Búið er að flytja fyrsta og stærsta hlutann upp í Þórsmörk en um er að ræða heljarinnar verk. Stærsti hlutinn er um 22 tonn að þyngd en ekki var hægt að flytja alla hluta skálans í einu.
Hinir hlutarnir bíða neðar á veginum þar sem ekki er hægt að flytja þá alla í einu alla leið. Stefnt er að því að klára að setja skálann upp í dag og á morgun ef allt gengur vel.
Gamli Skagfjörðsskálinn var byggður árið 1954 og var svo bætt við hann á áttunda áratugnum. Býsna margt var orðið gamalt og lúið í skálanum og taldi Ferðafélag Íslands, sem á skálann, tíma til kominn að ráðast í endurnýjun.
Sjá nánar: „Við höldum í fjallarómantíkina“
Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, náði þessum myndum af flutningunum.