20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu - Vísir

20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu - Vísir

20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu - Vísir

Í skýrslunni, sem fjallar um eftirfylgni við 79 þingmál frá árunum 2022–2025, er farið yfir hernaðarlegan og borgaralegan stuðning við Úkraínu, mannúðaraðstoð við Palestínumenn og framlög til heimastjórnar Palestínu og enduruppbyggingar.

Hergögn, sjúkrahús og mannúðaraðstoð

Af stuðningnum við Úkraínu séu 11,9 milljarðar króna varnartengdir og 8,5 milljarðar vegna mannúðar- og efnahagsaðstoðar. Áætlað sé að stuðningurinn á öllu árinu 2026 verði 6,1 milljarður, samanborið við sex milljarða árið 2025.

Samkvæmt skýrslunni fari varnartengdi stuðningurinn einkum í sjóði sem kaupi hergögn og birgðir. Ísland hafi einnig stutt kaup á færanlegu sjúkrahúsi og lagt fé í PURL, samstarfsverkefni Atlantshafsbandalagsins og Bandaríkjanna um kaup á bandarískum varnarbúnaði.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu. Varnartengdur stuðningur Íslands við Úkraínu nam 11,9 milljörðum króna frá febrúar 2022 til september 2026.Forsetaskrifstofa Úkraínu

Ísland leiði ásamt Litáen samstarfshóp um sprengjuleit og sprengjueyðingu og taki þátt í þjálfun Úkraínumanna á því sviði, auk þjálfunar bráðaliða.

Mannúðar- og efnahagsstuðningur fari að mestu í gegnum Alþjóðabankann og stofnanir Sameinuðu þjóðanna. Stuðningur við orkuinnviði og kvennasamtök hafi aukist. Þá hafi stjórnvöld hafið samstarf við Emblu Medical og Future for Ukraine um stoðtæki og við Römpum upp um aðgengisrampa í Lviv.

Tjónakröfur og menningarsamstarf

Um 190 þúsund tjónakröfur hafi verið skráðar í tjónaskrá sem stofnuð var á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík árið 2023.

Ísland hafi fullgilt samning um kröfunefnd sem eigi að ákveða bætur. Þegar skýrslan var tekin saman höfðu níu ríki og Evrópusambandið fullgilt samninginn, en fullgildingu 25 ríkja þarf til að hann öðlist gildi. Ísland taki einnig þátt í undirbúningi sérstaks dómstóls um glæpi gegn friði í Úkraínu.

Þá hafi Ísland innleitt allar þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins gegn Rússlandi vegna stríðsins og fullgilt uppfærðan fríverslunarsamning við Úkraínu. Reglulegar heimsóknir og fundir ráðamanna hafi styrkt samskipti landanna.

Úkraínsk stjórnvöld líti á menningu sem hluta af þjóðaröryggi. Meðal samstarfsverkefna séu listasýningar á Íslandi, kynning á úkraínskum bókmenntum og sýning Steinunnar Þórarinsdóttur í Kænugarði.

Um 1,76 milljarðar vegna Palestínu

Framlögin vegna Palestínu skiptast í mannúðaraðstoð, stuðning við heimastjórnina og uppbyggingu á Vesturbakkanum og Gaza.

Á árunum 2025 og 2026 nemi framlög til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, UNRWA, 588,3 milljónum króna. Þá hafi 160 milljónir farið til Samhæfingarskrifstofu aðgerða í mannúðarmálum, OCHA, og 60 milljónir til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna. Þetta eru samtals 808,3 milljónir á tveimur árum.

Í lok árs 2025 hafi Ísland jafnframt gert þriggja ára samning um stuðning við heimastjórn Palestínu í gegnum Alþjóðabankann. Framlagið sé 200 milljónir á ári, samtals 600 milljónir yfir samningstímann.

