Ekki á dagskrá að skipta landinu frekar upp í veðurviðvörunum

Ekki á dagskrá að skipta landinu frekar upp í veðurviðvörunum

Ekki á dagskrá að skipta landinu frekar upp í veðurviðvörunum

Djúp haustlægð gekk yfir landið í síðustu viku. Hvellurinn á Siglufirði reyndist meiri en búist var við og töluvert tjón varð á húsum, bílum og lausamunum í bænum.

Eftir veðrið voru lagðar á borð áleitnar spurningar um viðbragð og viðvaranir – þeirra á meðal hvort Veðurstofan ætti að gefa út fleiri staðbundnar litakvarðaðar viðvaranir. Spásvæðin ná í dag yfir landshluta og eina staðbundna viðvörunin er fyrir höfuðborgarsvæðið. Rætt var um þessi mál í Þetta helst í dag.

Vill taka viðvaranakerfi Veðurstofunnar „upp á næsta stig“

Einar Sveinbjörnsson segir að núgildandi veðurviðvaranakerfi hafi verið við lýði í tæplega tíu ár. Kerfið sé mikilvægt og skipti miklu máli vegna þess að viðvaranir séu skýrar í hugum fólks, „en það var auðvitað byrjað með að miða þetta við þessi spásvæði og þessi stóru og víðfeðmu spásvæði og þau eru búin að vera við lýði í meira en 50 ár. Reyndar bættist miðhálendið seinna við og svo höfuðborgarsvæðið,“ segir hann.

„Þetta er í raun og veru afsprengi frá þeim tíma þegar aðeins var hægt að spá mjög gróft og bara fyrir einn dag fram í tímann. Svona um 1980. Ég meira að segja man vel þessa tíma, á fyrstu árum mínum á Veðurstofunni þegar þetta var svona. Við skulum líka hafa það í huga að það sem hefur líka breyst mjög mikið, ekki síst bara á þessum tíma frá því að þetta litakvarðaða kerfi varð að veruleika, þá hafa spárnar úr líkönunum orðið enn betri og þær eru nákvæmar,“ segir Einar.

„Í stað þess að veðurfræðingurinn sé að velta því fyrir sér hvort spáin gangi eftir eða hvort lægðin fari svona eða hinsegin, á hann að geta einbeitt sér að því frekar að staðbundnu þáttum veðursins, hvar það skellur á, hvar það verður verst. Þess vegna held ég að það sé tímabært að taka þetta viðvaranakerfi upp á næsta stig og fara að þróa það þannig að það rúmi líka staðbundnar spár,“ bætir hann við.

Einar tekur dæmi. „Ef það stefndi hérna í mjög mikið illviðri, það slengdi sér inn strengur með veðri sem væri mjög varhugavert inn á Suðurnes, en hvergi annars staðar, þetta er alveg þekkt dæmi, í stað þess að gefa út rauða viðvörun sem næði frá Snæfellsnesi og austur að Skógarfossi væri hægt að teikna inn og afmarka Suðurnesin sérstaklega þar sem við vissum að áhrifasvæðið yrði,“ segir hann.

Hann telur að með þessu myndi þjónusta ekki einungis batna heldur trúverðugleiki sömuleiðis aukast, „þegar þarf ekki lengur að lita heilu landsvæðin vegna staðbundins illviðris.“ „Ég hef líka orðið var við það að úti í samfélaginu finnst fólki mikið vera af þessum gulu veðurviðvörunum og þær koma snemma og ná yfir stór svæði.“

Spárnar í raun rangar

Sigurður Þórður Ragnarsson, jarð- og veðurfræðingur, var á sama máli þegar rætt var um veðurofsann í Vikulokunum síðustu helgi. „Ég átti spjall við Pál heitinn Bergþórsson um þetta. Hann kallaði það að spárnar okkar væru raunverulega rangar allar. Það er að segja að þegar það er sagt að það verði norðaustan átta til þrettán eða þrettán til fimmtán eða átján eða hvað, þá er raunverulegur vindhraði kannski frá þremur og upp í fimmtán. Bilið er svo mikið,“ sagði hann.

