Christiane Amanpour, aðalfréttaþulur CNN á alþjóðavettvangi, tilkynnti í dag að hún muni hætta hjá fréttastöðinni í júní á næsta ári. Amanpour hefur starfað hjá CNN í 43 ár og er meðal virtustu og verðlaunuðustu fréttamanna stöðvarinnar.
„Eftir margra mánaða umhugsun og nokkrar svefnlausar nætur hef ég ákveðið að skilja leiðir við CNN, samstarfsaðila minn í 43 frábær ár,“ sagði Amanpour í yfirlýsingu.
Amanpour hóf störf hjá CNN árið 1983, þá 25 ára, sem aðstoðarmaður á alþjóðafréttadeildinni. Hún vakti heimsathygli með umfjöllun sinni um Persaflóastríðið og hefur síðan fjallað um átök meðal annars í Bosníu, Rúanda, Afganistan og Úkraínu.
Frétta- og viðtalsþáttur hennar, Amanpour, hóf göngu sína á CNN árið 2009. Í janúar 2025 fækkaði hún fjölda þáttanna frá daglegum yfir í nokkra daga í viku og verður þátturinnn vikulegur frá janúar þar til honum lýkur í maí.
Þá lýkur þættinum Amanpour & Company á bandarísku sjónvarpsstöðinni PBS um áramótin. Í umfjöllun CNN kemur fram að hún muni halda áfram að flytja fréttir og ferðast um heiminn fyrir CNN út júnímánuð.
Starfslokin ber upp á eigendaskipti hjá CNN
Ákvörðun Amanpour ber upp á eigendaskipti hjá CNN, en fjölmiðlasamsteypan Skydance, undir stjórn Davids Ellison, tók fyrr í mánuðinum yfir móðurfélag stöðvarinnar.
Eigendaskiptin hafa vakið áhyggjur meðal sumra starfsmanna CNN af framtíð ritstjórnarlegs sjálfstæðis stöðvarinnar.
Amanpour hefur ekki gefið upp ástæðu þess að hún láti af störfum en samkvæmt the Guardian er hún ekki talin tengjast eigendaskiptunum.
Amanpour segist ætla að halda áfram að stýra hlaðvarpinu sínu, „The Ex-Files,“ og hlakki til nýrra verkefna.