Annie Mist og Katrín Tanja hafa báðar unnið Crossfit-heimsleikana tvisvar og eiga sömuleiðis báðar börn, þannig að þær þekkja vel hvernig það er að æfa í mismunandi líkamlegum aðstæðum.
World Class og Empower by Dóttir, fyrirtæki Anniear og Katrínar, stóðu fyrir fræðandi konukvöldi í Laugum þar sem áhersla var lögð á heilsu kvenna, breytingaskeiðið og mikilvægi styrktarþjálfunar.
Annie Mist og Katrín Tanja leiddu kvöldið og fræddu gesti um þær breytingar sem verða á líkama kvenna með aldrinum, áhrif hormónabreytinga og hvernig markviss hreyfing og næring geta stutt við heilsu og vellíðan.
Í fréttatilkynningu segir:
„Á kvöldinu kynntu þær æfingakerfi sem er sérstaklega hannað fyrir konur 40 ára og eldri. Æfingakerfið leggur áherslu á styrktarþjálfun sem hjálpar konum að byggja upp og viðhalda vöðvamassa, styrkja beinin og auka orku og vellíðan. Markmiðið er að hvetja konur til að æfa með líkamanum, ekki gegn honum, og mæta breyttum þörfum hans á mismunandi æviskeiðum.
Gestir fengu einnig tækifæri til að spyrja spurninga og ræða við Annie Mist og Katrínu Tönju um þjálfun, næringu og þær áskoranir sem geta fylgt breytingaskeiðinu. Stefnt er að því að halda reglulega viðburði á vegum World Class og Empower by Dóttir. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem konur geta sótt sér fræðslu, innblástur og hvatningu til að efla eigin heilsu og vellíðan.“
Hér má sjá vel valdar myndir frá kvöldinu: