Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Hlíðarfjalls. Þar segir að til að byrja með verði snjór framleiddur á neðra svæðinu en þar eru til dæmis brekkurnar Töfrateppið, Auður, Hólabraut og Andrés.
„Áætlum að færa framleiðsluna ofar um leið og svæðið er búið að fá örlitla náttúrulega úrkomu svo hægt sé að færa byssur ofar með snjótroðurum,“ segir í tilkynningunni.
Vonast er til að framleiða nægilega mikinn snjó í Hólabraut svo hægt sé að hefja æfingar sem fyrst og sömuleiðis á skíðagöngusvæðinu og í Hjallabraut.
„Aðstæður til snjóframleiðslu eru háðar hita- og rakastigi, fyrir áhugasama er hægt að skoða wet bulb-kort sem eru nytsamleg til að skilja hvenær aðstæður eru ákjósanlegar til að framleiða snjó. Vonum að á komandi vikum fáum við mikla náttúrulega úrkomu og hagstætt veður til snjóframleiðslu.“
Á síðasta ári gat almenningur farið fyrst á skíði þann 4. desember en æfingar á skíðagöngusvæðinu hófust 28. október. Þá gátu þeir sem æfa alpagreinar og á snjóbretti byrjað að æfa þann 17. nóvember.