Húsið er í eigu þróunarfræðingsins Guðrúnar Helgu Diop Jóhannsdóttur og eiginmanns hennar Yakhya Ragnars Ibrahimasonar Diop. Á Instagram lýsir Guðrún sér sem ferðasjúkri tólf barna móður en hún er jafnframt stofnandi félagasamtakanna Amsis sem sérhæfa sig í þróunarsamvinnu, mannúðaraðstoð, rannsóknum, kennslu og mannréttindastarfi samkvæmt heimasíðu.
Heimilið er huggulegt og vel skipulagt, bjart og rúmgott og stendur á 9300 fermetra eignarlóð. Nánari upplýsingar má finna á fasteignavef Vísis og hér má sjá myndir af húsinu: