Í síðustu viku var greint frá því að Litli spítalinn ehf. hefði tekið á leigu neðstu hæðir Háaleitisbrautar 68, sem voru áður að hluta höfuðstöðvar Landsvirkjunar. Ætlunin er að reka margþætta heilbrigðisþjónustu. Þar á meðal er svokölluð smáslysamóttaka, millistig bráðamóttöku og Læknavaktarinnar.
Alma Möller heilbrigðisráðherra var meðal gesta í Silfrinu í kvöld þar sem heilbrigðismál voru til umfjöllunar og hugmyndir um Litla spítalann voru meðal annars ræddar.
„Það er búið að taka á þessu snúning núna tvisvar, árið 2022 og 2024. Þá var ekki mælt með því að koma slíkri þjónustu á fót. Vandi bráðamóttökunnar er ekki þessi. Það hefur tekist ágætlega að sinna þessum smáslysum og þau eru aðskilin frá þyngri verkefnum bráðamóttökunnar. Þetta er gott dæmi um það að það er ekki verið að lækna rétt mein. Vandi bráðamóttökunnar er fyrst og fremst sá að það skortir úrræði fyrir aldraða því það skortir legupláss. Það er búið að lyfta grettistaki með fjölgun hjúkrunarrýma á þessu ári og það eru mörg ný úrræði að opna á næsta ári.“
Hún segir að með þessu sé ekki verið að ráðast á rót vandans. Þetta gæti einnig orðið til þess að Landspítali missi frá sér bráðlækna.
Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, var einnig gestur Silfursins.
„Vandi spítalans undanfarin ár hefur verið örtröð á bráðamóttöku eins og allir þekkja sem stafar af skorti á legurýmum eins og ráðherra benti á. Þetta hefur breyst en við höfum verið að vinna að endurskipulagningu bráðadeildarinnar undanfarin misseri. Vissulega hefur biðtími þeirra sem eru í lægri forgangsflokkum oft verið lengri og kannski með þessu úrræði gæti komið til betri þjónusta.“
Hann bendir þó á að undanfarið hafi afgreiðslutími vegna slíkra vandamála styst þar sem legurýmum hefur fjölgað. Meðalafgreiðslutími undanfarið hafi verið um fjórar klukkustundir.
„Ég sé ekki að við þurfum á þessu að halda til að létta undir með spítalanum. Hins vegar veit ég ekki hvernig þróunin verður næstu misseri og hvort það fari aftur í sama farið. Vonandi ekki því að ríkisstjórnin hefur boðað frekari hjúkrunarrými.“
Ekki að fara að bjarga málefnum Landspítala
Runólfur segir að hann sjái ekki að þessi Litli spítali beinist að verkefnum Landspítala einungis. Það þurfi að skoða málefni bráðaþjónustunnar í heildrænu samhengi.
„Við höfum verið með Læknavaktina í áratugi en þar er takmarkaða þjónustu hægt að veita. Hvort að þessi Litli spítali eigi erindi þarf að skoða það í heildrænu samhengi hlutanna hvort það sé ástæða til að hafa eitthvað millistig en ég sé ekki að það sé til að bjarga málefnum Landspítalans.“
Mikilvægt að fá betri yfirsýn yfir kerfið
Alma segir öllum ljóst að áskoranir heilbrigðiskerfisins séu fjölmargar. Þetta sé mikill uppsafnaður vandi sem eigi sér áratuga sögu og endurspeglist í of langri bið eftir þjónustu. Mikilvægt sé að eiga við áskoranirnar með margvíslegum hætti.
„Það þarf að nýta hverja krónu eins og hægt er, fá betri yfirsýn yfir kerfið og breyta hvernig við veitum þjónustu. Við þurfum að nýta tækni og nýsköpun en ég tel að lausnin sé ekki að koma með opinberar tryggingar. Rannsóknir sýna að Íslendingar vilja sterkt opinbert kerfi og rannsóknir sýna líka að það eru bestu kerfin.“
Oft þjónusta sem ekki er verið að biðja um
Runólfur segir það sífellt verða meira krefjandi áskorun að reka íslenska heilbrigðiskerfið.
„Þetta er gríðarlega kostnaðarsamt eins og komið hefur fram og það skiptir máli hvernig við förum með fé. Það sem mér hefur fundist skorta er að þessu sé stýrt meira. Ef við lítum á þessa einkareknu þjónustu þá hefur hún byggst upp nokkuð sjálfkrafa af þeim sem hana veita. Þetta er ekki endilega þjónusta sem verið er að biðja um í öllum tilvikum. Við getum ekki endalaust bætt við og haft þetta ómarkvisst. Þetta þarf að vera heildstætt þannig að það séu ekki of margir að veita þjónustu á sama sviði.“
Hægt er að horfa á Silfrið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.