Heimild er í nýju fjárlagafrumvarpi til að selja flugstöðina á Húsavík. Hugmyndin er komin frá ISAVIA til ríkisins. Rúmt ár er síðan síðast var áætlunarflug um völlinn. Hann gegnir enn lykilhlutverki í sjúkraflugi.
„Þetta er bæði byggða- og öryggismál myndi ég segja, að hafa völlinn og þar með aðgengi að flugstöðinni, að það sé í lagi. Við verðum alveg vör við það að aðilar sem eru að koma að kynna sér aðstæður hérna séu að fljúga um Aðaldalsflugvöll,“ segir Helena Eydís Ingólfsdóttir, formaður byggðarráðs Norðurþings.
Formaður fjárlaganefndar hissa
Ríkið á flugstöðina og ISAVIA sér um rekstur hennar. Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar Alþingis og þingmaður Norðausturkjördæmis, hafði engin svör við því hvers vegna ætti að selja flugstöðina þegar fréttastofa leitaði eftir þeim. Hann hefði lesið þetta fyrst í fjárlagafrumvarpinu og grunaði að hugmyndin væri komin frá ISAVIA.
Að sögn Sigurjóns snýst þetta um innviði ríkisins og nýtingu á fasteignum. Mikil viðhaldsþörf er á flugstöðinni. Hann telur ekki skynsamlegt að selja flugstöðina og er ósáttur við viðhaldsleysi ISAVIA, sem er treyst fyrir innviðum ríkisins. ISAVIA hafi ekki farið í neitt fyrirbyggjandi viðhald á húsnæðinu þegar hætt var áætlunarflugi um völlinn en vatn leki inn víða í byggingunni.
Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla ISAVIA, segir ekki vitað hvað mikið sparast með sölu flugstöðvarinnar. Ekkert mat hafi farið fram á því. „Þetta er eingöngu tillaga frá okkur. Þarna erum við með flugstöð, 600 fermetrar að stærð, sem er ekki í notkun hjá okkur. Hún er í mjög slæmu ásigkomulagi. Ef flug myndi hefjast til Húsavíkur að nýju þá myndum við stilla upp litlu einingahúsi eða þessháttar. Við höfum einfaldlega ekki fjármuni til þess að fara í viðgerðir á þessu húsi,“ segir Sigrún.
ISAVIA sér ekki neitt áætlunarflug um völlinn í náinni framtíð
Sigurjón er ekki viss um ágóðan af því að selja flugstöðina og segist vilja halda öllum möguleikum opnum með flugstöðina á Húsavík enda er oft erfitt að fara af stað aftur þegar að búið er að skella í lás. Flugvöllurinn hafi svo sannarlega sannað notagildi sitt undanfarna áratugi þegar kom að uppbyggingu bæði á Bakka og Þeistarreykjum.
Sigrún Björk segir að ekkert samtal hafi átt sér stað við ráðherra eða ríkisstjórn um þessa tillögu þeirra. „Það var það fyrst og fremst sem vakti fyrir okkur var að nýta þetta hús ríkisins betur. Meðan er ekkert flug er um flugvöllinn eru engin not fyrir þessa flugstöð. Ég sé það ekki í náinni framtíð að flugrekendur á Íslandi hefji flug um þessa flugstöð.“