Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ - Vísir

Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ - Vísir

Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ - Vísir

Sex eru ákærð fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti frá 19. apríl til 22. apríl árið 2024. Aðalmeðferðin hófst á mánudag og stendur til að hún verði fram í næstu viku.

Fyrstu tvö vitnin voru tveir starfsmenn Símans sem segjast hafa tekið á móti tveimur ákærðu, Andra Má Mortensen Birgissyni og Ingunni Rut Sigurðardóttur og svo brotaþola í verslun Símans mánudaginn 22. apríl 2024. 

Samkvæmt ákærunni á brotaþoli að hafa verið frelsissviptur föstudaginn áður. Að sögn vitnanna var tilgangur heimsóknarinnar að setja upp rafræn skilríki í síma brotaþola. Annað vitnið tók á móti þeim en það seinna sá til þess að búa til rafrænu skilríkin að þeirra sögn.

„Það kemur einstaklingur að mér og sagði að hann væri með stjúppabba sinn,“ segir fyrra vitnið og bætir við að tekið hafi verið fram í samtalinu að stjúpfaðirinn væri veikur.

Starfsmaðurinn hafi því búið til rafræn skilríki, gefið brotaþola blað til að skrifa undir en ekki horft á það hver hafi búið til þau og stimplað inn númerið í síma brotaþola.

„Ég hef þá reglu að horfa á skjáinn minn því að fólki finnst venjulega óþægilegt þegar þú ert að horfa á þau þegar þau eru að gera þetta,“ sagði vitnið.

Hvorugt vitnið tóku eftir einhverjum áverkum á brotaþola. 

Óvanalegt að fá SMS-skilaboð

Karlmaður, sem var yfirmaður brotaþola á þessum tíma og er enn, gaf einnig skýrslu fyrir dómara. Við upphafið bætti hann við að Sigurður Gunnar Ásgeirssson, einn ákærðu og fyrrverandi leigusali brotaþola, og eiginkona hans hefðu áður einnig starfað hjá honum.

Yfirmaðurinn segir að hann hafi fengið SMS-skilaboð úr síma brotaþola á mánudagsmorgni sem hafi verið mjög undarlegt þar sem þeir sendu aldrei slík skilaboð sín á milli. Hann hafði strax einhverjar áhyggjur þar sem að brotaþli hafði þegar sagt honum frá því að Andri Már hefði heimsótt brotaþola vikuna áður og haft í hótunum.

„Á mánudeginum finnst mér þetta mjög skrýtið og ég hélt því við vorum búin að vera hvetja hann vikuna á undan að fara til lögreglunnar og tilkynna þetta með Andra svo það væri skráð,“ segir yfirmaðurinn.

Eftir vinnu á þriðjudeginum hafi hann ásamt konunni sinni því heimsótt heimili brotaþola og þar mætt Sigurði fyrir utan. 

„Hann Sigurður var frekar sjúskaður og út úr heiminum. Ég gekk á hann strax og spurði: hvað gerðir þú við [brotaþola]?“

Bíll brotaþola hafi ekki verið í hlaðinu og drasl fyrir utan íbúðina, þar á meðal eldavél, sem alla jafna var ekki. Sigurður hafi neitað öllu og sagst síðast hafa heyrt í brotaþola í sturtu á föstudagskvöldinu. 

„Sigurður Gunnar sagðist ekkert kannast við þetta en fer samt afsíðis í símann og mig grunar, eða hvort ég hafi spurt hann ú tí samskipti milli Andra og hans. Ég sagði hversu asanalegt það væri að senda tengdasoninn til að handrukka,“ sagði yfirmaðurinn.

„Ég get ekki fullyrt það en mig minnir ða fyrir þennan atburð að [brotaþoli] hefði minnst á það að Sigurður Gunnar hafi séð á tölvunni hans þar sem bankareikningurinn hans var opinn.“

Eftir þetta allt hafi hann forðast Sigurð eftir allra bestu getu.

Sigurður ekki hagað sér líkt og venjulega

Hann, ásamt tveimur vinkonum brotaþola, hafi hafið leit, haft samband við dóttur brotaþola sem er búsett í Möltu og hún staðfest að enginn fjölskyldumeðlimur hefði heyrt í honum frá því á föstudeginum, eitthvað sem væri mjög óvenjulegt.

