Reykjavík í mínus og 12 milljörðum frá áætlun á fyrri helmingi árs
Reykjavíkurborg og fyrirtæki hennar töpuðu 5,5 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins, þótt áætlun gerði ráð fyrir 6,7 milljarða afgangi. Verðbólga og hærri fjármagnsgjöld höfðu neikvæð áhrif. Daglegur rekstur gekk þó betur.
Reykjavíkurborg og fyrirtæki hennar skiluðu 5,5 milljarða króna tapi á fyrstu sex mánuðum ársins. Í fjárhagsáætlun hafði hins vegar verið gert ráð fyrir 6,7 milljarða króna rekstrarafgangi og er niðurstaðan því um 12,2 milljörðum lakari en áætlað var.
Þetta kemur fram í árshlutareikningi Reykjavíkurborgar fyrir janúar til júní, sem afgreiddur var í borgarráði í dag. Í tilkynningu frá borginni er haft eftir Hildi Björnsdóttur að niðurstöðurnar sýni glöggt hve mikilvægt sé að ná stjórn á rekstri borgarinnar.
„Enda er ekkert sem ógnar grunnþjónustunni meira en óábyrgur rekstur. Við höldum áfram vinnunni í hagræðingarhóp og leggjum áherslu á að auka skilvirkni, draga úr sóun og bæta þjónustuna,“ er haft eftir borgarstjóranum.
Niðurstaðan á fyrri hluta árs er jafnframt mun verri en á sama tímabili í fyrra. Rekstrarniðurstaða samstæðu borgarinnar, A- og B-hluta, var 10,6 milljörðum króna lakari en á fyrri helmingi ársins 2025.
Daglegur rekstur gekk þó betur. Rekstrarafkoma fyrir …