Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir ástæðu fyrir útsvarsgreiðendur og þjónustuþega Mosfellsbæjar að hafa áhyggjur af meðferð bæjarins á almannafé þegar kemur að innkaupum á ræstingaþjónustu. Félagið hefur tilkynnt sveitarfélaginu um brot á lögum um vinnustaðaskírteini og eftirlit með vinnustöðum.
Mikið áunnist í málefnum ræstingarfólks
Sólveig Anna gerir málefni og kjör ræstingafólks að umræðuefni í skoðanagrein sem birtist á Vísi í morgun. Hún segir hópinn búa við erfið lífsskilyrði og starfsaðstæður, sem Efling og fleiri stéttarfélög hafi bent á. Dæmi séu um að ræstingarfólk hafi verið hrakið úr vinnufyrir það eitt að hafa rætt um kjarasamningsbundin réttindi við vinnufélaga sína.
Sólveig segir að Efling hafi sem betur fer ekki talað fyrir algjörlega daufum eyrum hins opinbera þegar kemur að málefnum ræstingafólks. Ítrekuð fundarhöld og samskipti við forsætisráðherra, félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra síðustu misseri hafi leitt af sér umbætur í málaflokknum.
„Í síðustu viku kynnti fjármálaráðuneytið stórhertar kröfur til ræstingafyrirtækja sem sinna útboðnum verkum fyrir ríkið. Félagsmálaráðuneytið hefur í skoðun ásamt Vinnueftirlitinu hvernig megi koma í veg fyrir óhóflegar afkastakröfur í ræstingarvinnu,“ segir Sólveig Anna.
Efling hafi sett aukinn kraft í vettvangsathuganir, vinnustaðaeftirlit og samskipti við opinbera kaupendur að ræstingaþjónustu. Í mörgum tilvikum hafi komið fram að einlægur vilji sé hjá verkkaupum til að heimila eftirlit og tryggja gagnsæi um launakjör og afkastakröfur ræstingafólks.
Þó séu á þessu markverðar undantekningar.
„Sorglegasta dæmið, sem um leið vekur mestar áhyggjur, er sveitarfélagið Mosfellsbær þar sem ræstingarfyrirtækið iClean fer með útseldar ræstingar,“ segir Sólveig Anna.
IClean tók við ræstingum í byggingum bæjarins um síðustu áramót að afloknu útboði. Sólveig Anna segir að fyrirtækið hafi undirboðið það fyrirtæki sem áður sinnti verkinu.
Barátta að fá viðbrögð frá fulltrúum bæjarins
Sólveig segir að Efling hafi haft samband við fulltrúa bæjarins í apríl og óskað eftir samvinnu um vinnustaðaheimsóknir. Við þá beiðni hafi hafist barátta við að fá viðbrögð frá fulltrúum bæjarins.
„Eftir tvo mánuði náðist sá áfangi að innkaupa- og rekstrarsérfræðingur bæjarins leyfði fulltrúum Eflingar að sækja sig heim ásamt lögmanni bæjarins. Þegar á fundinn var komið kom hins vegar í ljós að innkaupa- og rekstrarsérfræðingurinn var við það að ljúka störfum á næstu dögum og lögmaðurinn var fjarverandi án skýringa.“
Félagið hafi því næst haft samband við Hilmar Gunnarsson, nýkjörinn bæjarstjóra, og beðið um áheyrn. Það hafi ekki verið fyrr en í ágúst sem Hilmar hafi fengist til að hitta fulltrúa Eflingar á fundi.
„Var þar lögð fram ósk um að bærinn myndi nýta heimildir í verksamningi til þess að kalla eftir verklýsingum tiltekinna ræstingaverka, en slíkar verklýsingar eru nauðsynlegar til að hægt sé að meta afkastakröfu verkanna og þar með hvort ákvæði kjarasamninga séu virt.“
Sólveig segir að enn hafi ekkert svar borist frá Mosfellsbæ við þeirri beiðni.