Mótmælendur Íslands Palestína söfnuðust saman fyrir utan utanríkisráðuneytið í fyrra og mótmæltu aðgerðaleysi stjórnvalda í garð hernaðar ísraela á palestínumönnum á gaza. Vísir/Anton Brink

Annar samningur við Alþjóðabankann nái yfir uppbyggingu grunninnviða á Vesturbakkanum á árunum 2024–2028. Hann feli í sér um 50 milljónir á ári, samtals um 250 milljónir á fimm árum.

Þá hafi Ísland lagt 100 milljónir króna í enduruppbyggingarsjóð Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínu, UN Horizon Fund, í september síðastliðnum. Féð nýtist til verkefna á Gaza.

Þessir liðir nema samanlagt um 1.758,3 milljónum króna. Þar eru bæði talin veitt framlög og samningsbundnar greiðslur til næstu ára. Við bætist stuðningur við UNESCO og palestínsku félagasamtökin WCLAC og PMRS, en fjárhæðir hans eru ekki tilgreindar.

Aðstoðin sögð langt frá því að mæta þörfinni

Í skýrslunni segir að þrátt fyrir vopnahlé á Gaza í október 2025 og aukna mannúðaraðstoð sé aðstoðin langt frá því að mæta þörfinni. Þar sé talið að hátt í 250 þúsund manns hafi slasast eða verið drepin frá október 2023 og eyðilegging innviða sé gríðarleg.

Ísland hafi kallað eftir óheftu aðgengi hjálpargagna og virðingu fyrir alþjóðalögum, auk þess að krefjast frelsunar gísla og afvopnunar Hamas. Stjórnvöld hafi einnig stutt alþjóðlegar yfirlýsingar um varanlegt vopnahlé, enduruppbyggingu og tveggja ríkja lausn.

Þá hafi Ísland 11. mars síðastliðinn lagt fram yfirlýsingu um meðalgöngu í máli Suður-Afríku gegn Ísrael vegna meintra brota á hópmorðssáttmálanum. Málflutningurinn snúi að túlkun sáttmálans í vopnuðum átökum, sérstaklega áhrifum á konur og börn.

Ísland hafi einnig skilað greinargerð til Alþjóðadómstólsins um skyldur Ísraels til að tryggja starfsemi Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðlegra aðila á hernumdum svæðum Palestínu.

#aukinn #milljarðar #stuðningur #til #úkraínu


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262950712d/20-4-milljardar-til-ukrainu-og-aukinn-studningur-vid-palestinu