„Við berum ekkert saman veðrið til dæmis undir Eyjafjöllum og síðan í Vestmannaeyjum og síðan á Laugarvatni hins vegar, ég tek það bara sem dæmi,“ sagði Sigurður. „Það er tími til kominn. Tæki og tól eru til. Það er bara spurning um að þétta netið.“

Litakvarðar frá 2017

Núgildandi viðvörunarkerfi Veðurstofunnar hefur verið í gildi frá 2017 og landsmenn þekkja það flestir líklega vel. Það byggir á alþjóðlegum staðli og viðvaranir eru í litum sem ákvarðast af mati sérfræðinga á væntanlegum áhrifum veðurs og líkum á því að spáin gangi eftir.

Í stuttu máli gefur gul veðurviðvörun það í skyn að veðrið geti haft nokkur eða staðbundin áhrif og valdið töfum, slysum eða tjóni ef aðgát er ekki höfð; appelsínugul að miðlungs eða miklar líkur séu á veðri sem getur valdið miklum samfélagslegum áhrifum, tjóni og slysum og ógnað mögulega lífi og limum, ef aðgát er ekki höfð; og rauð að miklar líkur séu á veðri sem hefur mjög mikil samfélagsleg áhrif. Einstaklega áköfum og hættulegum veðurskilyrðum er spáð og búast má við miklum skemmdum, líkur á slysum eru miklar og veðrið ógnar lífi og limum.

Skiptir máli að koma sértækari viðvörunum til fólks

Vitaskuld getur verið krefjandi að gefa út nákvæmar veðurviðvaranir fyrir ákveðin svæði á ákveðnum tíma. Hildigunnur H. H. Thorsteinsson veðurstofustjóri segir skipta máli að koma sértækari viðvörunum til fólks, „ef við gerum ráð fyrir að það verði einhverjar ákveðnar veðuraðstæður á litlum svæðum. Það að breyta kerfinu og gera mörg lítil svæði er ekki eins einfalt og við viljum, þótt þetta virðist vera einfalt á korti. Við erum með tvo veðurfræðinga á vakt á daginn og einn á kvöldin og nóttinni sem er að halda utan um þetta allt og setja inn í kerfin. Við erum að horfa á okkar kerfi og hvernig við getum kannski gert þetta sjálfvirkara,“ segir hún.

Ástæða sé fyrir svæðaskiptingunni. „Ástæðan fyrir því að kannski allt Suðurlandið er saman og svo getur það farið á gulan eða appelsínugulan vegna þess að það er hvasst undir Eyjafjöllum er líka til að við fáum fólk á þessu svæði til að hugsa: „Já, það er veðurviðvörun, ég ætla að skoða hvar hún er, hún er undir Eyjafjöllum, ég ætti kannski ekki að keyra eða fara í ferðalagið. Auka þessa vitund að þegar það er litur á þínu svæði þá skoðar þú þín ferðaplön og þínar fyrirætlanir fyrir daginn eða þegar spáin á að raungerast.“

Aðspurð hvort eitthvað sé því til fyrirstöðu að vera með minni viðvaranasvæði sem væru aðgengileg á vef Veðurstofunnar segir hún að með nýrri veðursíðu sé hægt að þróa viðvaranir í þá átt. „Þá getum við líka unnið okkur í þá átt að huga að hvernig við getum sett skilaboð, ekki bara í veðurviðvörunum heldur líka í skilaboðum sértækari fyrir einstaka staði. Það er eitthvað sem við erum að skoða, hvernig við getum unnið. Við sáum það til dæmis í sólmyrkvanum hvernig við nýttum gottvedur.is-síðurnar til að vera með sértækari svæði. Við erum að þróa okkur áfram í átt sem að gerir þetta.“


Að ykkar mati kemur til greina að minnka svæðin?

„Ég myndi ekki segja að það væri á dagskrá núna. Ég er ekki viss um að það sé besta leiðin að minnka svæðin en það er á dagskrá að skoða sértækari viðvaranir eða skilaboð til svæða þar sem aðstæður verða öðruvísi heldur en í stærri landshluta,“ segir Hildigunnur.

