Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ - Vísir

Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ - Vísir

Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ - Vísir

„Það veit bara enginn hvað er í gangi,“ segir Arnþrúður Kristín Zoëga Ingvadóttir, íslenskur arkítektúrnemi í IED, í samtali við Vísi. Hún segir að nemendur hafi skyndilega verið sendir fyrr heim úr tíma í dag og hafi enn ekki fengið svör um hvort þeir eigi að mæta í skólann á morgun.

Í framhaldi af óeirðunum sem brutust út eftir mótmæli í Mílanó um helgina hafa skjáskot og skilaboð farið sem eldur um sinu í spjallhópum stúdenta á WhatsApp, þar sem varað er við árás á skóla og nemendur í ítölsku borginni.

Í umfjöllun Notizie.it er tekið fram að engum þessara sögusagna fylgi nein sönnunargögn en þrátt fyrir það hafi fjölda verslana í Mílanó verið lokað vegna orðrómanna. Yfirvöld í Mílanó hafa ekki gefið út neinar opinberar yfirlýsingar um málið, né skólarnir.

Mótmælin, sem snerust í upphafi um verðlag, fóru í upphafi friðsamlega fram en á laugardaginn urðu miklar stimpingar meðal ungmenna sem voru viðstödd. Forsætisráðherrann sagði óeirðaseggi hafa nýtt sér mótmælin til að skapa ringulreið en lögregla í borginni notaði stórar vatnskanónur og táragas gegn mótmælendum sem köstuðu gangstéttarhellum, ruslatunnum og stólum að lögreglumönnum.AP

Í skjáskotum úr spjallhópum sem hafa verið í dreifingu er varað við hópi manna sem var sagður skipuleggja yfirvofandi áhlaup í borginni ýmist í dag eða á morgun; þeir hygðust ráðast á fólk í miðbænum og jafnvel skipuleggja hópnauðganir. „Drepum allt ríka fólk framtíðarinnar,“ segir í einu skjáskoti. Í öðrum skilaboðum er ýjað að því að nýfasistahópar ætli að berja útlendinga í tilteknum hverfum og kveikja í einkareknum skólum. Í einhverjum spjöllum er biðlað til þeirra „sem eru ekki dæmigert ítalskir í útliti“ að hafa varann á. 

Fólk er síðan hvatt til þess að deila skilaboðunum áfram.

„Allir frekar hræddir“

Arnþrúður segir að skjáskotin hafi vakið mikla ónotatilfinningu meðal nemenda og kennara enda hafi nemendur vart séð annað á samfélagsmiðlum undanfarnar klukkustundir.

„Kennarar sendu póst í dag þar sem þeir sögðu að þeir viti í raun ekkert hversu raunverulegt þetta er. Þeir viti ekki hvort þeir geti leyft okkur að koma í skólann á morgun. Það er ekkert vitað um það hversu mikill sannleikur er í því sem verið er að senda á milli,“ heldur Arnþrúður áfram.

Arnþrúður Kristín Zoëga Ingvadóttir, íslenskur arkítektúrnemi í IED.Facebook.

Að sögn Arnþrúðar virðast hótanirnar beinast sérstaklega að alþjóðanemum og hafa því sérstaklega vakið ótta í hennar vinahópi.

„Það eru allir frekar hræddir. Mér finnst líka óþægilegt að sjá ítölsku nemendurna, þeir eru mjög hræddir.“

Falsfréttir í dreifingu og sprengjuhótanir í skólum

Skilaboðin sem eru í dreifingu meðal stúdenta í Mílanó virðast ekki vera einsdæmi.

Héraðsmiðill í Cremona greinir frá því að verslanir hafi í dag lokað dyrum sínum fyrr en ella eftir að falsfréttir fóru í dreifingu um að óeirðir væru yfirvofandi í bænum í dag, auk þess sem fölsuð myndskeið hafi verið í dreifingu.

Jafnframt eru lögregluyfirvöld að kanna grunsamleg hópspjöll sem hafa skotið upp kollinum í dag þar sem boðað er til óeirða í Como næstu helgi – þar sem lúxusverslanir virðast sérstaklega í sigtinu. 

Auk þess barst hið minnsta 50 skólum fölsk sprengjuhótun í dag og þeir rýmdir, að því er Rai greinir frá. Meðal þeirra var grunnskóli á Mílanó-svæðinu.