📰 Aðrar fréttir

Ósammála feðgar virða skoðanir hvors annars
📅 19.10.2026 👁️ 2
Ósammála feðgar virða skoðanir hvors annars
Íbúar í Alberta-fylki greiða atkvæði í um hvort það eigi að vera áfram hluti af Kanada. Þótt búist sé við að meirihluti vilji vera það áfram hefur umr...
Wahlberg segir flug­mennina hafa bjargað lífi sínu - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Wahlberg segir flug­mennina hafa bjargað lífi sínu - Vísir
Fram kemur í umfjöllun bandaríska miðla að átta hafi verið um borð í vélinni, Wahlberg og fylgdarlið hans. Vélin hafi átt að fara í loftið 12:50 að st...
Clean up begins after French riots but police remain
📅 19.10.2026 👁️ 1
Clean up begins after French riots but police remain
Outside of Paris, Marseille saw some of the worst damage, with shop owners reporting more than 600 premises having been looted.
Burnham vows end to 'rip-off parking charges' under new rules
📅 19.10.2026 👁️ 2
Burnham vows end to 'rip-off parking charges' under new rules
Penalties are seen as too harsh on motorists who are penalised for parking on private land.
Christiane Amanpour mun kveðja CNN - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Christiane Amanpour mun kveðja CNN - Vísir
Hin 68 ára gamla Amanpour er margverðlaunaður blaðamaður sem flutt hefur fréttir af helstu átakasvæðum víða um heim og hefur hún starfað sem aðalfrétt...
US Church on frontline of battle against drug known as 'tranq'
📅 19.10.2026 👁️ 1
US Church on frontline of battle against drug known as 'tranq'
Synthetic opioids like fentanyl are more powerful and in plentiful supply, and they have transformed the drugs landscape.
Mótmælin í Frakklandi minna á stúdentauppreisnina 1968
📅 19.10.2026 👁️ 2
Mótmælin í Frakklandi minna á stúdentauppreisnina 1968
Mótmælin í Frakklandi, sem hófust meðal framhaldsskólanema um miðjan september, minna um margt á óeirðirnar árið 1968. Þetta segir Guðmundur Hálfdánar...
Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum - Vísir
Hugmyndin kom fram í sérstakri umræðu um sjálfkeyrandi bíla á Alþingi í dag. Þar var rætt um hvernig undirbúa ætti íslenska vegakerfið og löggjöf fyri...
Gunnar Ingi fann sálufélaga sinn í Bakkus og barðist gegn björgun: „Þetta var sannarlega sturlun. Ég var rekald í lífsins ólgusjó“
📅 19.10.2026 👁️ 2
Gunnar Ingi fann sálufélaga sinn í Bakkus og barðist gegn björgun: „Þetta var sannarlega sturlun. Ég var rekald í lífsins ólgusjó“
HELVÍTIS FANTUR ERTU! er ævisaga Gunnars Inga Gunnarssonar sem lungann úr starfsævi sinni var yfirlæknir á Heilsugæslunni Árbæ. Hann kom reyndar víðar...
Trump vill að annar en Zelenskyj semji um frið í Úkraínu – ágreiningur leiðtoganna harðnar
📅 19.10.2026 👁️ 2
Trump vill að annar en Zelenskyj semji um frið í Úkraínu – ágreiningur leiðtoganna harðnar
Trump vill að annar en Zelenskyj semji um frið í Úkraínu – ágreiningur leiðtoganna harðnar Fréttin19. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a...
Brugðust illa við svörum Ingu Sæland
📅 19.10.2026 👁️ 2
Brugðust illa við svörum Ingu Sæland
Stjórnarnandstaðan sakaði Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra um dónaskap þegar hún var beðin um að útskýra nýtt einkunnakerfi í grunnskóla á þin...
Hvað veistu um… Nylon? - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Hvað veistu um… Nylon? - Vísir
Nylon starfaði einnig um tíma í Bretlandi, en sveitin hætti svo að koma fram undir merkjum Nylon árið 2008. Liðsmenn komu þó aftur saman á Menningarnó...
Búast við aukinni sölu rafbíla á næstu dögum
📅 19.10.2026 👁️ 3
Búast við aukinni sölu rafbíla á næstu dögum
Styrkir til kaupa á rafknúnum fólksbílum lækka um 100 þúsund krónur um næstu mánaðamót, úr 500 í 400 þúsund, samkvæmt reglugerð sem umhverfisráðherra ...
Komu til Íslands til að fagna gullbrúðkaupi – Ferðin breyttist í martröð
📅 19.10.2026 👁️ 3
Komu til Íslands til að fagna gullbrúðkaupi – Ferðin breyttist í martröð
Tom Profitt og eiginkona hans komu hingað til lands í lok september til að fagna 50 ára brúðkaupsafmæli sínu. Dvöldu þau á landinu í viku, gengu víða ...
Lára hefur greinst þrisvar með krabbamein: „Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót“
📅 19.10.2026 👁️ 3
Lára hefur greinst þrisvar með krabbamein: „Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót“
Lára Árnadóttir hefur þrisvar sinnum greinst með krabbamein. Hún er þakklát fyrir lífið og fyrir að hafa þekkt sinn líkama og hlustað á einkennin.
