„Nú eru nánast 100% líkur á að forsendur kjarasamninganna bresti. Verðbólgan hækkar úr 5,2% í 5,3% og nú er einungis ágústmælingin eftir. Þá má 12 mánaða verðbólga ekki vera hærri en 4,7% samkvæmt forsendum samninganna,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness í færslu á Facebook. Hann er ómyrkur í máli:„Það verður því æ ljósara að íslenskt verkafólk var svikið.“Hann segir að verkafólk hafi sýnt mikla ábyrgð í kjarasamningunum 2024 til að skapa skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og vaxta.
Vilhjálmur ómyrkur í máli: „Æ ljósara að íslenskt verkafólk var svikið“