Fal­legar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins - Vísir

Fal­legar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins - Vísir

Fal­legar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins - Vísir

Steinn Ármann fæddist í Reykjavík þann 28. október 1964. Foreldrar Steins voru þau Sesselja Björg Helgadóttir, sem lést árið 2006, og Magnús Gunnþórsson. Einnig átti Steinn tvo yngri bræður, Halldór fæddan 1967 og Björgvin sem lést árið 1991 tvítugur að aldri.

Steinn lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1989 og vakti athygli á tíunda áratugnum sem annar helmingur Radíusbræðra ásamt Davíð Þór Jónssyni sem einmitt mun jarðsyngja Stein í Víðistaðakirkju í dag.

Ferill Steins var fjölbreyttur. Hann lék á bassa með hljómsveitinni Kátum piltum frá Hafnarfirði og starfaði sem dagskrárgerðarmaður, fyrst á Aðalstöðinni og síðan á Bylgjunni þar sem hann var einn stjórnenda hinna vinsælu útvarpsþátta Radíus, Górillunnar og King Kong.

Hann lék einnig köttinn Kela í Stundinni okkar um árabil sem vann hug og hjörtu yngstu kynslóðarinnar auk annarra smærri hlutverka í ýmsu barnaefni. Hann var annar höfunda jóladagatalsins Klængs sniðuga ásamt Davíð Þór og þá þekkja íslenskir foreldrar og börn rödd Steins býsna vel en hann hefur talsett ógrynni teiknimynda og barnaefnis undanfarin ár.

Auk þess starfaði hann um hríð í reiðhjólaversluninni Erninum og var leiðsögumaður fyrir erlenda ferðamenn á sumrin.

Steinn lætur eftir sig eiginkonuna Jennýju Berglindi Rúnarsdóttur og tvo syni, þá Tuma og Huga.

„Nú er aftur leiðinlegt“

Á meðal þeirra sem minnast Steins Ármanns í Morgunblaðinu í dag er leikkonan Helga Braga Jónsdóttir en þau voru bekkjarfélagar í Leiklistarskólanum og unnu margoft saman í kjölfarið.

„Elsku Steinn Ármann bekkjarbróðir minn, nú er aftur leiðinlegt! Ég leit alltaf á þig sem tvíburabróður minn í leiklistinni, þykkildin eins og við kölluðum okkur í Leiklistarskólanum,“ skrifar Helga Braga og rifjar svo upp að samstarf þeirra tveggja hafi hafist strax eftir útskrift úr LÍ þegar þau léku saman í unglingaþáttunum Ungmennafélaginu á RÚV.

Steinn Ármann vann meðal annars sem leiðsögumaður á hjóli síðustu árin þar sem hann þeyttist um ásamt erlendum ferðamönnum.Vísir/Daníel

Áttu þau eftir að mynda fleiri tvíeyki eins og Kela og Lóu (ó)kurteisu í Stundinni okkar og samkvæmisdansparið Klöru Klein og Olgu Korsikovu?

„Það var alltaf svo auðvelt og skemmtilegt að vinna með þér. Þú hjólaðir oft úr Hafnarfirði til mín í Grafarvoginn þegar við vorum að skrifa saman og ég mátti hafa mig alla við að skrifa því það rann upp úr þér snilldin. Þú varst skarpgreindur, viðkvæmur, hjartahlýr, fyndinn og skemmtilegur með undraverða hæfileika og mér fannst þú alltaf besti leikari í heimi og við dýrkuðum hvort annað.“

„Góða ferð í sumarlandið, elsku fallegi, góði bróðir minn, ég elska þig út fyrir gröf og dauða. Þú varst mér alltaf svo kær og mikilvægur. Við hittumst hinum megin þegar minn tími kemur. Þá verður aftur gaman!“

Leist ekki vel á að leika köttinn Kela

Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir og Steinn unnu saman við gerð þáttanna Stundin okkar á RÚV um árabil. Segir hún samstarf þeirra hafa verið fumlaust.

„Að gæða orð lífi er galdralist sem Steinn Ármann bjó yfir. Hann gaf kettinum mínum, Kela, rödd og karakter sem enginn mun leika eftir, án hans hefði Keli verið mjálmlaus kettlingur,“ skrifar Ásta Hrafnhildur og segir vinskap þeirra hafa byrjað löngu áður en samstarf þeirra á RÚV hófst.

