Þúsundir krefjast þess að óháð útekt verði gerð á meðferð kynferðisofbeldismála eftir umdeildan dóm Landsréttar þar sem karlmaður var sýknaður af nauðgun. Í rökstuðningi dómsins er vísað til samskipta fólksins á Instagram og talið að af þeim mætti ráða að konan hafi gert sér grein fyrir því að maðurinn hefði áhuga á að beita hörku í kynlífi. Í ákæru er því meðal annars lýst að maðurinn hafi tekið konuna hálstaki, slegið hana og þrýst hné sínu á bringu hennar. Konan hlaut meðal annars rifbeinsbrot, áverka á höfði, tognun í hálsi og öxl og heyrnartap.
Edda Björk Þórðardóttir, dósent í faraldsfræði og annar af aðalhöfundum rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna, ræddi málið í Bítinu og fór meðal annars yfir það hversu algengt sé orðið að þrengt sé að öndunarvegi kvenna í kynlífi án samþykkis.
„Í okkar rannsókn er þetta þrefalt algengara meðal yngri kvenna en eldri kvenna þannig það er að verða einhver breyting þegar kemur að birtingarmyndum kynferðisofbeldis,“ sagði Edda.
Allir séu að gera þetta
María Hjálmtýsdóttir, formaður Félags kynjafræðikennara og kennari við Menntaskólann í Kópavogi, segir dóm Landsréttar óskiljanlegan og sláandi hversu algengt sé orðið að kyrkingartaki sé beitt meðal ungmenna.
„Þau segja bara að allir séu að gera þetta og manni bregður bara. Sextán til sautján ára krakkar eru að segja að þetta sé eitthvað sem fólk er að gera þegar það er að sofa saman í fyrsta skipti. Ég talaði líka við konur um tvítugt þar sem heilu vinahóparnir þekktu þetta.“
Verið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi.
„Þau sem vinna með þolendum kynferðisofbeldis á öllum aldri sjá áhrif klámsins svo skýrt og við vitum það alveg að þarna er eitthvað búið að breytast. Krakkarnir okkar sem eru að byrja í samböndum og að byrja að stunda kynlíf og unga fólkið sem er að kynnast einhverjum nýjum og að fara að sofa hjá, þau eru í bara ákveðinni hættu. Leggja af stað út í lífið sem kynverur með hugmyndir um ofbeldi sem einhvern náttúrulegan fylgifisk kynlífs.“
María er meðal þeirra sem kom að vitungarvakningu sem lögregla og ýmis samtök stóðu fyrir í sumar um hættuna sem fylgir kyrkingartaki. Hún segir átak duga skammt, nauðsynlegt sé að bregðast við þróuninni af festu.
„Það þarf bara að setja þetta inn í bara skólakerfið markvisst. Það þarf að fræða krakka um þetta í kynfræðslu sem öll ættu að fá. Því fyrr, því betra myndi ég segja.“