Loka þurfti vef Reykjavíkurborgar tímabundið á meðan unnið var að uppfærslum í tengslum við öryggisgallann. Þetta staðfestir Hulda Gunnarsdóttir, verkefnastjóri samskipta hjá Reykjavíkurborg. Hún segir að vonast sé til þess að vefsíðan komist fljótlega aftur í gagnið eftir að uppfærslu er lokið.
Netöryggissveitin CERT-IS varar við að tveir mjög alvarlegir veikleikar í PHP-forritunarmálinu gætu gert óprúttnum aðilum kleift að ná stjórn á viðkvæmum kerfum í gegnum netið.
Mikill fjöldi vefja er knúinn áfram af forritunarmálinu. Þar á meðal eru síður sem byggja á WordPress, Drupal og Joomla.
Háskóli Íslands hefur lokað nokkrum vefjum sínum vegna öryggisgallans. Þar á meðal eru vefur skólans, Ugla og enski vefur skólans.
Unnið er að gerð öryggisuppfærslu sem á að verða aðgengileg klukkan tvö síðdegis í dag. CERT-IS hvetur fyrirtæki og stofnanir sem reka PHP-kerfi til að ráðast í öryggisuppfærslu um leið og hún verður aðgengileg. Sé það ekki hægt gæti þurft að takmarka aðgang að kerfum eða taka þau niður tímabundið.
Helstu leiðbeiningar CERT-IS má finna hér.