umhverfismat á framkvæmdinni. Kjósarhreppur segir í umsögn sinni að þauleldi af þessu umfangi samrýmist illa kyrrlátu landbúnaðar-, íbúða-, frístunda- og útivistarlandslagi dalsins.
Hreppurinn lagðist alfarið gegn áformum um hænsnabúið vorið 2024, meðal annar vegna aukinnar umferðar, lyktarhættu, og rykmengunar. Hreppurinn ítrekar andstöðu sína í umsögn um matsskyldu.