Undirbúningurinn yrði annar

Einar Sveinbjörnsson hefur einnig talið nauðsynlegt að setja upp nýjan vindmæli á Siglufirði á þeim slóðum þar sem veður verður verst. Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð, vill að mælirinn verði í miðbænum. „Nýr vindmælir myndi kannski ekki endilega skila því strax ef það kæmi sambærileg lægð á morgun að við fengjum fyrir fram upplýsingar um hvernig veðrið yrði á Siglufirði. Þetta myndi hins vegar skrásetja söguna þannig að þegar von er á þessari skæðu vindátt sem við höfum nokkrum sinnum þurft að takast á við þá er hægt að búa til viðvörunarkerfi þegar töluleg gögn liggja fyrir,“ segir hann.

„Heimamenn og þeir sem til þekkja þekkja þessa átt mjög vel hér. Þetta var á vitorði margra hér á Siglufirði að þessi átt væri væntanleg. Núverandi vindmælir er staðsettur á flugvellinum á Siglufirði sem er svolítið sunnar en þéttbýliskjarninn og hann er í þessari vindátt að gefa upp allt, allt aðrar upplýsingar en við erum að upplifa hér í bænum. Það sem hefur bjargað okkur hvað varðar það að geta sýnt fram á hvers konar veður við erum að takast á við er að varðskipið Freyja hefur verið í höfn, bæði árið 2023 og svo í síðustu viku. Þar er löggildur vindmælir um borð,“ segir Jóhann.

Hann segir að það hefði ekki endilega breytt miklu hvort appelsínugul eða rauð veðurviðvörun hefði verið í gildi, „en það sem veðurspáin gæti gert og upplýsingar úr veðurmælum er að undirbúa viðbragðsaðila mun frekar fyrir það að það gæti komið upp vont veður. Undirbúningurinn yrði allt annars eðlis.“

Telur ekki augljóst að annar mælir hefði bætt spána

„Það er ekkert augljóst að mælir hefði bætt spána,“ segir Hildigunnur. „Ég sá einhvers staðar að það var tillaga um að setja mæli í miðbæinn. Það gengur eiginlega ekki. Við notum staðla Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar. Við viljum ná eins góðum mælingum sem segir okkur hvernig veðrið er á þessu landssvæði og ef þú setur hann í miðbæ þar sem eru byggingar eða eitthvað annað sem truflar vindinn þá gefur hann ekki rétta mynd. Við þurfum að finna stað sem er laus við hindranir frá vindinum.“

Ekki sé augljóst hvar það verði á svæðinu sem um ræðir. „Við höfum skoðað aðra mæla þarna í kring og alveg úti á nesi í þessu veðri. Þeir voru ekkert að gefa mikið aðrar niðurstöður. Það gæti hjálpað, kannski ekki endilega spánni, kannski spálíkönunum en áhættumati og hvað getur gerst inni í bænum. Það er eitthvað sem við munum skoða og í framhaldi eiga samtal við bæinn,“ segir Hildigunnur.

„Það er mælir þarna við flugvöllinn. Ég held við myndum ekki vilja færa hann. Við viljum hafa mæli þar og hann er að gefa góða mynd af þessu svæði. Ef við viljum bæta við er það samtal sem bæði við þurfum að skoða út frá okkar fjármögnun og horfa til fjármögnunar jafnvel frá bænum. Þannig höfum við leyst þessi mál annars staðar stundum,“ bætir hún við.

Nánar er rætt við Hildigunni, Einar og Jóhann í Þetta helst í dag.

#dagskrá #ekki #frekar #landinu #skipta


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-21-ekki-a-dagskra-ad-skipta-landinu-frekar-upp-i-vedurvidvorunum-490529