Ungmennamótmæli sem undu upp á sig

Óreiðir brutust út á hliðarlínum mótmæla sem vítt og breitt um Evrópu á laugardag, en þær urðu mestar í Frakklandi. 

Talið er að um fimm þúsund manns hafi verið á götum Dómkirkjutorginu í Mílanó á Ítalíu en þar brutust ungmenni inn í verslanir og stálu þaðan vörum, auk þess sem borgarar voru beittir ofbeldi, að sögn lögregluyfirvalda.

Frá óeirðum í Mílanó á laugardag. AP

Samkvæmt umfjöllun AMSA voru ríflega þrjátíu handteknir í Mílanó, þar á meðal 23 ungmenni, og á þriðja hundrað manns voru færðir á lögreglustöð. 

Giorgia Meloni forsætisráðherra sagði í gær að óeirðaseggir hefðu nýtt sér mótmælin til að skapa ringulreið en lögregla í borginni notaði stórar vatnskanónur og táragas gegn mótmælendum sem köstuðu gangstéttarhellum, ruslatunnum og stólum að lögreglumönnum.

Corriere della Sera greinir frá því að forsætisráðherrann Meloni hafi í hyggju að grípa til neyðarúrræða til að bregðast við. Ríkisstjórnin er þar sögð ætla að senda 500 hermenn til Mílanó. Þá segir sami miðill að ríkisstjórnin hyggist herða löggæslu gagnvart ungmennum, en Meloni hefur áður lýst áhuga á að setja á serstök lög til að sporna við ofbeldishegðun ungmenna. 

„Súrrealískt“

Katrín Sunneva Einarsdóttir, sem stundar einnig nám við IED skólann, segist hafa komið aftur til borgarinnar í gær þegar rykið var tekið að setjast eftir óeirðirnar. 

„Ég var í skólanum, í smíðastofunni, og þá var allur bekkurinn að vinna í verkefni þegar ég fæ skilaboð frá vinkonu minni sem er líka í námi hérna með skilaboðum sem eru að lýsa grófum hótunum sem beinast að erlendum nemendum og ákveðnum hverfum,“ segir hún.

Skyndilega fóru skilaboð að hrannast inn í pósthólfin um meintar óeirðir sem væru boðaðar.

„Ég fæ þessi skilaboð og hugsa að þetta sé ógnvekjandi en samt ekkert endilega trúlegt, hvernig þetta var sett fram,“ segir hún. Síðan hafi skilaboðin farið að hrannast inn. Á einni klukkustund hafi hún fengið sjö sambærileg skilaboð í mismunandi spjallhópum.

„Svo kallar kennarinn yfir alla í smíðastofunni að allir þurfi að drífa sig heim út af ástandinu. Þá er þetta búið að fréttast til skólans, þessar hótanir.“

Katrín Sunneva Einarsdottir, nemandi í IED í Mílanó.Facebook

Nemendur hafi verið í miklu uppnámi. „Þetta var súrrealískt. Þetta var eins og brunaæfing, allur skólinn var búinn að drífa sig út,“ bætir hún við.

„Þetta er mjög óhugnanlegt,“ bætir hún við og tekur fram að þessar hótanir hafi vakið litla athygli í landsmiðlum á Ítalíu. 

„Þetta virðist vera hræðsluáróður á samfélagsmiðlum og þess vegna hefur kannski ekki verið fjallað mikið um þetta í dag.“

#mílanó #orðrómar #ugg #valda #ótta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262950816d/ordromar-valda-ugg-og-otta-i-milano-thad-eru-allir-frekar-hraeddir-

