Breskur vörubílstjóri á sjötugsaldri hefur verið dæmdur til fangelsisvistar eftir að hafa misnotað lík nýlátinnar konu. Sonur hennar kom að bílstjóranum þegar hann var að fremja ódæðið.Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.Stephen Sellars, 62 ára gamall vörubílstjóri frá bænum Hibaldstow nærri Scunthorpe í austurhluta Englands, hefur hlotið 16 mánaða fangelsisdóm fyrir að misnota lík kynferðislega. Sellars játaði brot sitt þann 31. ágúst síðastliðinn fyrir dómara í borginni Hull.
Sonur gekk inn á vörubílstjóra að hafa samfarir við lík móður hans - „Fyrirgefðu, ég á skilið að vera kýldur kaldur“