📰 Aðrar fréttir

Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Hlíðarfjalls. Þar segir að til að byrja með verði snjór framleiddur á neðra svæðinu en þar eru til dæmi...
Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum - Vísir
Annie Mist og Katrín Tanja hafa báðar unnið Crossfit-heimsleikana tvisvar og eiga sömuleiðis báðar börn, þannig að þær þekkja vel hvernig það er að æf...
Sanna og Stefán setja spurningamerki við breytingarnar: „Hvað í andskotanum á ég að gera við þær upplýsingar“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Sanna og Stefán setja spurningamerki við breytingarnar: „Hvað í andskotanum á ég að gera við þær upplýsingar“
Sanna Magdalena Mörtudóttir og Stefán Pálsson, borgarfulltrúar Vinstrisins, gagnrýna breytingar sem á að gera í framsetningu leikskólagjalda fyrir for...
Russia ready to resume talks with Ukraine and US to end war
📅 21.10.2026 👁️ 1
Russia ready to resume talks with Ukraine and US to end war
The announcement came after Russian President Vladimir Putin met US President Donald Trump's special envoy Steve Witkoff in St Petersburg.
Glee snýr aftur - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Glee snýr aftur - Vísir
Streymisveiturnar Disney+ og Hulu greina frá endurræsingunni (e. reboot) í tilkynningu. Tónlistardramaþættirnir Glee eru hugarsmíði hins afkastamikla ...
Með kannabis, ketamín, LSD, hníf og riffilskot í bílnum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Með kannabis, ketamín, LSD, hníf og riffilskot í bílnum
Lögreglan á Norðurlandi vestra lagði hald á tæp 30 grömm af kannabis, 140 grömm af ketamíni, 36 MDMA töflur, MDMA kristalla og 84 pappastykki er innih...
Sakar Mosfellsbæ um áhugaleysi, hroka og fálæti í málefnum ræstingarfólks
📅 21.10.2026 👁️ 1
Sakar Mosfellsbæ um áhugaleysi, hroka og fálæti í málefnum ræstingarfólks
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir ástæðu fyrir útsvarsgreiðendur og þjónustuþega Mosfellsbæjar að hafa áhyggjur af meðferð bæjarins á ...
Loka vef­síðum tíma­bundið í var­úðar­skyni - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Loka vef­síðum tíma­bundið í var­úðar­skyni - Vísir
Öryggisgallinn er í forritunarmálinu PHP sem umtalsverður hluti vefsíðna í heiminum reiðir sig á. Tvær neyðaruppfærslur voru gefnar út vegna gallans s...
Google experiences resignation backlash over AI military contracts
📅 21.10.2026 👁️ 1
Google experiences resignation backlash over AI military contracts
The BBC speaks to several current and former Google DeepMind employees about their concerns with AI use on the battlefield.
Margar íslenskar vefsíður sem nota PHP útsettar fyrir veikleikum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Margar íslenskar vefsíður sem nota PHP útsettar fyrir veikleikum
Talsverður fjöldi íslenskra vefsíðna notast við PHP-forritunarmálið.„Svo það er ekkert óeðlilegt að vefsíður detti núna niður í ákveðinn tíma meðan þa...
Passenger arrested after drugs found in luggage at Gran Canaria Airport
📅 21.10.2026 👁️ 0
Passenger arrested after drugs found in luggage at Gran Canaria Airport
A passenger arriving at Gran Canaria Airport from mainland Spain has been remanded in custody after Guardia Civil officers found 460 grams of the synt...
Samhjálp á hrakhólum í heilt ár
📅 21.10.2026 👁️ 1
Samhjálp á hrakhólum í heilt ár
Kaffistofa Samhjálpar hefur verið mjög til umfjöllunar síðastliðið ár. Flytja þurfti hana úr Borgartúni í október fyrir ári og húsnæði hafði fundist v...
Aberfan disaster: Royal Family pay respects to 'most tragic of days imaginable'
📅 21.10.2026 👁️ 0
Aberfan disaster: Royal Family pay respects to 'most tragic of days imaginable'
In total 116 children and 28 adults were killed when a colliery spoil tip collapsed on 21 October 1966.
Bára beauty greinir frá kyni tvíburanna
📅 21.10.2026 👁️ 1
Bára beauty greinir frá kyni tvíburanna
