Talsverður fjöldi íslenskra vefsíðna notast við PHP-forritunarmálið.
„Svo það er ekkert óeðlilegt að vefsíður detti núna niður í ákveðinn tíma meðan það er unnið að þessum uppfærslum,“ segir Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS.
Tveir mjög alvarlegir veikleikar fundust í forritunarmálinu. Þeir gætu gert óprúttnum aðilum kleift að ná stjórn á viðkvæmum kerfum eða að komast í upplýsingar.
Magni hvetur rekstraraðila vefsíðna til að uppfæra þær sem fyrst. Öryggisuppfærsla var aðgengileg klukkan 14 í dag.
„En ef aðilar geta ekki uppfært um leið að grípa til þess að taka vefinn niður tímabundið ef vefurinn eða vefumsjónarkerfið fellur undir þennan veikleika.“
„Mjög stór hluti vefsíðna í dag keyrir síðurnar sínar á PHP-forritunarmálinu þannig að þetta er stórt mengi sem er þarna undir,“ segir Magni.
Engar tilkynningar um innbrot
CERT-IS hefur ekki fengið tilkynningar um innbrot enn sem komið er.
„Við hvetjum alla rekstraraðila til að vera vel vakandi yfir sínum kerfum ef þeir eru ekki búnir að uppfæra og grípa til mótvægisaðgerða.“
Nokkrar vefsíður hafa verið teknar niður í dag sem gæti haft áhrif á þjónustu.
„Þá getur verið eitthvað smá hikst en það ætti samt ekki að taka neinn gríðarlegan tíma,“ segir Magni.