📰 Aðrar fréttir

Leiðtogi sértrúarsöfnuðar dæmdur sekur fyrir morð á 190 börnum
📅 20.10.2026 👁️ 0
Leiðtogi sértrúarsöfnuðar dæmdur sekur fyrir morð á 190 börnum
Paul Mackenzie stýrði dómsdagstrúarsöfnuðinum Alþjóðleg kirkja góðra frétta (e. Good News International Church). Söfnuðurinn var til húsa á búgarði Ma...
Þingkona sögð hafa misst annan fótlegginn eftir árás
📅 20.10.2026 👁️ 1
Þingkona sögð hafa misst annan fótlegginn eftir árás
Helen Haines, 65 ára gömul áströlsk þingkona, liggur þungt haldin á sjúkrahúsi þar sem hún þurfti að undirgangast aðgerð eftir að ekið var á hana í gæ...
Chancellor rejects calls to raise Capital Gains Tax in Budget
📅 20.10.2026 👁️ 1
Chancellor rejects calls to raise Capital Gains Tax in Budget
Influential Labour figures had been pushing for equalising CGT and income tax, but critics have said this could drive wealthy people out of Britain.
14 látnir eftir skriðufall á ólöglega gullnámu
📅 20.10.2026 👁️ 2
14 látnir eftir skriðufall á ólöglega gullnámu
14 námuverkamenn eru látnir og sjö særðir í Kólumbíu eftir að skriða féll yfir ólöglega gullnámu.Skriðan féll í héraðinu Nariño sem á landamæri að Ekv...
Christiane Amanpour hættir á CNN eftir 43 ára starf
📅 20.10.2026 👁️ 3
Christiane Amanpour hættir á CNN eftir 43 ára starf
Christiane Amanpour, aðalfréttaþulur CNN á alþjóðavettvangi, tilkynnti í dag að hún muni hætta hjá fréttastöðinni í júní á næsta ári. Amanpour hefur s...
„Eignuðust hreinlega nýtt líf“
📅 19.10.2026 👁️ 3
„Eignuðust hreinlega nýtt líf“
Tvenn ungmenni, þolandi og gerandi, hafa að sögn Kristínar Skjaldardóttur, félagsráðgjafa og sérfræðings í uppbyggilegri réttvísi, fengið nýtt tækifær...
Criminals in hospital set to lose benefits under new rules
📅 19.10.2026 👁️ 2
Criminals in hospital set to lose benefits under new rules
The families of the victims of Nottingham killer Valdo Calocane had been campaigning for the change.
Five ways El Niño is affecting the weather around the world
📅 19.10.2026 👁️ 3
Five ways El Niño is affecting the weather around the world
As the strongest El Niño on record continues to intensify, what impacts on weather patterns are already being felt across the globe? Sarah Keith-Lucas...
Sonur gekk inn á vörubílstjóra að hafa samfarir við lík móður hans - „Fyrirgefðu, ég á skilið að vera kýldur kaldur“
📅 19.10.2026 👁️ 2
Sonur gekk inn á vörubílstjóra að hafa samfarir við lík móður hans - „Fyrirgefðu, ég á skilið að vera kýldur kaldur“
Breskur vörubílstjóri á sjötugsaldri hefur verið dæmdur til fangelsisvistar eftir að hafa misnotað lík nýlátinnar konu. Sonur hennar kom að bílstjóran...
„Gott dæmi um að það er ekki verið að lækna rétt mein“
📅 19.10.2026 👁️ 4
„Gott dæmi um að það er ekki verið að lækna rétt mein“
Í síðustu viku var greint frá því að Litli spítalinn ehf. hefði tekið á leigu neðstu hæðir Háaleitisbrautar 68, sem voru áður að hluta höfuðstöðvar La...
Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu - Vísir
Þetta fullyrðir bandaríski slúðurmiðillinn PageSix. Miðillinn segir að þau hafi kynnst við tökur á Netflix myndinni Office Romance sem frumsýnd var sí...
Ósammála feðgar virða skoðanir hvors annars
📅 19.10.2026 👁️ 5
Ósammála feðgar virða skoðanir hvors annars
Íbúar í Alberta-fylki greiða atkvæði í um hvort það eigi að vera áfram hluti af Kanada. Þótt búist sé við að meirihluti vilji vera það áfram hefur umr...
20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 5
20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu - Vísir
Í skýrslunni, sem fjallar um eftirfylgni við 79 þingmál frá árunum 2022–2025, er farið yfir hernaðarlegan og borgaralegan stuðning við Úkraínu, mannúð...
Wahlberg segir flug­mennina hafa bjargað lífi sínu - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 5
Wahlberg segir flug­mennina hafa bjargað lífi sínu - Vísir
Fram kemur í umfjöllun bandaríska miðla að átta hafi verið um borð í vélinni, Wahlberg og fylgdarlið hans. Vélin hafi átt að fara í loftið 12:50 að st...
Clean up begins after French riots but police remain
📅 19.10.2026 👁️ 5
Clean up begins after French riots but police remain
Outside of Paris, Marseille saw some of the worst damage, with shop owners reporting more than 600 premises having been looted.
Burnham vows end to 'rip-off parking charges' under new rules
📅 19.10.2026 👁️ 5
Burnham vows end to 'rip-off parking charges' under new rules