Fór undan í flæmingi og vildi ekki segja til nafns
Fulltrúar Eflingar og fagfélaganna fóru í byrjun október í vinnustaðaeftirlitsheimsókn að eigin frumkvæði á verkstaði bæjarfélagsins, þrjá grunnskóla. Sex starfsmenn iClean hafi verið þar við ræstingarstörf.
„Enginn þeirra bar á sér vinnustaðaskírteini,“ segir Sólveig.
„En atvinnurekanda ber að tryggja að starfsmenn beri slíkt skírteini samkvæmt lögum um eftirlit á vinnustöðum.“
Þá hafi einstaklingur verið við störf í einum grunnskólanna sem hafi farið undan í flæmingi og ekki viljað segja til nafns.
„Fram kom í síðari samskiptum við iClean að umræddur einstaklingur var ekki í ráðningarsambandi við fyrirtækið,“ segir Sólveig. Engu að síður hafi hann verið með aðgangskort merkt skólanum og fyrirtækinu og virtist hafa óheftan aðgang að húsnæðinu.
„Ástæða er til að nefna að í verksamningi Mosfellsbæjar við iClean er krafa um að starfsmenn sem sinna ræstingum séu með hreint sakavottorð, en augljóslega er ekki hægt að framfylgja slíkri kröfu ef óskráðir einstaklingar sinna þar ólöglegri vinnu.“
Efling tilkynnti Mosfellsbæ umbrot á lögum nr. 42/2010 um vinnustaðaskírteini og eftirlit með vinnustöðum - um ólöglega vinnu og aðgang óskráðra einstaklinga að húsnæði bæjarins í síðustu viku.
Sólveig Anna segir að þannig hafi Efling og fagfélögin stuðlað að réttri framkvæmd þeirrar ræstingarþjónustu sem Mosfellsbær borgar fyrir og lagt sitt af mörkum til að leiðrétta öryggisbrest í aðgengi að grunnskólum bæjarins.
„Ekki uppskar efling þó þakklæti frá fulltrúum bæjarins, heldur mótttók póst - frá enn einum embættismanninum, að þessu sinni titlaður sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs - þar sem þurrlega var tilkynnt um að starfsmaður Eflingar myndi heyra frá lögmanni bæjarins,“ segir Sólveig Anna.
Mættu áhugaleysi, hroka og fálæti
Sólveig Anna segir að félagið hafi að mestu mætt áhugaleysi, hroka og fálæti í samskiptum sínum við fulltrúa Mosfellsbæjar vegna málsins. Í stað þess að bregðast vingjarnlega við ósk Eflingar um að bærinn nýti þegar umsamin ákvæði í verksamningi til að tryggja að réttindi verkafólks séu virt hafi málið gengið eins og heit kartafla milli forsvarsmanna, sem hver hafi vísað á annan.
„Saga samskipta Eflingar við Mosfellsbæ er saga um vinnubrögð sem eiga ekki að líðast. Að standa vörð um lögbundin réttindi þeirra sem eru útsettastir fyrir réttindabrotum á íslenskum vinnumarkaði á að vera kappsmál allra.“
Sólveig Anna segir að svo virðist vera sem að Mosfellsbær sé mótfallinn eðlilegu aðhaldi og gagnsæi í innkaupum sínum, jafnvel með einföldustu beitingu þegar umsaminna heimilda í verksamningum.
„Ræstingarfólk, sem vinnur baki brotnu við að halda leikskólum, grunnskólum og bókasöfnum bæjarins hreinum,“ er bæjaryfirvöldum ekki ofarlega í huga,“ segir Sólveig Anna.
Ástæða sé fyrir útsvarsgreiðendur og þjónustuþega Mosfellsbæjar að hafa áhyggjur af meðferð bæjarins á almannafé þegar kemur að innkaupum á ræstingaþjónustu.
„Þær áhyggjur ættu einnig að ná til almennrar festu og ábyrgðarkenndar í stjórnsýslu og meðal kjörinnar forystu bæjarins. Ég hvet íbúa Mosfellsbæjar til að þrýsta á sína kjörnu fulltrúa og embættismenn að gera betur,“ segir Sólveig Anna.