Steini hafi þó ekki í upphafi litist vel á hugmyndina um að leika kött og hélt að hlutverkið fæli í sér að vera klæddur kattarbúningi í fullri stærð. Svo var þó ekki og Ástu tókst að sannfæra Stein um að taka að sér hlutverk Kela.

Ásta og kötturinn Keli í Stundinni okkar.Skjáskot af vef RÚV

„Kötturinn Keli eignaðist strax sjálfstætt líf og varð gríðarlega vinsæll. Honum bárust myndir og bréf frá börnum um allt land sem ég reyndi eftir bestu getu að svara í hans nafni, enda Keli ekkert sérstaklega ritfær köttur. Mesti galdurinn varð þó þegar við komum fram á skemmtunum víða um land.“

„Eftir hróp og köll barnanna ætlaði allt um koll að keyra þegar Keli loksins birtist á sviðinu. Hann skaut höfðinu jafnan leiftursnöggt út um glugga sérstaks kattarkofa og við það ærðust börnin af gleði og spenningi. Á þannig stundum varð ég jafn sannfærð og æstur barnaskarinn um að kötturinn væri alvöru.“

„Og hann fílaði mig ágætlega á móti“

Leikstjórinn Kristófer Dignus skrifar í færslu á Facebook, þar sem hann minnist Steins Ármanns, að hann hafi verið einn besti leikari og mesti töffari sem hann hafi unnið með.

„Þegar við gerðum saman Fólkið í blokkinni, þar sem hann brilleraði sem hinn breyski Robbi húsvörður, áttaði ég mig á hversu næmur, djúpur og hæfileikaríkur listamaður var þarna á ferð. Breidd hans sem leikara veitti mér innblástur og hann fílaði mig ágætlega á móti.“

Steinn lék húsvörðinn Robba í þáttunum Fólkið í blokkinni.

Jafnframt skrifar Kristófer að þeir hafi verið byrjaðir að þróa sjónvarpsseríu þar sem Steinn átti að leika markalausan og útbrunninn blaðamann með stórt hjarta og sterka siðferðiskennd.

„Ég er handviss um að hann hefði rúllað því hlutverki upp og fengið öll þau verðlaun sem í boði eru.“

„Þessi kvikmynd hefði aldrei náð landi nema vegna þessa hetjumóðs“

Leikarinn og leikstjórinn Benedikt Erlingsson birtir mynd á Facebook frá myndinni Hross í oss sem Benedikt leikstýrði. Benedikt skrifar að mikið hafi gengið á við gerð myndarinnar og hver dagur hafi verið upp á líf og dauða fyrir útkomuna og margar hetjur hafi lagt sitt af mörkum.

Steinn Ármann við tökur á myndinni Hross í Oss sem leikstjórinn Benedikt Erlingsson segir Stein hafa bjargað.

„Í mínum huga var Steinn Ármann stóri bjargvætturinn. Það er greypt í minni mitt þegar hann tók stökkið á eftir hestinum sem hafði fallið á milli skips og palls og synti með hann til lands. Þessi kvikmynd hefði aldrei náð landi nema vegna þessa hetjumóðs.“

Magnús Scheving, sem titla mætti Herra Latabæ, minnist Steins Ármanns í færslu á Facebook en þeir kynntust þegar þeir unnu saman að leiksýningunni Áfram Latibær í Loftkastalanum og síðar Þjóðleikhúsinu. Þar lék Steinn hlutverk Sigga Sæta á eftirminnilegan hátt. Magnús segir hann hafa verið frábæran leikara og einn þann besta sem hann hafi unnið með.

Steinn í hlutverki Sigga Sæta en Steinn og Magnús Scheving léku saman í yfir 400 Latabæjarsýningum og ferðuðust saman um allt land.

„Leikarinn Steinn Ármann kom mér stanslaust á óvart. Hann hafði endalaust gaman af því að reyna að láta mig detta úr karakter á sviðinu. Hann hafði einstakt lag á því að lesa salinn og pota svo drepfyndnum línum að áhorfendur veltust um úr hlátri og ég átti í mesta basli með að gera það ekki líka. Útgeislun hans fangaði athygli áhorfendanna og húmor hans fékk alla til að hlæja. Hann var gæddur þeim einstaka eiginleika að húmorinn flæddi náttúrulega af vörum hans,“ skrifar Magnús.

Örlagaríkt skíðaferðalag

Engilbert Sigurðsson geðlæknir rifjar upp góða tíma með vini sínum.

