Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi árið 2022. Markmið laganna voru að ýmis kerfi sem þjóna börnum tali betur saman. Að börn og fjölskyldur fái aðstoð fyrr og þurfi ekki sjálf að bera ábyrgð á því að tengja saman skóla, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og barnavernd.Í júní birti Ríkisendurskoðun gagnrýna skýrslu um innleiðinguna. Þar kemur meðal annars fram að hún hafi gengið hægar en áætlað var og verði ekki lokið innan þeirra fimm ára tímamarka sem upphaflega var gert ráð fyrir.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Kominn tími til að tengja