Frönsk stjórnvöld reyna að kenna vinstri flokkum um hatrömm mótmæli í landinu upp á síðkastið, segir Torfi Tulinius, prófessor í frönsku og sérfræðingur í frönskum stjórnmálum.
„Stjórnmál samtímans ganga svolítið mikið út á að ná frásögninni og túlka atburði sér í hag. Þetta á við um alþjóðastjórnmál. Donald Trump gerir þetta – ég er ekki að segja að hann geri þetta af mikilli list en hann gerir þetta alveg grímulaust, myndi ég segja.“
Torfi ræddi mótmælin í Morgunútvarpinu á Rás 2 í dag.
Talsverð harka hefur verið í mótmælum og óeirðum vegna þeirra í Evrópu síðustu daga.
Borgaraþjónustunni hafa borist nokkrar fyrirspurnir vegna fyrirhugaðra ferða en engin erindi um aðstoð hafa borist frá Íslendingum.
Ýmsir hafa dregið í efa að rót óeirðanna í Frakklandi liggi hjá námsmönnum sem hafa mótmælt háum framfærslukostnaði.
Torfi segir að frönsk stjórnvöld reyni að gera vinstriflokka að blórabögglum. Það hefur hins vegar í för með sér að flokkar lengst til vinstri og lengst til hægri auka við fylgi sitt.
Þrír hópar sameinuðust í mótmælum á laugardag
Hann segir að skipta megi mótmælendum í þrennt - þá sem mótmæli í skipulagðri fylkingu og svo minni hóp vinstri aðgerðarsinna. Þriðji hópurinn sé reitt, gjarnan ungt fólk úr úthverfunum, sem nýti sér ástandið.
„Þessir hópar koma saman í þessum mótmælum á laugardaginn og allt fer úr böndunum. Kannski áttu þessir vinstri aktívistar einhvern þátt í því.“
Hann segir að í Marseille sé talið að yfir 20 þúsund hafi komið úr úthverfunum í miðborgina og tekið þátt í óeirðunum. „Þannig að stjórnvöld réðu ekki við þetta.“