Bára Jónsdóttir, fasteignasali, förðunarfræðingur og fitness-ræktarkona, þekkt sem Bára Beauty, á von á tvíburum með kærasta sínum, Tryggva Jarli Svei...
Ölvuðu Ís­lendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Ölvuðu Ís­lendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr - Vísir
Rokkhljómsveitin Spacestation hefur verið starfandi síðan 2023, gáfu út fyrstu plötu sína í fyrra og fylgdu henni eftir með Who Killed Spacestation? s...
Fá mál á þingi: Vel­gengni eða innanflokksátök? - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fá mál á þingi: Vel­gengni eða innanflokksátök? - Vísir
Rúmlega þrjátíu af tæplega 160 málum á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar hafa komið til umfjöllunar það sem af er þingvetri. Stuttir þingfundir og fá má...
Fá mál á þingi: „Fórnar­lömb vel­gengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Fá mál á þingi: „Fórnar­lömb vel­gengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá - Vísir
Rúmlega þrjátíu af tæplega 160 málum á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar hafa komið til umfjöllunar það sem af er þingvetri. Stuttir þingfundir og fá má...
Veitingamaður kannast ekki við þá mynd sem var dregin upp í Kveik - „Metnaður sölumanna er ekki glæpur“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Veitingamaður kannast ekki við þá mynd sem var dregin upp í Kveik - „Metnaður sölumanna er ekki glæpur“
Umfjöllun Kveiks um viðskiptahætti Ölgerðarinnar vakti mikla athygli í síðustu viku, en þar var þeirri spurningu varpað fram hvort Ölgerðin væri að ha...
Svæsin magapest dreifði sér hratt í flugvél – Þrír enduðu á sjúkrahúsi
📅 21.10.2026 👁️ 0
Svæsin magapest dreifði sér hratt í flugvél – Þrír enduðu á sjúkrahúsi
Kalla þurfti til heilbrigðisstarfsfólk í hlífðarfatnaði til þess að sinna farþegum um borð í flugvél þar sem skæð nóróveira braust út. Flytja þurfti þ...
Öryggisgalli ógnar vefsíðum um heim allan
📅 21.10.2026 👁️ 1
Öryggisgalli ógnar vefsíðum um heim allan
Loka þurfti vef Reykjavíkurborgar tímabundið á meðan unnið var að uppfærslum í tengslum við öryggisgallann. Þetta staðfestir Hulda Gunnarsdóttir, verk...
Femíníska tímaritið Emma færist alfarið á netið
📅 21.10.2026 👁️ 1
Femíníska tímaritið Emma færist alfarið á netið
Síðasta tölublað þýska femíníska tímaritsins Emma verður gefið út í desember. Tímaritið, sem hóf göngu sína árið 1977, var áhrifaríkt og mótaði femíní...
„Nei, Pútín er harð­svíraður morðingi“ - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
„Nei, Pútín er harð­svíraður morðingi“ - Vísir
Júrí Úsjakóv sagði við blaðamenn í dag að Pútín hefði tilkynnt Steve Witkoff, sérstökum erindreka Donalds Trump, á fundi þeirra í Pétursborg í dag að ...
Rannsókn lokið í máli manns sem grunaður er um að bana föður sínum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Rannsókn lokið í máli manns sem grunaður er um að bana föður sínum
Rannsókn er lokið í máli manns á fimmtugsaldri sem situr í gæsluvarðhaldi í tengslum við andlát föður síns. Maðurinn lést í heimahúsi í Kópavogi í júl...
Holocaust school lessons to be improved after 'shocking' antisemitism review
📅 21.10.2026 👁️ 1
Holocaust school lessons to be improved after 'shocking' antisemitism review
Education Secretary Lucy Powell has stressed the importance of reminding new generations of the horrors of the Holocaust.
Glee reboot: The US high school musical comedy-drama is to return on Hulu and Disney+
📅 21.10.2026 👁️ 0
Glee reboot: The US high school musical comedy-drama is to return on Hulu and Disney+
Ryan Murphy's popular musical comedy-drama is set to return after more than a decade.
Skorar á land­lækni að leið­rétta rang­færslur - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Skorar á land­lækni að leið­rétta rang­færslur - Vísir
Bjarni ritar grein sem hann birtir á Vísi um þetta efni. Hann viðurkennir fúslega, í samtali við Vísi, að hann sé ekki hlutlaus, hann er framkvæmdastj...
