Ferðaljósmyndarinn og samfélagsmiðlastjarnan Ása Steinarsdóttir átti erfiðan morgun í byrjun vikunnar. Hún sagði frá því í myndbandi á TikTok.„Ég átti hrikalegan morgun,“ sagði Ása og útskýrði nánar:„Ég fór í sturtu og ætlaði að vera extra „fresh“ og greip í – að ég hélt – fjólubláa sjampóið mitt […] Þetta var ekki fjólublátt sjampó. Þetta var blár litur og ég litaði á mér hárið blátt í morgun. Ég átti mikilvægan fund klukkan eitt, sem var ástæðan fyrir því að ég var að undirbúa mig.“
Ása Steinars átti hrikalegan morgun – Greip í vitlaust í sturtunni