Engilbert birtir þessa mynd af vini sínum heitnum.

„Við vorum bestu vinir í ein 5-6 ár í frumbernsku, saman flestum stundum á mótunarskeiði eftir að fjölskyldur okkar fluttust á Krókahraun 12 í Hafnarfirði, árið sem við urðum fjögurra ára. Við klifruðum saman í klettunum í hrauninu, tókum þátt í bardögum við drengi af Arnarhrauni, einu sinni meira að segja teknir til fanga og bundnir í bragga í nokkra tíma; við hjóluðum mikið um nágrennið og fundum upp á ýmsu, börn voru jú mun meira úti en inni á þessum tíma,“ segir Engilbert. 

„Við lærðum að lesa og lásum Tinnabækurnar og Ástríksbækurnar upp til agna, oft í sama herbergi og deildum þá iðulega upphátt krassandi setningum Kolbeins kafteins og Steinríks og hlógum dátt og lengi. Það gerðum við einnig eftir að hafa þynnt áfengi í flöskum hressilega eitt gamlárskvöldið með vatni þegar okkur fannst karlarnir búnir að fá sér fullmikið í tánna.“

Engilbert minnist foreldra Steins þeirra Sesselju og Magnúsar með mikill hlýju.

„Enn er mér í minni frásögn hans þegar þau fjölskyldan voru sem oftar á leiðinni til Borgarfjarðar eystra og brutust yfir heiðar í ófærð á Saab 99 sem hann þurfti að ýta í gegnum hvern skaflinn á fætur öðrum - það nægði og enginn bíll þurfti að draga Saabinn í þessari svaðilför.“

Svo rifjar Engilbert upp afdrifaríkt ferðalag í gagnfræðiskóla.

„Það var í skíðaferðalagi í gagnfræðaskóla að Steini ákvað að byrja að deila ríkulegri en stundum svolítið groddalegri kímnigáfu sinni í eins konar uppistandi með Davíð Þór. Seinna meir urðu þeirra bestu „sketchar“ á heimsmælikvarða hvað varðar handrit, tímasetningar og hugmyndaauðgi. Við sem kveðjum Steina í dag getum og eigum að rifja upp þær mörgu og góðu minningar sem við eigum frá samskiptum við hann og af tilsvörum hans meðan og þegar heilsa hans var góð og hann fær um að stjórna sínu fleyi. Ég votta fjölskyldunni samúð á afar erfiðri kveðjustundu.“

Leirburður fyrir fjórum áratugum

Friðrik Hilmarsson kvikmyndagerðarmaður minnist vinar síns.

„Steinn Ármann var hjólreiðaforkur, skiðagarpur, stæltur og sterkur töffari. Hann var minn best man.“

Hann rifjar upp leirburð sem kom fyrir rúmum fjörutíu árum við eldhúsborðið hjá Sellu og Magga, foreldrum Stein.. Það hafi átt við þá, eigi við núna og inn í eilífðina.

Vinirnir Friðrik og Steinn.

„Þú ert mér sem skínandi sólin

Hafið og fjöllin..... og blómin

Steinn Ármann Magnússon heitirðu kallinn“.

Atli Steinn Grétarsson leikmyndahönnuður minnist Steins með fallegri mynd og einföldum texta.

„Þetta er algjörlega glatað.“

#fallegar #kveðjur #meistara #sögur #ósagðar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262932911d/fal-legar-kvedjur-og-osagdar-sogur-af-meistara-grinsins

