Ber er hver að baki nema sér bróður eigi, eða svo er sagt, en þetta á ekki við um bræðurna Vilhjálm og Harry Bretaprinsa þessi misserin.Harry hefur nú ákveðið að flytja aftur heim til Bretlands. Daily Mail segir að ein ástæða flutninganna sé sú að Harry ætli að gera sjónvarpsmynd um móður sína, Díönu prinsessu.Heimildir miðilsins herma að Harry hafi undanfarið leitað til vina og annarra sem þekktu móður hans, sem lést í bílslysi í ágúst árið 1997, til að finna þátttakendur í myndina.
Vilhjálmur sagður brjálaður út í yngri bróður sinn út af nýju verkefni