Rannsókn er lokið í máli manns á fimmtugsaldri sem situr í gæsluvarðhaldi í tengslum við andlát föður síns. Maðurinn lést í heimahúsi í Kópavogi í júlí. Málið er nú komið á borð embættis héraðssaksóknara.
Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Enn liggur ekkert fyrir um hvernig andlát mannsins bar að.