Báðar vinkonurnar gefa einnig vitnaskýrslu fyrir dómi. Þær lýsa því að þær hafi, á eftir yfirmanninum, farið að heimili Sigurðar og reynt að hafa uppi á brotaþola.

„Ég geng í áttina að gróðurhúsunum og hann gengur fyrir sig og gerir sig stórann. Hann er venjulega glaðhlakkalegur maður,“ segir fyrri vinkonan um Sigurð.

Hún þekki Sigurð og telur að hann hafi hagað sér mjög óeðlilega. Sigurður neitaði að hafa hitt brotaþola og sagðist telja hann að hafa farið heim til Möltu. Vinkonurnar segjast hafa rætt í svolítinn tíma við Sigurð en ekki fengið neitt ítarlega upp úr honum.

Yfirmaðurinn segist hafa haft samband við dóttur brotaþola og síðan við lögregluna. 

Illa á sig kominn

Seinni vinkonan segir að hún og brotaþoli hafi oft keyrt saman á leið í vinnuna. Brotaþoli hafi síðan haft samband við hana þegar hann var kominn aftur til Íslands eftir allt saman og dvalið þá á Hótel Selfoss.

„Þegar hann hringdi í mig og bða um aðstoð gat hann varla talað. Hann komst ekkert í apótekið að ná í lyfin,“ segir hún.

„Hann var mjög illa farinn og illa á sig kominn, ég ætlaði að vera þarna í stutta stund en var í sólarhring.“

Hún hafi reynt að fá brotaþola til að borða en hann hafi nánast ekkert borðað. 

Handtekinn því hann var stór og sköllóttur

Starfsmaður Landsbankans gaf einnig skýrslu og sagði að Sigurður og Ingunn hefðu komið í útbúi bankan í Reykholti s á mánudeginum eftir helgina og reynt að fá lykilorðið að bankareikningi brotaþola.

Starfsmaðurinn neitaði því hins vegar og sagði að brotaþoli þyrfti að mæta á staðinn, þrátt fyrir að Sigurður hefði sagt hann vera of veikan til að mæta.

Systir Ingunnar var einnig kölluð fyrir dómara en hún neitaði að tjá sig um systur sína og fyrrverandi stjúpföður sem hún hefur rétt á. Því var hún ekki spurð neinnar spurningar.

Þá tók við vitnisburður kunningja Andra og Ingunnar á þessum tíma. Aðspurður hvað hann viti um málið segist hann ekki vita neitt en hafi verið handtekinn vegna þess þegar hann var á leiðinni erlendis.

„Ég kom ekki nálægt þessu neitt. Ég var handtekinn því ég átti að vera stór og sköllóttur,“ sagði vitnið og uppskar smá hlátur í salnum.

„Miðað við það sem þau sögðu við mig á þessum tíma var það einnar sekúndu símtal eða hvað það var. Ég hef verið sofandi eða að koma heim af vakt og skellt á.“

Hann segist hafa þekkt Andra á þessum tíma en þeir hafi ekki talað saman í lengri tíma. Á þeim tíma hafi hann hagað sér líkt og hann væri „karlakarl“.

„Þau eru að tala við hann“

Kunningjakona Sigurðar Gunnars og eiginkonu hans gefur skýrslu næst en dætur þeirra eru vinkonur og dvöldu hjá vitninu umrædda helgi.

Vitnið rifjar upp samtöl sem hún átti við Sigurð og eiginkonu hans þessa helgi en eiginkona Sigurðar hafði samband við kunningjakonuna á laugardeginum og beðið um að dætur þeirra myndu gista.

Það hafi verið þvert á fyrri áætlanir en sagði eiginkonan að þau væru í vandræðum með leigjandann og þyrftu mögulega að kalla til lögreglunnar. Vitnið segist hafa hvatt þau til að fara lögreglunnar.

Þau hittust síðan öll saman á Selfossi um daginn og hafi þau rætt óþægileg skilaboð sem brotaþoli á að hafa sent á eiginkonu Sigurðar.

„Hann var að senda eitthvað svona góða nótt systir og sefur þú í náttfötum? Hún sagði að hún hefði eytt þessum skilaboðum því henni fannst þau svo óþægileg,“ sagði vitnið.

Einnig tekur hún undir það sem hún sagði í skýrslutöku um að hjónin sögðu henni að Andri hefði verði að ræða við brotaþola.

„Þau eru að tala við hann,“ á Sigurður að hafa sagt.

