Helen Haines, 65 ára gömul áströlsk þingkona, liggur þungt haldin á sjúkrahúsi þar sem hún þurfti að undirgangast aðgerð eftir að ekið var á hana í gær.
Ástralskir miðlar herma að nauðsynlegt hafi reynst að aflima annan fótlegg Haines í aðgerðinni. Hún er enn þá í lífshættu.
Klemmdist á milli tveggja bíla
Haines var að sækja vörur úr skottinu á bíl fyrir utan skrifstofu sína í bænum Wangarattam um 200 kílómetra norðaustur af Melbourne þegar Toyota Land Cruiser var ekið á hana.
Sjónarvottar segjast hafa heyrt hvell og síðan séð konu fasta á milli tveggja bíla. Anthony Albanese forsætisráðherra Ástralíu hefur staðfest að ökumaðurinn hafi viljandi stefnt bíl sínum á Haines, en hann tók U-beygju til að snúa til baka þangað sem hún stóð.
Ökumaðurinn var fjörutíu og þriggja ára gamall karlmaður en eftir að hann var handtekinn fann lögregla hníf í bíl hans. Tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir.
Segir pólitíska orðræðu stefna í ranga átt
Helen Haines hefur setið á ástralska þinginu síðan árið 2019 en hún starfaði áður sem hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Meðal helstu stefnumála hennar voru hertar aðgerðir í þágu loftslagsmála og þá vildi hún stuðla að auknu gagnsæi og berjast gegn spillingu.
Ofbeldi tengt stjórnmálum er sjaldgæft í Ástralíu. Á undanförnum árum hafa löggæsluaðilar þó sagt að fjöldi skráðra tilfella þar sem kjörnum fulltrúum er hótað hafi aukist.
Þingmenn í Ástralíu hafa fordæmt árásina og Albanese hefur enn fremur sagst vera á þeirri skoðun að stjórnmálaumræða í Ástralíu sé orðin of hörð og persónuleg.
„Það er mikilvægt fyrir lýðræðið að fólk geti verið ósammála,“ segir hann. „En það þýðir ekki að þú getir leyft þér að efast um hvata fólks, þjóðrækni þess eða hver þau eru. Ég held að við höfum séð pólitíska orðræðu stefna í ranga átt að undanförnu.“
Fréttin var uppfærð með nánari upplýsingum um ástand Heines.