Skrásetja öll hjartastuðtæki landsins
📅 19.10.2026 👁️ 3
Skrásetja öll hjartastuðtæki landsins
Um 3000 hjartastuðtæki eru víðs vegar um landið. Heilbrigðisráðuneytið hefur hrundið af stað verkefni að skrásetja öll tækin. Þorbjörg Katrín Davíðsdó...
Sahara Ray látin - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Sahara Ray látin - Vísir
TMZ greinir frá þessu. Aðstandendur Ray segja hana hafa fallið frá í gær. Hún hafi verið í faðmi fjölskyldu. Dánarorsök liggur ekki fyrir. Ray varð fr...
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
📅 19.10.2026 👁️ 3
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
Rannveig Rist lét af störfum sem forstjóri álvers Rio Tinto í Straumsvík í maí en hún hafði þá gegnt starfinu í um 30 ár. Á ársfundi Samtaka atvinnulí...
Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á tún­fiski - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á tún­fiski - Vísir
Fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir var kynnir á viðburðinum og sagði gestum frá rúmlega 140 kílóa bláuggatúnfisknum sem var fluttur sérstaklega til ...
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
Hrefna Dagbjört Arnardóttir, eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð, þar sem bæði er stunduð ferðaþjónustustarfsemi og skógrækt, höfðaði málið á...
Eldur í potti á Norðurbakka
📅 19.10.2026 👁️ 3
Eldur í potti á Norðurbakka
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er í útkalli vegna elds á Norðurbakka í Hafnarfirði. Þar reyndist eldur hafa kviknað í potti. Vel gekk að slökkva eldi...
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að slökkviliðinu hafi borist útkallið á sjöunda tímanum en...
Richard Riehle látinn - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Richard Riehle látinn - Vísir
Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ greinir frá andláti Riehle og segir hann hafa látist á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum. Riehle sló gjörsamle...
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
📅 19.10.2026 👁️ 3
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
Hörð viðbrögð við sýknudómi í nauðgunarmáli fyrir Landsrétti benda til þess að hann sé á skjön við almennan skilning á samþykki. Sérfræðingur segir Hæ...
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
Serhii Beskrestnov says there has not been enough time to warn people about incoming missile attacks. The White House said there had been no changes t...
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
📅 19.10.2026 👁️ 3
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
Hægt verður að nýta allar sex verslanir Ikea í Danmörku sem neyðarskýli eða bráðabirgðasjúkrahús komi til hamfara, árása á mikilvæga innviði eða flóða...
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
📅 19.10.2026 👁️ 3
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
Matthías Freyr Matthíasson, 46 ára, greindist með ristilkrabbamein í apríl síðastliðnum eftir að hafa glímt við mikla kviðverki um nokkurt skeið. Sköm...
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
Um helgina var greint frá því að Ung vinstri græn (UVG) hefði kosið sér nýja forystu.  Hinn 26 ára Ari Orrason var kjörinn formaður en í þingkosningum...
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
📅 19.10.2026 👁️ 4
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
Íslenskur skiptinemi sem býr í París í Frakklandi fann lítið fyrir mótmælunum sem hafa verið í borginni, þar til um helgina. Mótmælin hafa stigmagnast...
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
Í umfjöllun Guardian kemur fram að ríkisstjórn Frakklands hafi fundað í dag vegna ástandsins í landinu. Líkt og fram hefur komið spruttu óeirðirnar up...
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
📅 19.10.2026 👁️ 4
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft uppi á öllum fimm sem eru grunaðir um stórfellda hópárás í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Árásin átti sér stað í byr...
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
📅 19.10.2026 👁️ 3
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
A 16-year-old boy has suffered a broken arm and multiple injuries after allegedly being attacked by a group of five young people in Vecindario, Gran C...