„Hvað á ég að segja, sannleikurinn er lyginni líkastur,“ segir vitnið undir lok vitnisburðarins.

Núverandi maki og fyrrverandi kærastan mættar

Núverandi maki Péturs Más mætir fyrir dóm til að tala um þessa daga. Hán segir að Pétur hafi komið heim til háns á föstudag og gist þar. Þau hafi bæði vaknað við símhringingu um nóttina og Pétur þá farið. 

„Pétur hringir aftur í mig á laugardag og er eitthvað rosalega kvíðinn,“ segir makinn.

Hann hafi komið á heimili háns og gist þar en verið farinn þegar hán vaknaði. Hán játar að Pétur hafi millifært pening og segir það vegna þess að vitnið hafi lánað Pétri pening fyrir sekt. 

Kærasta Péturs á þessum tíma kom einnig fyrir dómara og segist ekki muna eftir miklu á þessum tíma. 

Hún segir að Pétur hafi reynt að kaupa fyrir hana síma en hún neitað því þar sem hún vildi ekki nýjan síma. Þá muni hún ekki eftir því að Pétur hafi lagt inn á hana pening á þessum tíma.

#lyginni #líkastur #sannleikurinn #vitnisburðir #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262924079d/vitnisburdir-sannleikurinn-er-lyginni-likastur-