Penalties are seen as too harsh on motorists who are penalised for parking on private land.
Christiane Amanpour mun kveðja CNN - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 5
Christiane Amanpour mun kveðja CNN - Vísir
Hin 68 ára gamla Amanpour er margverðlaunaður blaðamaður sem flutt hefur fréttir af helstu átakasvæðum víða um heim og hefur hún starfað sem aðalfrétt...
US Church on frontline of battle against drug known as 'tranq'
📅 19.10.2026 👁️ 5
US Church on frontline of battle against drug known as 'tranq'
Synthetic opioids like fentanyl are more powerful and in plentiful supply, and they have transformed the drugs landscape.
Mótmælin í Frakklandi minna á stúdentauppreisnina 1968
📅 19.10.2026 👁️ 4
Mótmælin í Frakklandi minna á stúdentauppreisnina 1968
Mótmælin í Frakklandi, sem hófust meðal framhaldsskólanema um miðjan september, minna um margt á óeirðirnar árið 1968. Þetta segir Guðmundur Hálfdánar...
Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum - Vísir
Hugmyndin kom fram í sérstakri umræðu um sjálfkeyrandi bíla á Alþingi í dag. Þar var rætt um hvernig undirbúa ætti íslenska vegakerfið og löggjöf fyri...
Gunnar Ingi fann sálufélaga sinn í Bakkus og barðist gegn björgun: „Þetta var sannarlega sturlun. Ég var rekald í lífsins ólgusjó“
📅 19.10.2026 👁️ 4
Gunnar Ingi fann sálufélaga sinn í Bakkus og barðist gegn björgun: „Þetta var sannarlega sturlun. Ég var rekald í lífsins ólgusjó“
HELVÍTIS FANTUR ERTU! er ævisaga Gunnars Inga Gunnarssonar sem lungann úr starfsævi sinni var yfirlæknir á Heilsugæslunni Árbæ. Hann kom reyndar víðar...
Trump vill að annar en Zelenskyj semji um frið í Úkraínu – ágreiningur leiðtoganna harðnar
📅 19.10.2026 👁️ 4
Trump vill að annar en Zelenskyj semji um frið í Úkraínu – ágreiningur leiðtoganna harðnar
Trump vill að annar en Zelenskyj semji um frið í Úkraínu – ágreiningur leiðtoganna harðnar Fréttin19. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a...
Brugðust illa við svörum Ingu Sæland
📅 19.10.2026 👁️ 4
Brugðust illa við svörum Ingu Sæland
Stjórnarnandstaðan sakaði Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra um dónaskap þegar hún var beðin um að útskýra nýtt einkunnakerfi í grunnskóla á þin...
Hvað veistu um… Nylon? - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um… Nylon? - Vísir
Nylon starfaði einnig um tíma í Bretlandi, en sveitin hætti svo að koma fram undir merkjum Nylon árið 2008. Liðsmenn komu þó aftur saman á Menningarnó...
Búast við aukinni sölu rafbíla á næstu dögum
📅 19.10.2026 👁️ 4
Búast við aukinni sölu rafbíla á næstu dögum
Styrkir til kaupa á rafknúnum fólksbílum lækka um 100 þúsund krónur um næstu mánaðamót, úr 500 í 400 þúsund, samkvæmt reglugerð sem umhverfisráðherra ...
Komu til Íslands til að fagna gullbrúðkaupi – Ferðin breyttist í martröð
📅 19.10.2026 👁️ 4
Komu til Íslands til að fagna gullbrúðkaupi – Ferðin breyttist í martröð
Tom Profitt og eiginkona hans komu hingað til lands í lok september til að fagna 50 ára brúðkaupsafmæli sínu. Dvöldu þau á landinu í viku, gengu víða ...
Lára hefur greinst þrisvar með krabbamein: „Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót“
📅 19.10.2026 👁️ 4
Lára hefur greinst þrisvar með krabbamein: „Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót“
Lára Árnadóttir hefur þrisvar sinnum greinst með krabbamein. Hún er þakklát fyrir lífið og fyrir að hafa þekkt sinn líkama og hlustað á einkennin.
Skrásetja öll hjartastuðtæki landsins
📅 19.10.2026 👁️ 4
Skrásetja öll hjartastuðtæki landsins
Um 3000 hjartastuðtæki eru víðs vegar um landið. Heilbrigðisráðuneytið hefur hrundið af stað verkefni að skrásetja öll tækin. Þorbjörg Katrín Davíðsdó...
Sahara Ray látin - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sahara Ray látin - Vísir
TMZ greinir frá þessu. Aðstandendur Ray segja hana hafa fallið frá í gær. Hún hafi verið í faðmi fjölskyldu. Dánarorsök liggur ekki fyrir. Ray varð fr...
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
Rannveig Rist lét af störfum sem forstjóri álvers Rio Tinto í Straumsvík í maí en hún hafði þá gegnt starfinu í um 30 ár. Á ársfundi Samtaka atvinnulí...
Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á tún­fiski - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á tún­fiski - Vísir
Fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir var kynnir á viðburðinum og sagði gestum frá rúmlega 140 kílóa bláuggatúnfisknum sem var fluttur sérstaklega til ...
