Undanfarin ár hefur skíðasvæðið í Skarðsdal verið rekið af L7 verktökum á Siglufirði. Bærinn gerði rekstrarsamning við L7 sem tryggði ákveðið rekstrarfé. Sá samningur rann út í vor og var auglýst eftir umsóknum um reksturinn. Á fundi bæjarráðs í Fjallabyggð í síðustu viku var ákveðið að hafna öllum umsóknunum og að bærinn myndi sjálfur sjá um rekstur svæðisins.
Tómas Atli Einarsson, fulltrúi minnihlutans í bæjarráði, er verulega ósáttur við ákvörðunina. Hann telur að áformin gangi gegn samþykktri stefnu Fjallabyggðar í íþróttamálum sem gerir ráð fyrir að útvista eigi heildarumsjón íþróttasvæða til félaga eða verktaka með það að markmiði að nýta sérþekkingu. Hann bendir einnig á að meirihlutinn hafi ekki sýnt fram á af hverju umsóknunum er hafnað og af hverju talið sé hægt að tryggja hagkvæmari og farsælan rekstur svæðisins.
Meirihlutinn sakar minnihlutann um lýðskrum
Fulltrúar meirihlutans, Helgi Jóhannsson og Jóhann K. Jóhannsson, eru ekki sammála gagnrýni Tómasar og segja að það eina sem vaki fyrir þeim sé að tryggja góðan og glæsilegan rekstur í Skarðsdal.
„Leggist gegn fyrri gjörðum með lýðskrumi“
Þá segir í bókun meirihlutans: „Hið eina sem vakir fyrir meirihlutanum er að tryggja góðan og glæsilegan rekstur á skíðasvæðinu og því er miður að fulltrúi D-listans leggist gegn fyrri gjörðum með lýðskrumi. Bæjarfulltrúar meirihlutans gera þá lágmarkskröfu að fulltrúi D-listans í bæjarráði sé samkvæmur sjálfum sér og noti ekki grunnsamfélagsþjónustu til þess að reyna að fella pólitískar smákeilur.“
Til samanburðar má nefna að á Dalvík sér skíðafélagið um rekstur skíðasvæðisins, með rekstrarsamning við Dalvíkurbyggð. Á Akureyri sér sveitarfélagið um rekstur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli en háværar umræður sköpuðust í kosningabaráttunni fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor um að Skíðafélag Akureyrar myndi taka yfir reksturinn.