Netöryggissveitin CERT-IS varar við því að tveir mjög alvarlegir veikleikar í PHP-forritunarmálinu gætu gert óprúttnum aðilum kleift að ná stjórn á viðkvæmum kerfum í gegnum netið.
Mikill fjöldi vefja er knúinn áfram af forritunarmálinu. Þar á meðal eru síður sem byggja á WordPress, Drupal og Joomla.
Unnið er að gerð öryggisuppfærslu sem á að verða aðgengileg klukkan tvö síðdegis í dag. CERT-IS hvetur fyrirtæki og stofnanir sem reka PHP-kerfi til að ráðast í öryggisuppfærslu um leið og þær verða aðgengilegar. Sé það ekki hægt gæti þurft að takmarka aðgang að kerfum eða taka þau niður tímabundið.
Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að nágrannalönd hafi gripið til aðgerða. Þannig hafi vefsíða auðkennisþjónustu Hollands, stór fréttasíða og einhverjar vefsíður verið teknar niður. Finnar ætla að gera það sama.
Helstu leiðbeiningar CERT-IS má finna hér.