Öryggisgallinn er í forritunarmálinu PHP sem umtalsverður hluti vefsíðna í heiminum reiðir sig á. Tvær neyðaruppfærslur voru gefnar út vegna gallans sem var metinn mjög alvarlegur í dag en upplýsingum, þó ekki áður en upplýsingum hann hafði verið lekið.
Fyrir vikið hafa stofnanir og fyrirtæki víða um heim brugðist við með því að loka vefsíðum og þjónustu þeim tengdum niður tímabundið. Háskóli Íslands lokaði meðal annars þjónustusíðu sinni í dag vegna veikleikans.
Advania segir í tilkynningu á vefsíðu sinni að rekstrarteymi fyrirtækisins hafi unnið að því að ná utan um hvaða þjónustur hér á landi gætu orðið fyrir áhrifum frá því snemma í morgun. Ábending um gallann kom frá netöryggissveit stjórnvalda, CERT-IS.
„Með öryggi og hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi hefur í einhverjum tilvikum þurft að loka tímabundið fyrir aðgang að viðkomandi þjónustum frá internetinu þar til lagfæring liggur fyrir,“ segir í tilkynningunni.
Lokuninni er lýst sem öryggisráðstöfun. Þjónustur verði gerðar aðgengilegar aftur þegar búið verður að uppfæra hugbúnað.
Veikleikarnir geta gert óviðkomandi aðila kleift að keyra kóða á vefþjónum án auðkenningar. Þeir geta haft áhrif á vefþjóna sem keyra PHP og eru aðgengilegir frá internetinu, þar á meðal þjónustur sem Advania rekur fyrir viðskiptavini.