📰 Aðrar fréttir

Þúsund ára mynt seld á 2,5 milljónir íslenskra króna
📅 28.10.2026 👁️ 2
Þúsund ára mynt seld á 2,5 milljónir íslenskra króna
Þúsund ára gömul mynt frá tíma danska konungsins Sveins tjúguskeggs, sonar Haraldar blátannar, var seld á uppboði á þriðjudag fyrir 18.300 evrur, eða ...
Luxury cruise passengers stranded in Cambodia due to soaring fuel costs
📅 28.10.2026 👁️ 2
Luxury cruise passengers stranded in Cambodia due to soaring fuel costs
The Villa Vie Odyssey suspends its voyage and is working with passengers on "temporary living arrangements".
Neil Young sues Trump for playing Rockin' in the Free World at a rally without a licence
📅 28.10.2026 👁️ 2
Neil Young sues Trump for playing Rockin' in the Free World at a rally without a licence
The Canadian-American musician sued Trump in 2020 over unauthorised use of song at a political event.
100 þúsund flýja undan fellibylnum Arnab
📅 28.10.2026 👁️ 3
100 þúsund flýja undan fellibylnum Arnab
Hátt í 100 þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín á suðausturströnd Indlands eftir að hitabeltisfellibylurinn Arnab kom að landi í dag. Fel...
Israeli exit polls suggest no clear winner in pivotal general election
📅 28.10.2026 👁️ 3
Israeli exit polls suggest no clear winner in pivotal general election
Two polls project that veteran PM Benjamin Netanyahu and former military chief Gadi Eisenkot are tied, with neither winning a majority.
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
📅 28.10.2026 👁️ 2
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
Forsetaframbjóðandinn Flávio Bolsonaro, sem laut í lægra haldi í forsetakosningunum sem haldnar voru í Brasilíu á sunnudaginn, hefur flúið land.Bolson...
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
📅 28.10.2026 👁️ 2
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
After storms across the UK, the weather is set to turn calmer with mist and fog at times over the coming week.
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
📅 28.10.2026 👁️ 3
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
AI has made some awesome scientific discoveries. But now, questions are being raised about its accuracy
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
📅 28.10.2026 👁️ 2
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
Polls have closed in the Israeli election, but there is no clear winner.
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
„Það er ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Það er...
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
Bolsonaro hefur enn ekki formlega játað ósigur í kosningunum sem fóru fram um helgina. Flokkur hans, Frjálslyndisflokkurinn, hefur þó viðurkennt sigur...
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
Á eina fallbyssuna eru skilaboð sem hafa verið þýdd sem: „Gereyðið bandarísku heimsvaldasinnunum, svornum óvinum kóresku þjóðarinnar.“ Talið er að Nor...
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
📅 27.10.2026 👁️ 3
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
Texasmaðurinn Garrick Stafford hafði varið heilu sumri í að skiptast á skilaboðum við dömu sem hann kynntist á netinu, rauðhærðan förðunarfræðing að n...
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
📅 27.10.2026 👁️ 3
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
Fimmtug kona í Flórída fylki í Bandaríkjunum hefur verið handtekin fyrir alvarlega vanrækslu fjögurra barna sinna. Skildi hún þau ein eftir heima á me...
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
Neyð á Kúbu hefur aukist eftir að Bandaríkjastjórn herti í ársbyrjun á viðskiptabanni sem hefur verið í gildi í yfir sex áratugi. Á Allsherjarþingi Sa...
Brúin leggur af stað yfir ána
📅 27.10.2026 👁️ 4
Brúin leggur af stað yfir ána
Það tekur um tíu daga að draga nýja Ölfusárbrú yfir ána, á sinn stað. Ferðalagið nemur 330 metrum og hún fer um fimm metra á klukkustund.Brúin var smí...
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
📅 27.10.2026 👁️ 3
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
Uppistandarinn sprenghlægilegi Sarah Millican gerir stólpagrín að viðbrögðum Íslendinga við heiti á sýningunni hennar þegar hún kom fyrst til landsins...
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
„Við vorum að fylgja eftir samtali sem við áttum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu en þessi sami hópur, forsæti...
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
„Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurbor...
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
📅 27.10.2026 👁️ 3
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
As the US president casts doubt on the security of the midterm elections, BBC Verify examines his claims.
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var ein þeirra sem sagt var upp hjá Reykjavíkurborg í dag. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook.Hildur hafði star...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
Þingkosningarnar 3. nóvember gætu ráðið því hvort Donald Trump fær að fara sínu fram næstu tvö árin eða hvort bandaríska lýðveldið veitir honum loksin...
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
📅 27.10.2026 👁️ 4
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
Erlendir ferðamenn eru rjúkandi reiðir eftir að hafa leigt bílaleigubíl á Íslandi. Dekkin voru í svo slæmu ástandi að þrjú þeirra sprungu á stuttum tí...
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
