Paul Mackenzie stýrði dómsdagstrúarsöfnuðinum Alþjóðleg kirkja góðra frétta (e. Good News International Church). Söfnuðurinn var til húsa á búgarði Mackenzie í Shakola í Kenía þar sem hann prédikaði um enda heimsins og hvatti fylgjendur sína til að svelta sig í hel.
Mackenzie boðaði það sem hann kallaði „skipulagt stigveldi dauðans“, en samkvæmt því áttu börn að deyja fyrst, svo unglingar, þá konur og síðast karlmenn.
Þá lýsti prédikarinn því einnig yfir að menntun væri af hinu illa, að heilbrigðisþjónusta stríddi gegn kennisetningum trúarinnar og að persónuskilríki væru merki djöfulsins. Hann sendi ræður sínar út í gegnum sjónvarpsstöð sem kirkja hans rak
Börnum neitað um mat
Eftir að Mackenzie var handtekinn ásamt 28 vitorðsmönnum árið 2023 uppgötvaði keníska lögreglan hundruð fjöldagrafa þar sem flest líkin voru af börnum.
Krufning leiddi í ljós að mörg barnanna sem fundust í fjöldagröfunum höfðu dáið úr hungri en sum þeirra höfðu látist vegna köfnunar, kyrkingar eða eftir höfuðhögg.
Þá greindi eitt vitni frá því að konu sem var nýbúin að fæða barn hafi verið meinað að hafa það á brjósti. Barnið dó úr næringarskorti eftir 12 daga og konan var hvött til að fasta og fylgja barni sínu í dauðann.
Í réttarhöldunum yfir Mackenzie og þeim meðseku kom jafnframt fram að í sumum tilfellum voru börnin einangruð og þeim neitað um mat á meðan foreldrar þeirra horfðu á.
Fjöldi látinna vel yfir 400
Síðan fyrstu fjöldagrafirnar fundust hafa fleiri grafir komið í ljós og talið er að fjöldi látinna sé að minnsta kosti vel yfir 400. Slíkur er fjöldinn að reglulega hefur þurft að gera hlé á uppgreftrinum vegna plássleyssis í líkhúsum.
Allir sakborningarnir 29 neituðu sök og báru því fyrir sig að enginn í sértrúarsöfnuðinum hafi verið neyddur til að deyja. Þeir voru hins vegar fundnir sekir og Mackenzie hefur verið jafnframt verið ákærður á ný eftir að fleiri lík fundust.