📰 Aðrar fréttir

Ozempic-hár hefur valdið heilabrotum - Er svarið að finna í nýrri rannsókn?
📅 06.10.2026 👁️ 0
Ozempic-hár hefur valdið heilabrotum - Er svarið að finna í nýrri rannsókn?
Þyngdarstjórnunarlyf hafa tröllriðið lyfjaumræðunni undanfarin ár. Um tíma virtust allir og amma þeirra vera á Ozempic, samheitalyfinu Wegovy eða öðru...
Sakar formann Kennarasambandsins um rangfærslur og spyr hvort hann hafi brotið siðareglur
📅 06.10.2026 👁️ 0
Sakar formann Kennarasambandsins um rangfærslur og spyr hvort hann hafi brotið siðareglur
Sigvaldi Egill Lárusson, formaður Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, segir formann Kennarasambands Íslands, Magnús Þór Jónsson, hafa farið með ...
Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 0
Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu - Vísir
Skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar var birt á vef stofnunarinnar í dag en hún byggir á rannsóknum og niðurstöðum leyfishafa sem tóku þátt í síðustu r...
Rubio farinn af landi brott - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 0
Rubio farinn af landi brott - Vísir
Rubio fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í Safnahúsinu við Hverfisgötu í morgun. ...
Endurreisn íslenska forvarnarmódelsins
📅 06.10.2026 👁️ 0
Endurreisn íslenska forvarnarmódelsins
Endurreisn íslenska forvarnarmódelsins Fréttin6. október 2026Fréttatilkynning, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar...
Verði að gera fyrir­vara við rann­sókn um karl­mennsku - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 0
Verði að gera fyrir­vara við rann­sókn um karl­mennsku - Vísir
Tilefnið er frétt af alþjóðlegri rannsókn hugveitunnar Equimundo sem unnin var að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar um hugmyndir karla á Norðurlöndu...
Russia responds to US help offer after death of plague researcher
📅 06.10.2026 👁️ 0
Russia responds to US help offer after death of plague researcher
The US and Russia have each offered to help each other tackling infectious diseases.
Vilja reisa eldflauga- og drónaskjöld um Bretland
📅 06.10.2026 👁️ 0
Vilja reisa eldflauga- og drónaskjöld um Bretland
Íhaldsflokkurinn vill koma upp loftvarnakerfi til að verja landið gegn dróna- og eldflaugaárásum. Flokkurinn hefur gefið kerfinu heitið Britannia Dome...
Jeffrey Archer: Queen Camilla pays tribute to 'irrepressible' author and former politician
📅 06.10.2026 👁️ 0
Jeffrey Archer: Queen Camilla pays tribute to 'irrepressible' author and former politician
The bestselling author and former politician died on Monday at the age of 86.
Dag­bók lög­reglu: Próf­laus ein­eygður öku­maður flúði af vett­vangi - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Dag­bók lög­reglu: Próf­laus ein­eygður öku­maður flúði af vett­vangi - Vísir
Í öðrum þættinum var sýnt frá atviki þar sem eineygður próflaus ökumaður reyndi að flýja af vettvangi. Hann var stöðvaður þar sem bifreiðin var eineyg...
Leit að eftir­manni Harðar hefði hafist í haust eða vetur - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Leit að eftir­manni Harðar hefði hafist í haust eða vetur - Vísir
Hörður hefur stýrt fyrirtækinu í sautján ár og verður 64 ára í nóvember. Tilkynnt var um starfslok hans í síðustu viku og Kristín Linda Árnadóttir aðs...
Tilfinningarnar tóku völdin þegar Hafdís og Ambika hittust loksins – Sjáðu myndbandið
📅 06.10.2026 👁️ 2
Tilfinningarnar tóku völdin þegar Hafdís og Ambika hittust loksins – Sjáðu myndbandið
Það var til­finn­inga­þrung­in stund á skrif­stofu SOS Barna­þorp­anna á Ís­landi þeg­ar Ambika Sharma og Guð­rún Haf­dís Karls­dótt­ir hitt­ust loks,...
Skiptar skoðanir á hlutverki Þorgerðar í heimsókn Rubio: „Þú ert að misskilja hrapallega“
📅 06.10.2026 👁️ 2
Skiptar skoðanir á hlutverki Þorgerðar í heimsókn Rubio: „Þú ert að misskilja hrapallega“
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að heimsókn Marco Rubios, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands hafi staðfest að afs...
Námsmaður fær bætur vegna horfinna dekkja
📅 06.10.2026 👁️ 2
Námsmaður fær bætur vegna horfinna dekkja
Kærunefnd húsamála hefur gert leigusala námsmanns, sem leigir íbúð sem er ætluð er námsmönnum, að greiða skaðabætur vegna dekkja í hans eigu sem voru ...
Paramount takes over Warner Bros in $110bn Hollywood merger
📅 06.10.2026 👁️ 2
Paramount takes over Warner Bros in $110bn Hollywood merger
The merger of two of Hollywood's biggest movie studios comes after months of legal disputes and concern over competition.
Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að út­hýsa Aþenu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að út­hýsa Aþenu - Vísir
Brynjar Karl var ómyrkur í máli og sendi Bjarna harðort skeyti í gær. Hann segir framgöngu Bjarna vera mikil vonbrigði og megi hann þá heldur biðja um...
Það helsta frá blaðamannafundi Þorgerðar Katrínar og Rubios
