Rúmlega þrjátíu af tæplega 160 málum á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar hafa komið til umfjöllunar það sem af er þingvetri. Stuttir þingfundir og fá mál á dagskrá hafa sætt gagnrýni stjórnarandstöðunnar.
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir í samtali við Vísi að 120 mál hafi verið afgreidd síðasta vor. Venjulega séu mál sem klárist ekki að vori lögð fram aftur um haustið. Nú hafi færri slík mál beðið þingsins vegna þess hversu vel hafi gengið að afgreiða þau.
Hann segir stöðuna því ekki skýrast af erfiðleikum við að koma málum í gegnum ríkisstjórnarflokkana. Slíkir erfiðleikar hafi einkennt síðustu ríkisstjórn og Sigurður Ingi Jóhannsson sé hugsanlega vanur því frá sínum tíma í stjórn. Nú sé skýringin fremur góður árangur síðasta vors og stjórnarþingmenn hlakki til að fá ný mál til umfjöllunar.
„Við erum frekar fórnarlömb velgengni síðasta vors.“
Segir skýringuna vandræðalega
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gefur lítið fyrir þessa skýringu. Hún segir óvenjulítið hafa hreyfst á þinginu í vetur, þótt hún telji það fagnaðarefni í ljósi áherslna ríkisstjórnarinnar.
„Þessi stjórn lifir auðvitað bara eftir því mottói að það sem hún segir sé raunveruleikinn. Ég var hins vegar ekki að byrja í gær – það er aldrei markmið hjá ríkisstjórn að vera í hlutlausum gír hálfan þingvetur. Þetta er hjákátleg útskýring og í raun örlítið vandræðaleg fyrir hina meintu og sjálfnefndu verkstjórn.“
Hún telur fréttaflutning af stjórnarþingmönnum og stemninguna á Alþingi benda til þess að innanflokksátök ráði miklu um stöðuna.
„Alþingi er reyndar loksins orðinn fjölskylduvænn vinnustaður, en það kemur til af því sem allir hljóta að sjá: ríkisstjórnin nær engum málum út vegna innanflokksátaka.“
Níu tíma umræða vegur þungt
Þingfundir dagana 5. til 19. október voru átta og stóðu samtals í tæpar 36 klukkustundir, eða um fjórar og hálfa klukkustund að meðaltali.
Þar vegur einn fundur þungt. Fundurinn 6. október stóð í tæpar tíu klukkustundir og fóru rúmar níu þeirra í fyrstu umræðu um bókun 35. Sé sá umræðutími dreginn frá var meðallengd fundanna um þrjár klukkustundir og tuttugu mínútur.
Fundurinn 15. október stóð í tæpar tvær klukkustundir og fundurinn síðastliðinn mánudag í tæpar tvær og hálfa.
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknar og fyrrverandi forsætisráðherra, gerði tímann sem farið hefði í löggjafarstörf sérstaklega að umtalsefni í ræðu á Alþingi í gær. Hann taldi upp fundi þar sem sá hluti hefði tekið innan við eina til þrjár klukkustundir. Þar undanskildi hann meðal annars óundirbúna fyrirspurnatíma, störf þingsins og sérstakar umræður.
„Í næstu viku er Norðurlandaráðsþing og ríkisstjórnin, undir hinni miklu verkstjórn Kristrúnar Frostadóttur, hæstvirts forsætisráðherra, hefur þar af leiðandi skilað 29 frumvörpum og fimm ályktunum til þingsins þegar nóvember hefst.“
Vilja fá málin tilbúin til þings
Guðmundur Ari segir fyrstu mánuði þingvetrarins nú fara í vinnu við ný frumvörp í ráðuneytunum. Stjórnin vilji vanda til verka og meti gæði þingstarfa eftir því hvort málin komi tilbúin til þings fremur en fjölda þeirra.
Hann segir svigrúmið jafnframt hafa gefið þingmönnum fleiri tækifæri til að koma eigin málum að. Þingstörf felist einnig í munnlegum fyrirspurnum og fleiri verkefnum en umfjöllun um stjórnarfrumvörp.
Stærsta verkefni haustsins verði hallalaus fjárlög. Þótt færri mál séu í þingsal séu þingnefndir að vinna á fullu. Einnig sé unnið að málum sem tengjast því að tryggja frið á vinnumarkaði, meðal annars leigubremsunni og breytingum á almenna íbúðakerfinu.
Spurður hvort hætta sé á að mál safnist upp og afgreiða þurfi þau í tímaþröng fyrir jól segir hann of snemmt að segja til um það. Haldi þingstörfin áfram að ganga jafnvel sjái hann ekki fram á slíka stöðu.