Síðasta tölublað þýska femíníska tímaritsins Emma verður gefið út í desember. Tímaritið, sem hóf göngu sína árið 1977, var áhrifaríkt og mótaði femínískar umræður í Vestur-Þýskalandi á sínum tíma. Í tímaritinu var fjallað um málefni eins og kynferðisbrot gegn börnum, launaójöfnuð og kynjajafnrétti í víðu samhengi.
Ritstjóri og jafnframt stofnandi tímaritsins, Alice Schwarzer, segir að tímaritið haldi þó áfram á netinu. Alls verði tölublöðin 398 með því síðasta.
Schwarzer, sem er 83 ára, hefur verið í framlínu kvenréttindabaráttunnar í Þýskalandi og er þekkt andlit í þýsku sjónvarpi, viðtalsþáttum og fréttaefni.
Minni áhrif og meiri gagnrýni
Dregið hefur úr áhrifum tímaritsins á undanförnum árum. Schwarzer hefur talað opinskátt gegn transfólki, verið gagnrýnd fyrir og sögð vera úr takti við unga lesendur.
Schwarzer var einnig gagnrýnd fyrir að hvetja Úkraínumenn til þess að leita eftir friði við Rússa skömmu eftir innrásina 2022.
Schwarzer leiddi baráttu árið 2013 gegn upprætingu vændis en það var lögleitt áratug áður og átti þátt í að eftirlit var hert þrátt fyrir andmæli hagsmunahópa kynlífsverkafólks.
Hætta ekki vegna minni sölu
Í yfirlýsingu sem birt er á vefsíðu tímaritsins hafnar sex manna ritstjórn tímaritsins að útgáfu verði hætt vegna minni sölu eða annarra efnahagslegra áhrifa.
„Nei, við erum að hætta vegna þess að við teljum vera komið gott.“
Halda sig við trans-andstöðu
Í yfirlýsingunni gaf ritstjórnin hvergi eftir í afstöðu sinni gegn transfólki. Þar er „hættulegri trans-hugmyndafræði“ hafnað þar sem „fólk geti sagt sig konu eða karl einfaldlega með því að lýsa því yfir“.
Í yfirlýsingu á vefsíðu tímaritisins segir að ritstjórnin vilji ekki breytast en hún sé uppgefin. Hún hafi starfað saman að mestu leyti í um 30 ár. Í gegnum tíðina hafi verið reynt að finna nýja samstarfsmenn sem deildu þeirra móral eða ráða nýjan ritstjóra. „Þessar konur eru til en þrátt fyrir að ötular tilraunir til þess að ráða þær hafa þær á endanum kosið að ráða sig til starfa eða vera áfram á meira viðurkenndum fjölmiðlum.“