📅 06.10.2026 👁️ 2
Það helsta frá blaðamannafundi Þorgerðar Katrínar og Rubios
Nánari varnarsamvinna, norðurljósin, hernaðarleg uppbygging á Íslandi, umdeilt kort Trumps og fleira var til umræðu á blaðamannafundi utanríkisráðherr...
Eight arrested after cannabis club raids in Playa de las Américas
📅 06.10.2026 👁️ 2
Eight arrested after cannabis club raids in Playa de las Américas
The National Police have arrested eight people and closed two Cannabis Clubs in Playa de las Américas, South Tenerife, as part of an operation targeti...
Eiríkur Rögnvaldsson bannar og skrifar pistla um málfarsfordóma – en lækar sjálfur skot á málfar Miðflokksmanna
📅 06.10.2026 👁️ 2
Eiríkur Rögnvaldsson bannar og skrifar pistla um málfarsfordóma – en lækar sjálfur skot á málfar Miðflokksmanna
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, hefur árum saman barist gegn því að fólk sé dæmt eftir málfari. Í F...
British national arrested in connection with RAF Fairford incident
📅 06.10.2026 👁️ 2
British national arrested in connection with RAF Fairford incident
It is the seventh arrest in connection to the incident near RAF Fairford last month.
Casino Slots on the Go: A convenient way to enjoy casino entertainment while travelling
📅 06.10.2026 👁️ 2
Casino Slots on the Go: A convenient way to enjoy casino entertainment while travelling
Travel changes your routine, but it does not have to change how you spend your free time. For travellers who enjoy casino entertainment, online slots ...
Sam­talið efnismeira en áður þó tals­verð gjá sé á milli - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Sam­talið efnismeira en áður þó tals­verð gjá sé á milli - Vísir
Í gærkvöld fengu VR og Fagfélögin heimild frá sínum trúnaðarmönnum og samninganefndum til að segja upp kjarasamningum. Halla Gunnarsdóttir formaður VR...
Telur að SA verði að sýna á spilin svo samningar haldi
📅 06.10.2026 👁️ 2
Telur að SA verði að sýna á spilin svo samningar haldi
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, telur að Samtök atvinnulífsins verði að koma inn af meiri ákveðni í samningaviðræður sínar við stéttarfélögin s...
Fire breaks out near petrol station in Gran Canaria
📅 06.10.2026 👁️ 3
Fire breaks out near petrol station in Gran Canaria
A fire at an abandoned property in Las Palmas de Gran Canaria sent a huge plume of thick black smoke into the sky yesterday (Monday), making it visibl...
Maður sagður hafa margbeinbrotnað í hrottalegri líkamsárás í Reykjanesbæ
📅 06.10.2026 👁️ 3
Maður sagður hafa margbeinbrotnað í hrottalegri líkamsárás í Reykjanesbæ
Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ aðfaranótt föstudagsins 2. október. Nútíminn greinir frá. Grunur er um...
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu
📅 06.10.2026 👁️ 3
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu Nafn­laus pist­ill um Elísa­betu Ingu Sig­urð­ar­dótt­ur frétta­konu Sýn­ar hef­ur ver­ið fjar­læg...
Einn í fram­boði til vara­for­manns enn sem komið er - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Einn í fram­boði til vara­for­manns enn sem komið er - Vísir
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er einn í framboði til varaformanns enn sem komið er. Framboðsfrestur er þó þar til ...
Ögur­stund í kjara­málum og Marco Ru­bio í heim­sókn - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Ögur­stund í kjara­málum og Marco Ru­bio í heim­sókn - Vísir
Fjallað verður um fundinn í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun....
Skora á borgina að bæta ekki við beygju­vasa - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Skora á borgina að bæta ekki við beygju­vasa - Vísir
Í gær greindi fréttastofa frá því að Miðflokkurinn hefði gengið til liðs við meirihlutann varðandi tillögu um breytingar á gatnamótum Bæjarháls og Höf...
Rubio: Ís­land í miðjunni - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Rubio: Ís­land í miðjunni - Vísir
Rubio mætti með Þorgerði á blaðamannafund eftir fund hans með Þorgerði í Höfða og síðan Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í morgun. Þar hóf hann...
Leigubremsa: Mikilvæg kjarabót
📅 06.10.2026 👁️ 3
Leigubremsa: Mikilvæg kjarabót
Leigubremsa: Mikilvæg kjarabót Með frum­varpi fé­lags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra eru regl­ur á ís­lensk­um leigu­mark­aði færð­ar nær því sem tíðk­...
Hluti foreldrahópsins á erfitt með að venjast símafríi barnanna
📅 06.10.2026 👁️ 3
Hluti foreldrahópsins á erfitt með að venjast símafríi barnanna
Örfáir hnökrar uppgötvuðust eftir að símasfrí var innleitt í grunnskóla en að flestu leyti hefur innleiðingin gengið farssællega að sögn skólastjóra G...
Grétu af gleði þegar þær hittust loksins - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Grétu af gleði þegar þær hittust loksins - Vísir
SOS barnaþorpin birtu í gær myndband af fagnaðarfundum kvennanna tveggja. „Það er komið að risastórri stund hjá okkur hjá SOS barnaþorpunum. Þið munið...