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
Hrefna Dagbjört Arnardóttir, eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð, þar sem bæði er stunduð ferðaþjónustustarfsemi og skógrækt, höfðaði málið á...
Eldur í potti á Norðurbakka
📅 19.10.2026 👁️ 4
Eldur í potti á Norðurbakka
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er í útkalli vegna elds á Norðurbakka í Hafnarfirði. Þar reyndist eldur hafa kviknað í potti. Vel gekk að slökkva eldi...
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að slökkviliðinu hafi borist útkallið á sjöunda tímanum en...
Richard Riehle látinn - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Richard Riehle látinn - Vísir
Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ greinir frá andláti Riehle og segir hann hafa látist á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum. Riehle sló gjörsamle...
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
📅 19.10.2026 👁️ 4
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
Hörð viðbrögð við sýknudómi í nauðgunarmáli fyrir Landsrétti benda til þess að hann sé á skjön við almennan skilning á samþykki. Sérfræðingur segir Hæ...
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
📅 19.10.2026 👁️ 5
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
Serhii Beskrestnov says there has not been enough time to warn people about incoming missile attacks. The White House said there had been no changes t...
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
📅 19.10.2026 👁️ 4
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
Hægt verður að nýta allar sex verslanir Ikea í Danmörku sem neyðarskýli eða bráðabirgðasjúkrahús komi til hamfara, árása á mikilvæga innviði eða flóða...
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
📅 19.10.2026 👁️ 4
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
Matthías Freyr Matthíasson, 46 ára, greindist með ristilkrabbamein í apríl síðastliðnum eftir að hafa glímt við mikla kviðverki um nokkurt skeið. Sköm...
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
Um helgina var greint frá því að Ung vinstri græn (UVG) hefði kosið sér nýja forystu.  Hinn 26 ára Ari Orrason var kjörinn formaður en í þingkosningum...
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
📅 19.10.2026 👁️ 5
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
Íslenskur skiptinemi sem býr í París í Frakklandi fann lítið fyrir mótmælunum sem hafa verið í borginni, þar til um helgina. Mótmælin hafa stigmagnast...
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
Í umfjöllun Guardian kemur fram að ríkisstjórn Frakklands hafi fundað í dag vegna ástandsins í landinu. Líkt og fram hefur komið spruttu óeirðirnar up...
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
📅 19.10.2026 👁️ 5
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft uppi á öllum fimm sem eru grunaðir um stórfellda hópárás í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Árásin átti sér stað í byr...
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
📅 19.10.2026 👁️ 4
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
A 16-year-old boy has suffered a broken arm and multiple injuries after allegedly being attacked by a group of five young people in Vecindario, Gran C...
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
Þetta segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, í samtali við fréttastofu. Tilefnið er tilkynning lögreglu í síðustu viku þar se...
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
📅 19.10.2026 👁️ 4
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
Gísli Freyr Valdórsson, umsjónarmaður Þjóðmála, telur að það sé skrítin stemning í þingflokki Viðreisnar og að það verði gerðar breytingar á forystu f...
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir Yfirvöld í Danmörku hefja rann­sókn eftir að frétta­ljós­mynd­arar lýsa árásum af hálfu lög­regl­unnar. Ljós­my...
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...
Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...
Wolt-sendlar íhuga næstu skref í kjarabaráttu
📅 19.10.2026 👁️ 4
Wolt-sendlar íhuga næstu skref í kjarabaráttu
Um sex hundruð sendlar starfa hjá Wolt hér á landi.Hópur þeirra lagði niður störf um miðjan september þegar laun þeirra voru lækkuð um allt að 40 prós...