Greint er frá meirihlutaviðræðum í fréttatilkynningu frá flokkunum.
Núverandi meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, sem var myndaður í mars 2024 eftir að meirihluti Framsóknar og félagshyggjuframboðsins Fjarðalistans sprakk, rétt svo hélt velli í sveitarstjórnarkosningunum þrátt fyrir að báðir flokkarnir töpuðu einum manni hvor frá síðustu kosningum.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá fulltrúa í sveitarstjórnarkosningunum um helgina og er því í lykilstöðu en Framsóknarflokkurinn, Miðflokkur og listi Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks fengu tvo fulltrúa hver.