Unglingsstúlka stakk átta með hnífi
📅 06.10.2026 👁️ 3
Unglingsstúlka stakk átta með hnífi
Fimmtán ára gömul tyrknesk stúlka réðst á og særði átta stúlkur í skóla í Istanbúl í morgun. Hún var vopnuð hnífi og er sögð hafa lagt til nemenda og ...
Lagði grunn að glænýrri tegund stjörnufræði
📅 06.10.2026 👁️ 3
Lagði grunn að glænýrri tegund stjörnufræði
Francis Halzen hefur hlotið Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 2026. Í tilkynningu Nóbelsnefndarinnar segir að Halzen hafi lagt grunn að glænýrri tegund stjö...
Hvað varð um „fallegustu stúlku veraldar“? - Svona lítur hún út í dag
📅 06.10.2026 👁️ 4
Hvað varð um „fallegustu stúlku veraldar“? - Svona lítur hún út í dag
Thylane Lena-Rose Blondeau var aðeins tíu ára gömul þegar hún prýddi síður Vogue og var kölluð „fallegasta stúlka veraldar“.Thylane er dóttir franska ...
Byrjaði að grafa göng undir húsið sitt fyrir 4 árum
📅 06.10.2026 👁️ 4
Byrjaði að grafa göng undir húsið sitt fyrir 4 árum
Það eru komin fjögur ár síðan hin bandaríska Kala byrjaði að grafa göng undir heimili sitt í Virginíu í Bandaríkjunum. Hún hefur verið dugleg að sýna ...
Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu - Vísir
Óskað er eftir 65 milljónum króna í fjárlögum næsta árs vegna kaupanna. Þetta kemur fram í umsögn Herjólfs ohf. til fjárlaganefndar Alþingis frá 5. ok...
Eva og Kolbeinn gagnrýna karlakönnunina - „Það sem lifir í hugum fólks er hugmynd sem það fékk úr fyrirsögnum“
📅 06.10.2026 👁️ 4
Eva og Kolbeinn gagnrýna karlakönnunina - „Það sem lifir í hugum fólks er hugmynd sem það fékk úr fyrirsögnum“
Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að taka þurfi niðurstöðum könnunar um skoðanir karlmanna á Íslandi með fyrir...
Childminder who left 27 children alone in her home pleads guilty to neglect
📅 06.10.2026 👁️ 3
Childminder who left 27 children alone in her home pleads guilty to neglect
Amanda Mathewson, 55, pleaded guilty to neglect and abandoning children in her care at Kirkcaldy Sheriff Court.
Vilja ekki sjá sameiningu lögregluumdæma
📅 06.10.2026 👁️ 3
Vilja ekki sjá sameiningu lögregluumdæma
Áform dómsmálaráðherra um að fækka lögregluumdæmum landsins í þrjú falla í grýttan jarðveg í Fjarðabyggð þar sem bæjarráð leggst alfarið gegn því að y...
Northern France: At the scene of protests on the streets of Lille
📅 06.10.2026 👁️ 3
Northern France: At the scene of protests on the streets of Lille
The demonstrators are calling for better government investment in high schools.
Krist­rún valdi Victoriu Beckham - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Krist­rún valdi Victoriu Beckham - Vísir
Hún valdi dökkgrænan kjól sem er frá tískuhúsi ofurstjörnunnar Victoriu Beckham til að taka á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.  Kris...
Sprenging í sölu salt­vatns­potta á Ís­landi - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Sprenging í sölu salt­vatns­potta á Ís­landi - Vísir
Ari Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Heitirpottar.is, segir þróunina hafa verið hraða og að ánægðir eigendur saltvatnspotta séu líklega besta aug...
'Ghost particles' from space telescope wins 2026 Nobel Prize in Physics
📅 06.10.2026 👁️ 3
'Ghost particles' from space telescope wins 2026 Nobel Prize in Physics
Belgian physicist Prof Francis Halzen has won for his pioneering work on an observatory that detects particles from space.
One million UK people who have never smoked are now vapers
📅 06.10.2026 👁️ 3
One million UK people who have never smoked are now vapers
Latest statistics also show, for the second year in a row, more over-16s vape than smoke.
Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins
📅 06.10.2026 👁️ 4
Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins
Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins Fram­kvæmda­stjóri banda­rísks fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæk­is seg­ir það hafa greitt fyr­i...
Óeirðarseggir kveiktu í skóla meðan nemendur og blaðamenn voru ennþá inni
📅 06.10.2026 👁️ 4
Óeirðarseggir kveiktu í skóla meðan nemendur og blaðamenn voru ennþá inni
Grímuklæddir óeirðaseggir kveiktu eld við inngang Vauquelin framhaldsskólans í París að morgni mánudagsins 5. október á meðan um hundrað nemendur voru...
Former German spy chief arrested for espionage and treason
📅 06.10.2026 👁️ 3
Former German spy chief arrested for espionage and treason
August Hanning is accused of obtaining classified information for a foreign power.
Alaska bað nágrannakonu sína afsökunar eftir tveggja ára leiðindi – „Hún fór að gráta“
📅 06.10.2026 👁️ 4
Alaska bað nágrannakonu sína afsökunar eftir tveggja ára leiðindi – „Hún fór að gráta“
Söngkonan Kolfreyja Sól Bogadóttir, betur þekkt sem Alaska, bað nágrannakonu sína afsökunar þegar hún vann níunda sporið í AA-samtökunum. Hún segir fr...