Al­var­legur veik­leiki hjá fjölda vef­síðna - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Al­var­legur veik­leiki hjá fjölda vef­síðna - Vísir
„Það fundust tveir mjög alvarlegir veikveillar í PHP-forritunarmálinu,“ segir Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, í samtali við fréttastofu. „...
Burnham defends Jackdaw decision as Badenoch urges PM to overturn ban on new oil and gas licences
📅 21.10.2026 👁️ 0
Burnham defends Jackdaw decision as Badenoch urges PM to overturn ban on new oil and gas licences
The UK government says the field, which is opposed by environmental campaigners, could be producing gas by the end of this month.
Jeffrey Donaldson to be interviewed over alleged rape inside Houses of Parliament
📅 21.10.2026 👁️ 1
Jeffrey Donaldson to be interviewed over alleged rape inside Houses of Parliament
While not naming the disgraced former MP, the Metropolitan Police has issued a statement confirming a 63-year-old man is being investigated.
Eiríkur Björn tekur við varaformennsku af Jóni Gnarr
📅 21.10.2026 👁️ 1
Eiríkur Björn tekur við varaformennsku af Jóni Gnarr
Hrókeringar í nefndastörfum á vegum Viðreisnar héldu áfram í morgun þegar skipt var um fyrsta varaformann í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis...
Vilja fá umdeilda kvikmynd til Íslands – „Hvers vegna fáum við ekki að sjá hana?“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Vilja fá umdeilda kvikmynd til Íslands – „Hvers vegna fáum við ekki að sjá hana?“
Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Ólöf Grétarsdóttir eru mæður og sérfræðingar á sviði stafrænnar velferðar. Þær vilja sjá kvikmyndina The Social R...
Ása Steinars átti hrikalegan morgun – Greip í vitlaust í sturtunni
📅 21.10.2026 👁️ 1
Ása Steinars átti hrikalegan morgun – Greip í vitlaust í sturtunni
Ferðaljósmyndarinn og samfélagsmiðlastjarnan Ása Steinarsdóttir átti erfiðan morgun í byrjun vikunnar. Hún sagði frá því í myndbandi á TikTok.„Ég átti...
Sláandi hversu margir telji of­beldi hluta af kyn­lífi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Sláandi hversu margir telji of­beldi hluta af kyn­lífi - Vísir
Þúsundir krefjast þess að óháð útekt verði gerð á meðferð kynferðisofbeldismála eftir umdeildan dóm Landsréttar þar sem karlmaður var sýknaður af nauð...
Sagður hafa dulið arðgreiðslur - Trúðu því ekki að hann væri að greiða út vinninga
📅 21.10.2026 👁️ 0
Sagður hafa dulið arðgreiðslur - Trúðu því ekki að hann væri að greiða út vinninga
Yfirskattanefnd hefur staðfest úrskurð ríkisskattstjóra um að greiðslur fyrirtækis til eiganda þess skuli færðar honum til tekna en ekki skilgreinast ...
Nýtt félag ætlar að hasla sér völl á íslenskum flugfraktmarkaði
📅 21.10.2026 👁️ 1
Nýtt félag ætlar að hasla sér völl á íslenskum flugfraktmarkaði
TVG-Zimsen, dótturfélag Eimskips, og alþjóðlega fyrirtækið Kales Group hafa stofnað nýtt félag, Kales Iceland, sem mun starfa á íslenskum flugfraktmar...
Björguðu særðum her­manni með dróna - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Björguðu særðum her­manni með dróna - Vísir
Þetta ku vera í fyrsta sinn sem þetta er gert en áður hafa Úkraínumenn notað fjarstýrða róbóta til að flytja særða menn. Það þótti hins vegar ekki hæg...
Jón Gnarr lætur af vara­for­mennsku og tveimur varasætum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Jón Gnarr lætur af vara­for­mennsku og tveimur varasætum - Vísir
Forseti Alþingis tilkynnti við upphaf þingfundar í dag að Eiríkur Björn hefði verið kosinn á fundi nefndarinnar í morgun. Breytingin kemur í kjölfar ú...
„Stjórnmál samtímans ganga mikið út á að ná frásögninni“
📅 21.10.2026 👁️ 1
„Stjórnmál samtímans ganga mikið út á að ná frásögninni“
Frönsk stjórnvöld reyna að kenna vinstri flokkum um hatrömm mótmæli í landinu upp á síðkastið, segir Torfi Tulinius, prófessor í frönsku og sérfræðing...
