Forseti Alþingis tilkynnti við upphaf þingfundar í dag að Eiríkur Björn hefði verið kosinn á fundi nefndarinnar í morgun.
Breytingin kemur í kjölfar úrsagnar Jóns úr þingflokki Viðreisnar 15. október. Sama dag skrifuðu Jón og Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, undir samstarfssamning um áframhaldandi samstarf á Alþingi.
Samdi um að sitja sem almennur nefndarmaður
Í samningnum er sérstaklega tekið fram að Jón haldi sæti sínu í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem almennur nefndarmaður.
„Þingflokkur Viðreisnar og Jón Gnarr sammælast um að Jón sitji áfram í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sem almennur nefndarmaður.“
Þá kveður samningurinn á um að Jón eigi áfram sæti í Þingvallanefnd og gegni formennsku í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins. Skipti á fyrsta varaformanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar samræmast því ákvæðinu um áframhaldandi setu hans í nefndinni.
Sandra tekur við tveimur varasætum
Í gær tilkynnti forseti Alþingis einnig að Sandra Sigurðardóttir tæki við af Jóni sem varamaður í utanríkismálanefnd og Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um Norðurskautsmál.
Hvorugt þessara varasæta er nefnt í samstarfssamningi Jóns og Viðreisnar.
Samningurinn felur því ekki í sér að Jón haldi öllum þeim nefndarstörfum sem hann gegndi áður en hann yfirgaf þingflokkinn.
Sandra tekur jafnframt sæti aðalmanns í fjárlaganefnd í stað Ingvars Þóroddssonar, sem verður þar varamaður. Ingvar tekur á móti sæti Söndru sem aðalmaður í velferðarnefnd.