Byggingarleyfi sem byggingarfulltrúinn í Reykjavík gaf út til að reisa tvær færanlegar kennslustofur við leikskóla í Árbæ stendur þrátt fyrir að nágrannar hafi reynt að fá það fellt úr gildi.
Íbúar sem búa nærri leikskólanum Árborg töldu að réttindi þeirra hefðu ekki verið virt og sögðu að færanlegu kennslustofurnar væru ekki færanlegri en svo að niðurrif þyrfti til að losna við þær og að húsin gætu nýst í áratugi.
Byggingarfulltrúi gaf tvisvar út byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við leikskólann. Fyrra leyfið var afturkallað og nágrönnum gefið færi á að gera athugasemdir við fyrirhugaða byggingu. Að því loknu var nýtt byggingarleyfi gefið út.
Kærðu leyfisveitinguna
Íbúar í einu húsi í nágrenninu kærðu útgáfu byggingarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Íbúarnir töldu að andmælaréttur þeirra hefði aðeins verið veittur til málamynda og ekki hefði verið komið til móts við athugasemdir þeirra. Fólkið sagði að byggingarfulltrúi hefði í reynd verið að fjalla um sína eigin fyrri ákvörðun og slíkt væri óeðlilegt.
Loks gerði fólkið athugasemd við að talað væri um færanlegar kennslustofur. Það sagði að umfangsmikil vinna hefði farið fram við gerð húsgrunns, sem fæli meðal annars í sér steypt mannvirki. Fólkið sagði að fyrir lægi að hinar svokölluðu færanlegu kennslustofur yrðu ekki fjarlægðar nema með niðurrifi. Þetta væru í raun byggingar sem væri ætlað að standa til langs tíma, jafnvel áratuga.
Hægt að hífa kennslustofurnar og fjarlægja
Reykjavíkurborg tók til varna. Hún vísaði því á bug að endurupptaka byggingarleyfisins hefði verið til málamynda og sagði að öllum athugasemdum hefði verið svarað með rökstuddum hætti.
Fulltrúar borgarinnar neituðu því einnig að færanlegu kennslustofurnar væru í raun varanleg mannvirki. Þeim hefði verið komið fyrir samkvæmt byggingarleyfi sem heimilaði færanlegar kennslustofur og tengibyggingar. Hönnunin væri þannig að hægt væri að hífa byggingarnar á brott því þær væru hvorki festar varanlega við land né steyptan grunn.
Enn fremur hafnaði borgin því að byggingarfulltrúinn hefði verið vanhæfur vegna fyrri aðkomu sinnar.
Kæru nágrannanna hafnað
Nefndarmenn höfnuðu kæru fólksins. Þeir sögðu að byggingarfulltrúi hefði fært málefnalegan rökstuðning sinn fyrir útgáfu byggingarleyfisins, þar á meðal um hvar á leikskólalóðinni nýju kennslustofurnar ættu að vera. Nefndarmenn sögðu byggingarfulltrúann verða vanhæfan af þeirri ástæðu einni að hann hefði áður tekið stjórnvaldsákvörðun um sama efni.
Nefndin sagði líka hægt að fjarlægja byggingarnar með hægum hætti.