Sanna Magdalena Mörtudóttir og Stefán Pálsson, borgarfulltrúar Vinstrisins, gagnrýna breytingar sem á að gera í framsetningu leikskólagjalda fyrir foreldra og forráðamenn barna í Reykjavík. Í tillögunni, sem var samþykkt í borgarstjórn í gær, segir að skóla- og frístundaráði borgarinnar verði falið að innleiða breytingar fyrir janúar á næsta ári þannig að foreldrar sjái alltaf hver hlutur borgarinnar er í gjöldum fyrir leikskólavist.
Sanna og Stefán setja spurningamerki við breytingarnar: „Hvað í andskotanum á ég að gera við þær upplýsingar“