Stjórn veiðideildar Stóru-Laxár í Hreppum hefur ekki enn tekið afstöðu til kröfu um að boðað verði til aukaaðalfundar í deildinni, en krafa þar um var gerð af Guðmundi Kristinssyni, eiganda jarðarinnar Sóleyjarbakka, sem aðild á að deildinni. Þetta segir Esther Guðjónsdóttir, formaður Stóru-Laxárdeildarinnar, í samtali við Morgunblaðið.
Krafa Guðmundar laut m.a. að því að fundurinn myndi álykta um að segja upp eða rifta leigusamningi um veiðirétt í Stóru-Laxá vegna þess sem hann kallar stórfelldar vanefndir á samningnum, en leigutaki réttindanna er Bergsnös ehf.
„Við erum að skoða það að halda félagsfund og ég reikna með að við höldum fund, en við höfum ekki tekið ákvörðun um hvort það verður aukaaðalfundur eða félagsfundur,“ segir Esther og bætir því við að hún verði vonandi tekin í næstu viku.
Hún segir stutt síðan umrædd krafa kom fram og ekki hafi náðst að halda stjórnarfund, málið hafi þó verið rætt í tölvupóstum. Nokkurn tíma taki að undirbúa fund. Hún segir að flest þeirra mála sem krafist sé að rædd verði hafi verið afgreidd á síðasta aðalfundi deildarinnar.
Í umræddu bréfi er þess krafist að formanninum, Esther Guðjónsdóttur, verði vikið frá stjórnarstörfum, nema hún segi af sér sjálf þar sem um hagsmunaárekstur sé að ræða, þar sem hún geti ekki gætt hagsmuna landeigenda og veiðréttarhafa gagnvart leigutakanum Bergsnös, þar sem hún sé starfsmaður Bergsnasar. Þessu vísar Esther á bug.
„Ég segi það eins og ég sagði í skýrslunni sem var borin undir félagsmenn og samþykkt, að hagsmunaárekstrar eru engir. Ég gæti hagsmuna landeigenda í Bergsnös,“ segir hún.
Finnst þér það ekki bjóða upp á hagsmunaárekstra að eiga að gæta hagsmuna félagsins gagnvart leigutakanum og vera jafnframt launþegi hjá honum?
„Alls ekki. Samningurinn við Bergsnös er þannig að það er ekki hagnaðardrifið fyrirtæki og helmingurinn af hagnaði Bergsnasar rennur til landeigenda sem aukaarður. Þannig að það er bara til bóta fyrir landeigendur að hafa einhvern innanborðs,“ segir Esther.
Í bréfi Guðmundar er þess krafist að óháðum endurskoðanda verði veittur aðgangur að öllum fjárhagsupplýsingum sem snúa að leigusamningnum og spurð hvort við því verði orðið segir Esther að málið hafi verið rætt.
„Við erum að fara í það að skoða samninginn og gera upp ákveðin mál sem Bergsnös hefur gert og eru ekki í samningnum, eru til viðbótar og teljast tekjur til landeigenda. Við munum láta óháðan lögfræðing fara yfir það allt. Þetta er allt í vinnslu,“ segir hún.
Spurð hvaða mál sé þar um að ræða segir Esther að þar sé m.a. um að ræða vegagerð og viðhald vega meðfram ánni sem leigutaki hafi tekið að sér.
Hann eigi sjálfur gröfu sem notuð sé til verksins og hann vinni án endurgjalds.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.