Tvenn ungmenni, þolandi og gerandi, hafa að sögn Kristínar Skjaldardóttur, félagsráðgjafa og sérfræðings í uppbyggilegri réttvísi, fengið nýtt tækifæri í lífinu eftir að hafa farið í gegnum sáttaferli hér á landi.
Kristín segir að yfirleitt séu það þolendur eða aðstandendur þeirra sem óski eftir slíku ferli, frekar en gerendur.
Uppbyggileg réttvísi felur í sér að þolendur og gerendur fá tækifæri til að eiga samskipti, þar sem áhersla er lögð á að gerandinn axli ábyrgð á brotinu og þolandinn fái tækifæri til að vinna úr afleiðingum þess.
Í Kastljósi kvöldsins var fjallað um sögu Davids Hodgkinson, sem hefur náð sáttum við Jacob Dunne, manninn sem varð syni hans ,James, að bana með höfuðhöggi í slagsmálum.
Dunne afplánaði fangelsisdóm fyrir verknaðinn en hitti síðar foreldra James í sáttaferli, með uppbyggilegri réttvísi. Þeir hafa unnið saman að vitundarvakingu um afleiðingar ofbeldis.
Saga þeirra er efniviður leikritsins Högg sem nýlega var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu.
Kristín, sem var gestur Kastljóss ásamt Rögnu Bjarnadóttur fangelsismálastjóra, segir sambærileg sáttaferli hafa skilað árangri hér á landi.
„Við höfum einmitt horft upp á tvö ungmenni, þolanda og geranda, sem eignuðust hreinlega nýtt líf,“ segir Kristín.
Hún segir gerandann hafa fengið tækifæri til að axla ábyrgð á gjörðum sínum og þolandann til að heyra það beint frá honum. Samskiptin hafi skipt sköpum fyrir þau bæði.
Þolendur leita svara hjá gerendum
Að sögn Kristínar leita þolendur oft í úrræðið vegna þess að þá vanti svör til að geta lokið úrvinnslu áfalla sinna. Stundum skipti mestu máli að fá að segja gerandanum hvaða áhrif brotið hafi haft á líf þeirra.
Ferlið geti tekið allt frá sex mánuðum til þriggja ára eða lengur og mikilvægt sé að undirbúa þátttakendur vandlega.
„Við höfum þurft að stoppa mál,“ segir Kristín og útskýrir að það sé gert þegar hætta sé á að samskiptin valdi frekari skaða.
Mikilvægt að styðja fanga eftir afplánun
Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri segir mikilvægt að styðja fanga við að hefja nýtt líf að lokinni afplánun. Fangelsisyfirvöld reyni að forgangsraða þeim sem þurfi mest á stuðningi að halda, einkum yngstu brotamönnunum og þeim sem hafi framið hættuleg brot.
Hún leggur áherslu á að meðferð og stuðningur sem hefjist í fangelsi haldi áfram eftir afplánun. Þar skipti samstarf fangelsisyfirvalda við félags- og heilbrigðisþjónustu, auk félagasamtaka á borð við Vernd, miklu máli.
Ragna segir samstarfið hafa batnað á undanförnum árum en enn megi gera betur. Hún telur að aukin áhersla á uppbyggilega réttvísi á öllum stigum refsivörslukerfisins geti hjálpað til við að draga úr endurteknum afbrotum.
Horfa má á Kastljósi kvöldsins í heild sinni í spilaranum hér að neðan.