Mynda­syrpa: Nýr skáli fluttur í Þórs­mörk - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Mynda­syrpa: Nýr skáli fluttur í Þórs­mörk - Vísir
Búið er að flytja fyrsta og stærsta hlutann upp í Þórsmörk en um er að ræða heljarinnar verk. Stærsti hlutinn er um 22 tonn að þyngd en ekki var hægt ...
Varað við alvarlegum veikleikum í fjölda vefsíðna
📅 21.10.2026 👁️ 1
Varað við alvarlegum veikleikum í fjölda vefsíðna
Netöryggissveitin CERT-IS varar við því að tveir mjög alvarlegir veikleikar í PHP-forritunarmálinu gætu gert óprúttnum aðilum kleift að ná stjórn á vi...
Er George Soros á bakvið fjölda samtaka sem koma að óeirðunum?
📅 21.10.2026 👁️ 1
Er George Soros á bakvið fjölda samtaka sem koma að óeirðunum?
Milljarðamæringurinn George Soros hefur veitt fjárhagslegan stuðning til samtaka sem hafa hvatt til mótmæla í Frakklandi, stutt kröfur nemenda eða gag...
Klæmdist ó­vart við fjór­tán ára og var sýknaður - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Klæmdist ó­vart við fjór­tán ára og var sýknaður - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 14. október og birtur í dag. Í dóminum segir að ekki hafi verið ágreiningur um að maður...
Fréttin.is óskar eftir svörum frá tveimur prestum Þjóðkirkjunnar vegna ummæla um bæjarstjóra Ölfuss
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fréttin.is óskar eftir svörum frá tveimur prestum Þjóðkirkjunnar vegna ummæla um bæjarstjóra Ölfuss
Fréttin.is óskar eftir svörum frá tveimur prestum Þjóðkirkjunnar vegna ummæla um bæjarstjóra Ölfuss Fréttin21. október 2026Innlent, Stjórnmál, TrúmálL...
Fékk áfall þegar hún sá myndirnar og hefur þyngst um tæp 14 kíló
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fékk áfall þegar hún sá myndirnar og hefur þyngst um tæp 14 kíló
Sjónvarpsstjarnan Kelly Osbourne greinir frá því að hún sé búin að þyngjast um tæp 14 kíló og henni líði betur, en margir hafa haft miklar áhyggjur af...
Halla afhjúpar sönnu söguna á bak við leyndarmálið: „Mér var brugðið við þessa uppljóstrun“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Halla afhjúpar sönnu söguna á bak við leyndarmálið: „Mér var brugðið við þessa uppljóstrun“
Hulunni var svipt af leyndarmáli Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, í morgun. Bætti hún um betur og afhjúpaði sönnu söguna þar að baki.
Tólf barna móðir selur sveitadraum á Sel­fossi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Tólf barna móðir selur sveitadraum á Sel­fossi - Vísir
Húsið er í eigu þróunarfræðingsins Guðrúnar Helgu Diop Jóhannsdóttur og eiginmanns hennar Yakhya Diop. Á Instagram lýsir Guðrún sér sem ferðasjúkri tó...
Tólf barna móðir selur sveitadraum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Tólf barna móðir selur sveitadraum - Vísir
Húsið er í eigu þróunarfræðingsins Guðrúnar Helgu Diop Jóhannsdóttur og eiginmanns hennar Yakhya Ragnars Ibrahimasonar Diop. Á Instagram lýsir Guðrún ...
Stærsti dagurinn í dekkja­skiptum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Stærsti dagurinn í dekkja­skiptum - Vísir
Hálka tók á móti íbúum höfuðborgarsvæðisins eftir næturfrost á suðvesturhorninu í nótt. Þurftu margir að grípa til sköfunnar áður en haldið var af sta...
Úrskurðir varpa nánara ljósi á stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar - Google Maps og dularfullur þúsundkall
📅 21.10.2026 👁️ 1
Úrskurðir varpa nánara ljósi á stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar - Google Maps og dularfullur þúsundkall
Landsréttur hefur birt gæsluvarðhaldsúrskurði tveggja sakborninga í Straumsvíkurmálinu svokallaða, en í sumar var 106 kílóum af kókaíni smyglað til la...
Útgjöld Garðabæjar hækka og afgangur minnkar
📅 21.10.2026 👁️ 1
Útgjöld Garðabæjar hækka og afgangur minnkar
Samþykkt var á fundi bæjarráðs Garðabæjar í gær að bæta 383 milljóna króna útgjöldum við fjárhagsáætlun þessa árs. Þetta á að hluta til að fjármagna m...