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
Þetta segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, í samtali við fréttastofu. Tilefnið er tilkynning lögreglu í síðustu viku þar se...
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
📅 19.10.2026 👁️ 3
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
Gísli Freyr Valdórsson, umsjónarmaður Þjóðmála, telur að það sé skrítin stemning í þingflokki Viðreisnar og að það verði gerðar breytingar á forystu f...
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir Yfirvöld í Danmörku hefja rann­sókn eftir að frétta­ljós­mynd­arar lýsa árásum af hálfu lög­regl­unnar. Ljós­my...
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...
Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...
Wolt-sendlar íhuga næstu skref í kjarabaráttu
📅 19.10.2026 👁️ 3
Wolt-sendlar íhuga næstu skref í kjarabaráttu
Um sex hundruð sendlar starfa hjá Wolt hér á landi.Hópur þeirra lagði niður störf um miðjan september þegar laun þeirra voru lækkuð um allt að 40 prós...
Ísaksskóli eignast Ísaksskóla - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ísaksskóli eignast Ísaksskóla - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að kaupin byggi á endurkauparétti sem samið var um við Reykjavíkurborg árið 2011.  Sk...
Játaði innflutning á kratom og sagðist fá sér það eins og kaffi
📅 19.10.2026 👁️ 3
Játaði innflutning á kratom og sagðist fá sér það eins og kaffi
Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt mann um þrítugt til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir innflutning á fíkniefninu kratom. Dómari...
Ex-OpenAI worker accused of planting device had Saudi support says court filing
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ex-OpenAI worker accused of planting device had Saudi support says court filing
The Saudi government did not immediately respond to BBC requests for comment.
Tvö bandarísk herskip í Jökulfjörðum
📅 19.10.2026 👁️ 3
Tvö bandarísk herskip í Jökulfjörðum
Tvö herskip bandaríska sjóhersins eru í Jökulfjörðum: skipin Hos Red Rock og Hos Red Dawn.Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafa þau leyfi s...
Inga um ótta kennara: „Staðan er graf­alvar­leg“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Inga um ótta kennara: „Staðan er graf­alvar­leg“ - Vísir
Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, á Alþingi í dag. Snorri vísaði til fréttaflutnings síðustu vik...
Katrín Oddsdóttir: Þetta er eins og ef einhver heimilaði kjúklingabú í garðinum þínum án þess að spyrja þig
📅 19.10.2026 👁️ 4
Katrín Oddsdóttir: Þetta er eins og ef einhver heimilaði kjúklingabú í garðinum þínum án þess að spyrja þig
Lykilstarfsmenn fyrirtækja og samtaka í sjávarútvegi fara þaðan beint til starfa í ráðuneyti og stofnunum sem koma að lagasetningu og leyfisveitingum....
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn
📅 19.10.2026 👁️ 4
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn Kosn­inga­bar­áttan fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber er orðin jafn­ari en...
Jarð­skjálftinn 5,2 að stærð - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Jarð­skjálftinn 5,2 að stærð - Vísir
Þetta kemur fram í athugasemd jarðfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Síðast urðu skjálftar af þessari stærðargráðu þann 5. október og 28. júlí. Nokkrir ...
Mannskæð drónaárás nærri markaði
📅 19.10.2026 👁️ 4
Mannskæð drónaárás nærri markaði
Að minnsta kosti 80 voru drepnir í drónaárás í suðurhluta Súdan í gær. Árásin var við samgöngumiðstöð nærri markaði í Al-Dibab í Vestur-Kordofan, en þ...
Gianni Infantino: Uefa gives Fifa deadline to release key documents
📅 19.10.2026 👁️ 4
Gianni Infantino: Uefa gives Fifa deadline to release key documents
European governing body Uefa tells Fifa it must release key documents related to its governance and decision-making by 2 November.
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum
📅 19.10.2026 👁️ 4
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum Fréttin19. október 2026Erlent, Innlent,...
Saka Ingu um skæting og hel­beran dóna­skap - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Saka Ingu um skæting og hel­beran dóna­skap - Vísir
Sigurjón virtist þar vera að vísa til þess að stjórnarandstaðan hefði gert sig bera af ofurviðkvæmni í hinu pólitíska argaþrasi þar sem menn hafa eina...