Fjárfestingar gagnaveranna hafa mikil áhrif á allar hagtölur. Í greiningu Óskars Hrafnssonar, hjá Greiningu Íslandsbanka, sem kom út í dag kemur fram ...
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn, en að um er að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda....
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
📅 27.10.2026 👁️ 3
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
The trio - two of whom were high-profile US real estate moguls - were found guilty using their social status to lure women to parties and then raping ...
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
📅 27.10.2026 👁️ 4
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
Hvorki meirihluti Benjamíns Netanyahu forsætisráðherra né stjórnarandstöðublokk Gadis Eidenkot geta myndað þingmeirihluta samkvæmt útgönguspám í Ísrae...
Trump stóreykur losun metans
📅 27.10.2026 👁️ 4
Trump stóreykur losun metans
Trump stóreykur losun metans Banda­ríkja­for­seti losar um reglur sem eiga að hindra að metan ber­ist í and­rúms­loftið við olíu­vinnslu. Efnið veldur...
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun katörsku fréttaveitunnar Al Jazeera en þar segir einnig að samkvæmt ísraelsku sjónvarpsstöðinni Channel...
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
📅 27.10.2026 👁️ 4
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
The truce was originally planned for the stranded residents of Oleshky, and Russia and Ukraine say no breaches have been reported.
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
📅 27.10.2026 👁️ 4
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
Við sitjum í stofu í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Fjölmargar myndir af ungum manni prýða þar veggi og borð.„Hann var náttúrulega alveg ótrúlega skemmti...
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
📅 27.10.2026 👁️ 4
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
The King is on a nine-day tour that will take him to three countries, including the Bahamas, Guyana and Antigua and Barbuda.
Bahamas: King Charles acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
📅 27.10.2026 👁️ 3
Bahamas: King Charles acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
The King is on a nine-day tour that will take him to three countries, including the Bahamas, Guyana and Antigua and Barbuda.
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
Sveinn R. Eyjólfsson, einn stofnandi fjölmiðlanna Vísis.is, Fréttablaðsins, DV og Dagblaðsins, er látinn, 88 ára að aldri.Hann lést á Landspítalanum l...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
📅 27.10.2026 👁️ 3
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
Hvað gerist þegar valdamesta fólk heims sýnir með orðum sínum og hegðun að það sé í lagi að niðurlægja aðra, hóta þeim eða ala á tortryggni gagnvart h...
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
Elín Eyþórsdóttir og Zöe Ruth Erwin skipa hljómsveitina. Þær hafa báðar skapað tónlist hvor í sínu lagi og í öðrum hljómsveitum um árabil en hafa fund...
Lúðvík fannst ekki
📅 27.10.2026 👁️ 4
Lúðvík fannst ekki
Líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður í sprungu í Grindavík árið 2024, fundust ekki í leitaraðgerðum sem ráðist var í. Þeim verður ekki hal...
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
📅 27.10.2026 👁️ 3
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
Authorities in Utah used advanced DNA technology to solve the cold case decades after the notorious killer was executed.
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segist hafa fengið uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg í miðju ferðalagi erlendis, eftir átján og hálfs árs starf. Hún l...
Hildi sagt upp hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildi sagt upp hjá borginni
Hildi sagt upp hjá borginni Hildur Lilliendahl Mynd: Instagram Baráttukonan og verkefnastjórinn Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var á leið til útlanda...
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
📅 27.10.2026 👁️ 4
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
Support on the cost of living, and in particular energy bills, as well as announcments on devolution will be central to John Healey's first Budget.
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
📅 27.10.2026 👁️ 3
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
📅 27.10.2026 👁️ 4
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans h...
280 milljónir í sekt vegna milligöngu um markaðssvik
📅 27.10.2026 👁️ 3
280 milljónir í sekt vegna milligöngu um markaðssvik
Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans h...
Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið - Vísir
Í tilkynningu frá lögreglu þess efnis segir að aðgerðin hafi staðið yfir í sjö og hálfa klukkustund og fól meðal annars í sér að  tveir leitarmenn sig...
Allar helstu uppljóstranirnar í heimildarmynd Netflix um Matthew Perry
📅 27.10.2026 👁️ 3
Allar helstu uppljóstranirnar í heimildarmynd Netflix um Matthew Perry
Gæti nýja heimildarmyndin á Netflix um Matthew Perry verið sorglegri? Höskuldarviðvörun: Ef þú vilt ekki lesa hvað kemur fram í Netflix þriggja þátta ...
Dýna í golfhermi og 70 milljóna hagnaður
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dýna í golfhermi og 70 milljóna hagnaður
Fyrrverandi starfsmenn einkarekins búsetuúrræðis fyrir börn með fjölþættan vanda segja eigendurna spara í þjónustu við börnin á meðan þeir hagnist sjá...